Morgunblaðið - 15.11.2022, Side 27
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. NÓVEMBER 2022
Sito segir skilið
við Eyjamenn
Spænski sóknarmaðurinn Sito
leikur ekki með karlaliði ÍBV í
knattspyrnu á komandi tímabili.
Hann gekk fyrst í raðir ÍBV um
mitt sumar 2015 en lék með Fylki
tímabilið á eftir. Sito lék svo með
Grindavík sumarið 2018 en skipti
aftur til ÍBV fyrir tímabilið 2020
og hafði leikið með Eyjamönnum
undanfarin þrjú tímabil. Alls á
Sito 65 leiki að baki í efstu deild
þar sem hann hefur skorað 14
mörk. Einnig skoraði hann 16
mörk í 39 leikjum í B-deild.
Ljósmynd/Sigfús Gunnar
Eyjar Sito í skallabaráttu í leik með
ÍBV gegn Víkingi í sumar.
KristjánÖrn
meiddist á ökkla
Kristján Örn Kristjánsson,
landsliðsmaður í handknattleik,
var ekki í leikmannahópi Aix um
helgina þegar liðið tapaði 32:37
fyrir stórliði Paris Saint-Germain
í frönsku 1. deildinni vegna þess
að hann er að glíma við ökkla-
meiðsli.
„Ég hvíldi í síðustu viku vegna
bólgu í öðrum ökklanum. Ég fer í
myndatöku í fyrramálið [í gær].
Þetta ætti ekki að vera neitt
alvarlegt,“ sagði Kristján Örn í
samtali við Handbolta.is.
Morgunblaðið/Eggert
MeiddurKristján Örn vonar að
ökklameiðsli hans séu ekki alvarleg.
Úrslitin ráðast í lokaumferðinni
Ljósmynd/FIBA
Bestur Tryggvi Snær Hlinason treður með tilþrifum fyrir íslenska liðið
gegn því úkraínska í Riga í gær. Tryggvi var besti leikmaður Íslands.
l Ísland,Georgía ogÚkraína berjast
um síðasta sætið áHMá næsta ári
HM2023
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
Ísland, Georgía og Úkraína eiga
öll möguleika á að ná þriðja sæti
L-riðils á lokastigi undankeppni
HM karla í körfubolta, þegar tvær
umferðir eru eftir. Lokamótið fer
fram í Filippseyjum, Indónesíu og
Japan á næsta ári. Ítalía og Spánn
tryggðu sér sæti á lokamótinu með
sigrum í gær.
Ísland þurfti að sætta sig við
72:79-tap á útivelli gegn Úkraínu,
en leikið var í Riga í Lettlandi.
Leikurinn var hnífjafn nánast allan
tímann, en Úkraínumenn voru
sterkari síðustu fimm mínúturnar
og það dugði til sigurs. Skömmu
eftir að leiknum lauk fagnaði ítalía
85:84-sigri á Georgíu og sæti á
lokamótinu í leiðinni.
Ítalía gerði Íslandi greiða
Úrslitin voru hagstæð fyrir
íslenska liðið, því Georgía hefði
farið langt með að tryggja sér sæti
á lokamótinu með sigri, á kostnað
Íslands. Þess í stað er líklegt að
Georgía og Ísland mætist í hreinum
úrslitaleik um sæti á lokamótinu í
Georgíu í febrúar á næsta ári. Von
Úkraínumanna er minni, þrátt fyrir
sigurinn í gær.
Margt hefði betur mátt fara í leik
íslenska liðsins í gær. Minna fór
fyrir sterkum bakvörðum liðsins
en oft áður og úkraínska liðið hafði
góðar gætur á Elvari Má Frið-
rikssyni, sem lék afar vel í fyrri
leik liðanna í Ólafssal. Ægir Þór
Steinarsson náði sér ekki almenni-
lega á strik og stöðugleika vantaði
í leik Jóns Axels Guðmundssonar.
Hann skoraði 14 stig í leiknum, en
þau komu nær öll á fimm mínútna
kafla í upphafi seinni hálfleiks. Kári
Jónsson fann sig ekki og Sigtryggur
Arnar Björnsson fékk lítinn tíma á
vellinum.
Tryggvi langbestur
Tryggvi Snær Hlinason var
yfirburðamaður í íslenska liðinu
í gær. Hann skoraði 24 stig og
tók 13 fráköst. Hann nýtti 10 af 11
vítaskotum og réðu Úkraínumenn
oft illa við hann í teignum. Þá
varðist Tryggvi oft afar vel undir
körfunni, þegar stórir leikmenn
Úkraínu voru að gera sig líklega. Þá
kom Styrmir Snær Þrastarson inn í
byrjunarlið íslenska liðsins og hann
komst mjög vel frá sínu. Styrmir
skoraði sjö stig, tók átta fráköst og
gaf fjórar stoðsendingar. Hann var
með næstflesta framlagspunkta í ís-
lenska liðinu, 15 talsins, en Tryggvi
Snær var með 33.
Ísland mætir Spánverjum á
heimavelli 23. febrúar í næsta
leik. Sá leikur skiptir í raun litlu
máli, því Ísland mætir væntanlega
Georgíu í úrslitaleik þremur dögum
síðar í Georgíu, sama hvernig fer
gegn Spáni. Ísland fer á HM ef liðið
vinnur Spán og Georgíu í tveimur
síðustu leikjunum, svo lengi sem
sigurinn gegn Georgíu er stærri en
fjögur stig. Ísland fer líklegast á HM
með fjögurra stiga eða stærri sigri á
Georgíu, þótt liðið tapi fyrir Spáni.
Georgíu nægir sigur á Íslandi í
lokaumferðinni til að fara á HM.
Úkraína getur blandað sér í bar-
áttuna. Úkraína þarf að vinna bæði
Ítalíu og Holland í tveimur síðustu
leikjunum og treysta á að Holland
vinni Georgíu í næsta leik, sem er
ólíklegt.
Georgía er í bestu stöðunni, Ís-
land kemur þar á eftir og Úkraínu-
menn eiga veika von. Það ræðst allt
í lokaumferðinni í lok febrúar.
Noregur í undanúrslit
eftir sigur á Slóveníu
Norska kvennalandsliðið í hand-
knattleik, undir stjórn Þóris Her-
geirssonar, tryggði sér í gærkvöld
sæti í undanúrslitum Evrópumóts-
ins í handknattleik með því að
hafa betur gegn heimakonum í
Slóveníu, 26:23, í milliriðli 1.
Henny Reistad fór á kostum í
liði Noregs og skoraði tíu mörk úr
aðeins tólf skotum og þar á eftir
kom Nora Mörk með sex mörk.
Ana Gros var markahæst hjá
Slóveníu með fimm mörk og
Natasa Ljepoja bætti við fjórum.
Noregur er eftir sigurinn með
fullt hús stiga, átta stig, eftir
fjóra leiki í milliriðlinum. Norska
liðið undir handleiðslu Þóris er
ríkjandi heims- og Evrópumeist-
ari og er nú skrefi nær því að
verja Evrópumeistaratitil sinn.
Svíþjóð eygir enn von um að
tryggja sér sæti í undanúrslitum
eftir að hafa lagt Ungverjaland
að velli, 30:25, í riðlinum í gær,
þar sem liðið er í 3. sæti, tveimur
stigum á eftir Danmörku í 2. sæti
fyrir lokaumferðina á morgun.
Ljósmynd/EHF
Mörk Nora Mörk er góð í því að skora mörk. Hún skoraði sex mörk í gær.
Valur jók á kvalir Hauka
í fyrsta leikÁsgeirs
Íslands- og bikarmeistarar Vals
unnu sterkan 34:32-útisigur á
Haukum þegar liðin mættust í
úrvalsdeild karla í handknattleik,
Olísdeildinni, á Ásvöllum í gær-
kvöldi. Um fyrsta leik nýráðins
þjálfara Hauka, Ásgeirs Arnar
Hallgrímssonar, var að ræða eftir
að hann var ráðinn í síðustu viku.
Um hörkuleik var að ræða
þar sem mikið jafnræði var með
liðunum stærstan hluta leiks en
Valur sýndi styrk sinn undir blá-
lokin er liðið náði fjögurra marka
forystu, 31:27, og sigldi loks enn
einum sigrinum í höfn.
Valur er eftir sigurinn áfram í
efsta sæti deildarinnar, nú með
16 stig eftir níu leiki. Haukar eru
áfram í 10. sæti með aðeins fimm
stig eftir átta leiki.
Brynjólfur Snær Brynjólfsson
var markahæstur í leiknum með
átta mörk fyrir Hauka.
Markahæstur hjá Val var
Benedikt G. Óskarsson með fimm
mörk. Björgvin Páll Gústavsson
varði 10 skot í marki liðsins.
ÍR og Afturelding skildu þá
jöfn, 31:31, í öðrum hörkuleik sem
fór fram í Breiðholti. ÍR hefði
með sigrinum getað sent Hauka
niður í fallsæti en Igor Kopyshyn-
skyi jafnaði metin fyrir gestina úr
Mosfellsbæ á ögurstundu.
ÍR er því áfram í 11. sæti
deildarinnar, fallsæti, með fimm
stig líkt og Haukar en eftir níu
leiki. Afturelding fór með jafn-
teflinu upp í 3. sæti þar sem liðið
er með 12 stig eftir níu leiki.
Arnar Freyr Guðmundsson fór
fyrir ÍR og skoraði 10 mörk. Ólaf-
ur Rafn Gíslason varði þá 11 skot í
marki liðsins.
Markahæstir hjá Aftureldingu
voru Birkir Benediktsson, Árni
Bragi Eyjólfsson og Blær Hinriks-
son, allir með sex mörk.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Barátta Heimir Óli Heimisson
klæddur úr Haukatreyjunni í gær.
Næst á dagskrá hjá flestu
fótboltaþyrstu fólki er að horfa
á HM karla í fótbolta. Keppnin
í Katar er væntanlega um-
deildasta heimsmeistaramót
sögunnar og það er enn tæp
vika í fyrsta leik.
Heimsmeistaramótið
verður haldið í skugga mann-
réttindabrota. The Guardian
greinir frá því að 6.500 verka-
menn hafi látið lífið í ömurleg-
um aðstæðum í undirbúningi
fyrir mótið. Þá hafa miðlar
greint frá því að yfirvöld í Katar
hafi fengið keppnina í gegnum
mútugreiðslur.
Samkynhneigð er bönnuð í
Katar og eiga samkynhneigðir
stuðningsmenn á hættu að vera
handteknir vegna kynhneigðar
sinnar. Þá eru réttindi kvenna
töluvert minni en karla og
tjáningar- og fjölmiðlafrelsi er
takmarkað.
FIFA sendi frá sér yfirlýsingu á
dögunum, þar sem sambandið
bað fólk vinsamlegast um að
hætta að velta mannréttinda-
brotum og öðru slíku fyrir
sér, þar sem nú væri tími til
að njóta fótboltans. Glæsileg
skilaboð það: „Haldið nú aðeins
kjafti með þessi blessuðu
mannréttindi og förum að horfa
á fótbolta.“
Katar var eins langt frá
því að vera tilbúið að halda
heimsmeistaramót og hægt
er, þegar landinu var úthlutað
keppninni. Aðeins þjóðarleik-
vangurinn í höfuðborginni Doha
var klár og þurfti að byggja
hina sjö vellina í hvelli. Kipptu
yfirvöld í Katar sér lítið upp við
dauða þúsunda farandverka-
manna. Hvaða máli skipta þeir,
þegar við fáum að halda HM?
Barcelona og París eru á
meðal stórborga í Evrópu sem
ætla að sniðganga mótið. Leikir
keppninnar verða ekki sýndir
á opinberum vettvangi. Það
er aðdáunarvert. Bakvörður
dagsins mun fylgjast með HM
með óbragð í munni.
BAKVÖRÐUR
Jóhann Ingi
Hafþórsson
johanningi@mbl.is
Áfram í
Árbænum
Benedikt Darí-
us Garðarsson,
sóknarmaður
karlaliðs Fylkis
í knattspyrnu,
hefur skrifað
undir nýjan
samning við
Árbæjarliðið
sem gildir út
tímabilið 2025.
Benedikt
Daríus, sem er 23 ára gamall, lék
afar vel fyrir Fylki þegar liðið
tryggði sér sigur í næstefstu
deild, Lengjudeildinni, í sumar.
Skoraði hann 14 mörk í 22
leikjum í deildinni og varð þriðji
markahæsti leikmaður hennar í
sumar.
Um var að ræða fyrsta tímabil
Benedikts Daríusar með Fylki en
hann er þó uppalinn í Árbænum
og hafði áður leikið með vensla-
félagi Fylkis, Elliða, í C-, D- og
E-deild auk eins tímabils með
KFG í C-deild.
„Þetta eru frábær tíðindi fyrir
okkur Fylkismenn! Til hamingju
með nýja samninginn, Benni!“
sagði meðal annars í tilkynningu
frá knattspyrnudeild Fylkis.
Benedikt Daríus
Garðarsson