Morgunblaðið - 30.11.2022, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 30.11.2022, Blaðsíða 6
FRÉTTIR Innlent6 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 2022 Nú liggur fyrir að fyrirtækið Prófílstál ehf. mun smíða fjölnota stálvirki sem sett verður upp á Laugavegi, milli Hlemms og Snorrabrautar. Þessi kafli götunnar hefur fengið hið frumlega nafn Snákurinn. Reykjavíkurborg auglýsti fyrr á þessu ári eftir tilboðum í smíðina. Að- eins barst eitt tilboð, frá Próifílstáli. Hljóðaði það upp á krónur 21.601.880 eða 80% af kostnaðaráætlun, sem var upp á 26,8 milljónir. Umhverfis- og skipulagssviðReykjavíkurborgar hefur ákveðið að ganga að tilboðinu. Eins og vegfarendur hafa tekið eftir hafa veriðmiklar framkvæmdir í gangi umhverfis Hlemmtorg. Í september var götukaflanum milli Hlemms og Snorrabrautar lokað fyrir bílaumferð fyrir fullt og allt og byrjað var að grafa upp götuna. Búið er að endurnýja all- ar lagnir og steypa mikinn stokk eftir götunni endilangri. Gangstéttumbeggja vegna götunnar hefur verið haldið opnum. Til stendur að vinna í götunni til áramóta en þá verði gert hlé á verkinu. Í apríl 2023 hefst svo vinna á ný og unnið á því svæði þar sem gangstéttirnar liggja. Gangandi og hjólandi vegfarendur geta farið um götuna meðan á því verki stendur. Í lýsingu Reykjavíkurborgar á að breyta kaflanum frá Hlemmi að Snorrabraut úr bílagötu í svæði með gróðri, setsvæðum, hjólastæðum og óformlegum leikrýmum. „Stálprófíll sem rís og hnígur er leiðandi þáttur á þessum kafla en í honum er einnig falin óbein lýsing á völdum svæðumog afmarkar hann þjónustuleiðir í götu- rýminu,“ segir í lýsingunni. Myndaður úr náttúrusteini Smíði stálprófílsins verður væntan- lega lokið fyrir næsta sumar og hann þá settur upp. Yfirborð götunnar, snák- urinn svonefndi, verður myndað með náttúrusteini. Snákurinn á að afmarka þjónustuleiðir í göturýminu. Sömuleið- ismunhannþjóna hlutverki blágrænna ofanvatnslausna. Sólarmegin á Lauga- veginum er gert ráð fyrir að veitinga- staðir geti vaxið út í göngurýmið. Verktaki við jarðvegsframkvæmd- ir er Alma Verk ehf. Fyrirtækið átti lægsta tilboð í verkið, tæpar 190millj- ónir króna. Alls bárust sjö tilboð í verkið. lHluta Laugavegar breytt í varanlega göngugötulStálprófíll sem rís og hnígur verður leiðandi þáttur Samiðumstálvirkið áSnákinn Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Morgunblaðið/sisi Snákurinn Búið er að endurnýja lagnir á Laugavegi neðan Hlemms. Steyptur hefur verið stokkur eftir götunni. Mikið er um öndunarfærasýk- ingar af völdum mismunandi veira. Inflúensan og RS-veiran eru fyrr á ferðinni en venjulega. „Eins og spáð hefur verið stefnir í að þennan fyrsta vetur án sótt- varnaaðgerða vegna COVID-19 leggist árstíðabundnar öndunar- færasýkingar af fullum þunga á landsmenn,“ segir í frétt embættis landlæknis. Alls greindust 112 manns með staðfesta inflúensu hér á landi í vikum 40-46 (3. október–20. nóv- ember). Það eru talsvert fleiri en á sama tíma undanfarin ár. Árlega inflúensan gengur venjulega yfir frá október eða nóvember og fram í mars eða apríl. Af fyrrgreindum 112 sem greindust nú með inflú- ensu voru 80 með inflúensustofn A (H1) og 30 með stofn A (H3). Tveir voru með inflúensu A án nánari tilgreiningar. „Inflúensan er algengust í aldurshópnum 0-4 ára og hjá 65 ára og eldri, saman- borið við aðra aldurshópa. Flestir hafa greinst á höfuðborgarsvæð- inu en inflúensan hefur verið stað- fest í öllum landshlutum. Staðfest inflúensa er þegar tekið er sýni úr öndunarvegi og greining er gerð á rannsóknarstofu,“ segir í fréttinni. Fjöldi þeirra sem hafa greinst með COVID-19 undanfarnar vikur hefur verið nokkuð stöðugur. Að meðaltali hafa greinst um 220 einstaklingar á viku. Hlutfall jákvæðra sýna af heildarfjölda er 30%-40% sem er hátt og bendir til mikillar útbreiðslu í samfélaginu. Í fréttinni segir að fari fjöldi jákvæðra sýna yfir 5% sé talið að dreifing í samfélagi sé meiri en sýnataka gefur til kynna. Flest- ir greinast með Omicron BA.5 afbrigðið og undirafbrigði þess. Þeim hefur þó fjölgað undanfarið sem greinast með Omicron BA.2 og undirafbrigði þess. RS-veirusýking (Respiratory Syncytial) hefur verið staðfest hjá 79 manns í október og það sem af er nóvember og hefur farið vaxandi frá viku til viku. Auk þess er mikið um greiningar á öðrum öndunarfæraveirum, s.s. Rhinoveiru, Adenoveiru, kórónuveirum, öðrum en SARS- CoV-2 (COVID-19), og Human Metapneumóveiru (hMPV). Alls lögðust 104 einstaklingar inn á Landspítala vegna stað- festrar inflúensu, COVID-19 eða RS-veirusýkingar frá 2. október til 20. nóvember. Flestir vegna COVID-19 eða 58 einstaklingar, 31 vegna RS og 15 vegna inflúensu. Innlagnir eru algengastar í elstu aldurshópunum vegna COVID-19 og inflúensu en í yngstu aldurs- hópunum vegna RS-veiru. Fjöldi innlagna vegna þessara sjúkdóma hefur aukist á síðustu 3 vikum að sögn landlæknisembættisins. Inflúensan kom snemma vetrar Uppsafnaður fjöldi greindra inflúensutifella 750 500 250 0 Eftir vikum almanaksárs: Veturinn 2017-18 2018-19 2019-20 2020-21 2021-22 32 36 40 44 48 52 4 8 12 16 20 24 Heimild: Embætti landlæknis 112 einstaklingar hafa greinst með inflúensu hér á landi á síðustu vikum lMikið er umöndunarfærasýkingar lKórónuveirusmit virðist útbreitt Guðni Einarsson gudni@mbl.is Hægðu á þér! Umferðarskilti af öllum stærðum og gerðum. Bannmerki Viðvörunarmerki Bílastæðamerki Einkastæði ATHUGIÐ! Bílastæði eingöngu ætluð starfsmönnum og gestum skólanna frá 07:30 - 17:00 Óviðkomandi bílar verða fjarlægðir Skilti BSV S:5514000 Boðmerki Xprent ehf. | Sundaborg 3 | 104 Reykjavík | 555 65 00 | xprent@xprent.is Morgunblaðið/Eggert Réttlæti Fulltrúar ÖBÍ með alþingismönnum í Alþingishúsinu í gær. Færðu þingmönnum gjöf Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður ÖBÍ réttindasamtaka, og formenn og starfsmennmál- efnahópa bandalagsins færðu al- þingismönnum gjöf í þinghúsinu í gær tilefni af alþjóðadegi fatlaðs fólks þann 3. desember. Þingmenn fengu húfur áletrað- ar með orðinu Réttlæti. Í ávarpi hvatti Þuríður Harpa til þess að samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks verði lögfestur hið fyrsta. Samkvæmt upplýsingum frá ÖBÍ sagði Þuríður Harpa að lögfesting samningsins væri gríðarlega mikilvæg fyrir fatlað fólk vegna þess að þá væru mannréttindi þess tryggð. „Með lögfestingunni verður samfélagið okkar allra,“ sagði hún.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.