Morgunblaðið - 30.11.2022, Síða 8

Morgunblaðið - 30.11.2022, Síða 8
FRÉTTIR Innlent8 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 2022 „Viti menn! Hárlosið minnkaði áður en flaskan tæmdist“. - Tinna Miljevic RENEW 1 msk á dag fyrir hár, húð og neglur Leigusamningumfækkaðium17% lSamningum um leigu íbúðarhúsnæðis hefur fækkað umtalsvert að undanförnu Heildarfjöldi þinglýstra leigusamn- inga á landinu öllu var alls 564 í síð- asta mánuði. Þeim fækkaði um 17% frá því í septembermánuði og hefur fækkað um 26% frá októbermánuði á seinasta ári. Ef eingöngu er litið á fjölda leigu- samninga á höfuðborgarsvæðinu kemur í ljós að þeir voru alls 375 í síðasta mánuði og fækkaði þeim um 20% frá því í september síðastliðnum og hefur einnig fækkað um 29% frá október 2021. Þessar upplýsingar koma fram í nýrri samantekt Húsnæðis- og mann- virkjastofnunar yfir fjölda þinglýstra leigusamninga um íbúðarhúsnæði eftir landshlutum í síðasta mánuði. Af yfirliti HMS má sjá að þinglýstir leigusamningar um íbúðir á landinu öllu hafa ekki verið færri en nú í októbermánuði frá árinu 2007 þegar þeir voru 141 talsins. Í október á ár- inu 2020 voru þeir 881 og 773 í sama mánuði á árinu á undan. Fram kom í mánaðarskýrslu HMS, sem birt var í seinustu viku, að hækk- anir leiguverðs á húsnæðismarkaðin- um eru enn nokkuð hóflegar miðað við vísitölu leiguverðs fyrir október og að á síðustu 12 mánuðum hefur leiga hækkað um 8,4%. „Meðalleiga á mánuði var 220.100 kr. í nýjum þing- lýstum leigusamningum í október á höfuðborgarsvæðinu og hafði hækkað um 8.500 kr. á síðustu 6 mánuðum,“ sagði m.a. í mánaðarskýrslu HMS. Morgunblaðið/Eggert Reykjavík Leigusamningum fækk- aði um 29% frá október í fyrra. Þarf að verja mál- frelsið og fullveldið Það er sótt að málfrelsinu og það þarf að verja, segir Arnar Þór Jónsson, lögmaður og varaþing- maður. Hann bendir á hvernig ýmis persónuréttindi hafi verið látin víkja á dögum farsóttar og þar hafi einnig verið vegið að málfrelsi. Arnar Þór er í viðtali í Dagmálum Morgunblaðsins, streymi á netinu, sem opið er öllum áskrifendum. Þar nefnir hann m.a. dæmi um þingmann sem fór með staðlausa stafi í ræðustól á Alþingi gegn betri vitund, án þess að það hefði neinar afleiðingar. Hann ræðir einnig fullveldi landsins á viðsjárverðum tímum, en á morgun er einmitt fullveldis- dagurinn 1. desember. Hans verður m.a. minnst á fundi hjá Fullveldisfé- laginu, sem haldinn verður í Valhöll, Háaleitisbraut 1, á morgun kl. 17, en Arnar Þór er formaður þess. Morgunblaðið/Ágúst Óliver Dagmál Pólitísk umræða í landinu er gölluð og oft ábyrgðarlaus, segir Arnar Þór Jónsson, lögmaður og varaþingmaður, í viðtali í Dagmálum. STAKSTEINAR Ljómandi lekar og hræðilega vondir Páll Vilhjálmsson bendir á „að eftir að myndbandi af hópslagsmálum var lekið af lögreglu voru viðbrögð snör. Fjölmiðlar, RÚV sérstak- lega, nánast kröfðust rannsóknar á lekanum. Málið kært, upplýst og refsað á einni viku. Ívor varð uppvís leki úr lands- rétti í tengslum við RSK-saka- málið. Tilfallandi blogg fjallaði um málið 24. maí: Engin fordæmi eru fyrir því að starfsmaður landsréttar leki trúnaðargögnum, staðfestir Gunnar Viðar skrifstofustjóri landsréttar í Fréttablaðinu. En einmitt það gerðist í vor þegar gögnum var lekið í RÚV, Stund- ina og Kjarnann, RSK-miðla. Gögnin varða lögreglurannsókn á byrlun og gagnastuldi þar sem fjórir blaðamenn RSK-miðla eru sakborningar. Viðtakandi lekans var Gunnar Ingi Jóhannsson lögmaður sem óðara kom gögnunum til Þórðar Snæs Júlíussonar ritstjóra Kjarnans. Gunnar Ingi sýndi af sér hegðun sem illa samræmist starfsregl- um lögmanna. Engir fjölmiðlar gera kröfu um að upplýst verði um lekann úr landsrétti. Lekinn var í þágu blaðamanna RSK- miðla. Er það svo að hagsmunir fjölmiðla ráða ferðinni þegar yfirvöld ákveða hvaða leka réttarkerfisins skuli rannsaka og hvenær leki er hið besta mál?“ Páll Vilhjálmsson Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni www.mbl.is/mogginn/leidarar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.