Morgunblaðið - 30.11.2022, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 30.11.2022, Blaðsíða 18
Minningar MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 2022 Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar .Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. .Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. .Smíðum gestahús – margar útfærslur. .Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. .Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Ýmislegt Sandblástursfilmur Bílar Sá vinsælasti. MMC Eclipse Cross phev Intense +. Árgerð 2022. Nýtt ökutæki Bensín/Rafmagn, sjálfskiptur. Forhitun á miðstöð. Verð 6.590.000. Rnr. 140471. Aukahlutapakki að upphæð kr. 360.000,- fylgir með, sem inniheldur: Dráttarkrók, gúmmí- mottur, sumar- og vetrardekk. Gráir og svartir í boði. Seljandi skoðar skipti á ódýrari. Nánari upplýsingar veita Höfðabílar ehf. í síma 577-4747 2022 óekinn Ford Transit Custom langur 6 manna Þetta er vinnuflokkabíll með vöru- rými fyrir aftan 2. sætaröð. Nú er hægt að taka mannskapinn með á einum bíl. Til afhendingar strax. Verð: 6.250.000 án vsk. www.sparibill.is Hátúni 6 A – sími 577 3344. Opið kl. 10–18 virka daga. Húsviðhald Hreinsa þakrennur fyrir veturinn og tek að mér ýmis smærri verkefni. Uppl. í síma 847 8704 manninn@hotmail.com Auglýsing um skipulagsmál í Rangárþingi eystra Samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru auglýstar eftirfarandi tillögur að deiliskipulagi í Rangárþingi eystra. Skíðbakki – Deiliskipulagstillaga Deiliskipulagið nær til um 1,9 ha landspildu úr Skíðbakka 1. Heimilt er að byggja allt að 250 m2 íbúðarhús með hámarksmænishæð 8,0 m, 50 m2 gestahús með hámarksmænishæð 5,0 m og allt að 300 m2 skemmu með hámarksmænishæð 8,0 m. Rimakot – Deiliskipulagstillaga Um er að ræða nýtt deiliskipulag fyrir tengivirki á lóðinni Rimakot L163918 í Austur Landeyjum. Gert er ráð fyrir viðbyggingu við núverandi spennistöð og er heildarbyggingarmagn lóðarinnar allt að 600 m2. Hæð bygginga er allt að 8,0 m m.v. gólfkóta. Skeggjastaðir land 10 – Deiliskipulagstillaga Um er að ræða tillögu að deiliskipulagi á spildunni Skeggjastaðir land 10 L194252. Gert er ráð fyrir íbúðarhúsi, allt að 200 m2 að stærð, skemmu allt að 200 m2 að stærð og hesthúsi allt að 200 m2 að stærð. Skeggjastaðir land 18 – Deiliskipulagstillaga Um er að ræða tillögu að deiliskipulagi á lóðinni Skeggjastaðir land 18 L199781. Gert er ráð fyrir að núverandi frístundahúsi, sem er ca 60 m2 að stærð, verði breytt í íbúðarhús. Á lóðinni er auk þess 21 m2 geymsluskúr. Gert ráð fyrir mögulegri stækkun á núverandi húsum, um allt að 60 m2. Heildarstærð lóðarinnar er 1803 m2. Ofangreindar deiliskipulagstillögur er hægt að skoða á heimasíðu Rangárþings eystra, www.hvolsvollur.is og á skrifstofu skipulags- og byggingarfulltrúa frá 30. nóvember nk. Hverjum þeim sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemd við tillögurnar, og er frestur til að skila inn athugasemdum til 11. janúar nk. Athugasemdum skal skila skriflega á skrifstofu skipulags- og byggingarfulltrúa Rangárþings eystra, Austurvegi 4, 860 Hvolsvelli. F.h. Rangárþings eystra Guðmundur Úlfar Gíslason Skipulags- og byggingarfulltrúi Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi 40 Kl. 9 opin vinnustofa, kl.12.15 jóga með Grétu Sörens, kl. 13.45 söngstund Helgu Gunnars, allir velkomnir, kl. 15 bókaspjall með Katrínu, í dag eru gestir hennar GuðniTh. Jóhannes- son forseti Íslands og Einar Kárason. Hvetjum ykkur til að koma að hlusta og njóta. Árskógum 4 Smíðastofa með leiðbeinanda kl. 9-14. Stóladans kl. 10. Hlúum að geðheilsunni kl. 10.30. Félagsráðsfundur kl. 14. Bónus-bíll- inn fer frá Árskógum 6-8 kl. 12.45. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Kaffi- sala kl. 14.45-15.30. Allir velkomnir. Sími 411-2600. Boðinn Miðvikudagur 30. nóvember: Handavinnustofa opin frá kl. 12.30-15. Sundlaugin opin til kl. 16. Breiðholtskirkja Eldri borgara starf ,,Maður er manns gaman" alla miðvikudaga kl. 13.15. Byrjum með kyrrðarstund í kirkjunni kl. 12 og eftir stundina er farið í safnaðarheimilið í súpu og brauð og dagskrá þar á eftir. Allir hjartanlega velkomnir. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffisopi og spjall kl. 8.30-11. Morgunleikfimi með Halldóru á RÚV kl. 9.45-10. Línudans kl. 10-11. Hádegismatur kl. 11.30-12.30.Tálgað með Valdóri kl. 12.30-15.30. Heimaleikfimi á RÚV kl. 13-13.10. Síðdegiskaffi kl. 14.30-15.30. Garðabær Kl 9pool-hópur í Jónshúsi, kl. 9-12 leðurhópur í Smiðju, kl. 10 ganga frá Jónshúsi, kl. 11 stóla-jóga í Kirkjuhvoli, kl. 10.30 skák og scrabble í Jónshúsi, kl. 12.30-15.40 brids, kl. 11 stóla-jóga í Sjá- landsskóla, kl. 13 ganga frá Smiðju, kl. 13-16 leirlist í Smiðju, kl. 13.45-15.15 kaffiveitingar í Jónshúsi, kl. 15 / 15.40 / 16.20 vatnsleik- fimi í Sjálandsskóla, kl. 16.30 Zumba Gold í Kirkjuhvoli. Gerðuberg Opin vinnustofa í Búkollulaut frá kl. 8.30, heitt á könn- unni. Memm fjölskyldustund kl. 10-12. Félagsvist frá kl. 13–16.Tafl- félag / chess club kl. 19– 21. Allir velkomnir. Gjábakki Opin handavinnustofa og verkstæði kl. 8.30-11.30. Botsía opinn tími kl. 10-11.15. Opin handavinnustofa kl. 13-16. Félagsvist kl. 13-15. Postulínsmálun kl. 13-15.30. Gullsmári Myndlist kl. 9. Postulínsmálun kl. 13. Kvennabrids kl. 13. Handavinna í matsal kl. 13.Tölvunámskeið kl. 9.30. (ANDROID) kl. 13 (APPLE). Hraunsel Billjard kl. 8-16. Stóla-jóga kl. 10. Línudans kl. 11. Bingó kl. 13. Handverk kl. 13. Gaflarakórinn kl. 16. Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá kl. 8.30-10.30. Fram- haldssaga kl. 10. Betra jafnvægi, námskeið kl. 10.45. Handavinna, opin vinnustofa kl. 13-16. Brids kl. 13. ,,Steinn Steinarr ogTímans þræðir" í umsjá Hinriks Bjarnasonar kl. 13.30. Hádegismatur kl. 11.30– 12:30, panta þarf fyrir hádegi deginum áður. Korpúlfar Borgum Gönguhópar frá Borgum og inni í Egilshöll kl. 10, tveir styrkleikaflokkar svo að allir finna göngu við sitt hæfi. Félags- fundur Korpúlfa kl. 13. Sigrún Huld Þorgrímsdóttir með fræðslu og kórinn syngur. Gestir úr félagsmiðstöðinni í Hraunbæ mæta. Qi-gong kl. 16.30. Gleðin býr í Borgum. Samfélagshúsið Vitatorgi Kaffispjall í setustofu kl. 9-10. Postulíns- málun í handverksstofu kl. 9-12. Myndlist í handverksstofu kl. 13- 16.30. Hinn sívinsæli dansleikur með Vitatorgsbandinu er svo á sínum stað frá kl. 14-15. og síðdegiskaffið. Allar nánari upplýsingar í síma 411 9450. Allir hjartanlega velkomnir til okkar :) Seltjarnarnes Leir á Skólabraut kl. 9. Kaffikrókur frá kl. 9.30. Botsía kl. 10. Billjard Selinu kl. 10. Gler á neðri hæð félagsheimilis kl. 13. Timburmenn Valhúsaskóla kl. 13. Handavinna, jólaföndur í salnum á Skólabraut kl. 13. Á morgun, fimmtudag, verður félagsvist í salnum kl. 13.30. Vinsamlega skráið ykkur sem fyrst í sameiginlega jólaljósa- ferð með Aflagranda sem farin verður fimmtudaginn 8. desember kl. 17, komið við í Ráðagerði. alltaf - alstaðar mbl.is FINNA.is Rað- og smáauglýsingar „Komdu sæll frændi“ – kynnti Gummi Golli eða Golli föðurbróðir minn sig alltaf þeg- ar hann hringdi. Tilefnið gat verið margs konar – stundum bara spjall eða brýnt erindi! Ég heyrði fyrst af Golla heima hjá Stínu ömmu og Hall- dóri afa en sá hann fyrst í fjöl- skylduheimsókn í Bolungarvík. Alvöru kynni okkar verða þegar hann hringir og spyr hvort ég geti hjálpað Dæju sem er með óskiljanlegan verk í fætinum. Sú hjálp endaði með aðgerð. Ég bauð Golla í matsalinn. Hann varð mjög framlágur svo ég spurði hvort honum liði illa. „Nei, ég verð bara svo stress- aður að sjá allt þetta fólk borða og hlaupandi fram og til baka; ég vildi frekar liggja fyrir ból- færum og láta sjóinn rugga mér í svefn.“ Aftur lágu leiðir okkar saman þegar Dæja veiktist í aðdrag- anda banalegu sinnar. Golli þurfti að fá nánari skýringu á meðferðinni og bað mig að vera með þegar sérfræðingurinn kæmi á stofugang. Læknirinn hóf mál sitt á hverju við mætti búast samanber nýjustu tölur í amerísku læknablaði. Golli hlustaði gaumgæfilega og spurði svo: „Hvernig er þá útlitið hjá Dæju sem er frá Drangsnesi?“ Það lenti á mér að svara, því læknirinn strunsaði út! Í þriðja skiptið hafði Golli dottið niður á gólf í geymslu- húsnæði sínu en var ekki talinn alvarlega brotinn. Hann hringdi nokkru seinna og sagðist tals- vert verkjaður en það sem verra væri – „ég get varla opnað munninn og það eru að koma jól“. Ný myndataka sýndi að höfuðið og kjálkinn voru sezt of- an á bringubeinið. Ég átti von á Guðmundur Halldórsson ✝ Guðmundur Halldórsson fæddist 21. janúar 1933. Hann lést 30. júní 2022. Útför hans fór fram 9. júlí 2022. sjúkraflugi, en allt í einu birtist hann hangandi utan á Ólafi Bjarna syni sínum og gat varla staðið vegna mátt- leysis. Golli var strax réttur við með höfuðstrekk, en hreyfði hvorki legg né lið þegar hann vaknaði. Í annarri aðgerð var stórt brjósklos „fiskað“ út og liðurinn festur. Í endurhæfing- unni nýtti hann frásagnarlist sína og mærði allt og alla þannig að starfsfólkið hringsnerist kringum hann. Það skemmdi ekki frásögnina að hafa flogið suður með höfuðið undir hand- leggnum. Golli hafði ekki aðeins verið fiskinn á sjónum, heldur líka á mál sem þurfti að leysa – í gær. Hann byrjaði alltaf á að þakka fyrir liðið – síðan komu vanda- málin. Hann spurði alltaf hvern- ig gengi hjá börnunum og til að stytta tímann sagði ég, „takk – allt í lagi“, en þá gekk hann á línuna frá Ingu og svo koll af kolli. Hann staldraði alltaf við Helén sem hafði límt saman neðri góminn sem brotnaði í vaski, en „passaði nú miklu bet- ur“; einnig Davíð Guðna sem fæddist á 60 ára afmæli hans 1993. Það kom ekki á óvart að heyra að Golli hefði dottið og ekki getað gert viðvart þar sem hann skildi hnappinn eftir á stofuborðinu. Hann hafði sagt það áður, að hann skildi ekki al- veg tilgang neyðarhnappsins, því hann ræsti bara út slökkvilið og ekki sjúkrabíl. Golli fékk á sig marga „lík- amlega brotsjói“ sem hann stóð af sér, nema þann síðasta. Þann 30. júní sl. varð honum að ósk sinni – „þetta var komið gott“ og hann bara sofnaði – endanlega! Ég kveð kæran og tryggan frænda. Fjölskyldu og ættingj- um votta ég dýpstu samúð með kveðjum frá mér og fjölskyld- unni! Halldór Jónsson jr. Elsku Sirrý, að þú skulir vera far- in í sumarlandið er erfitt að sætta sig við. Við stjórnum ekki öllu um okkar ferðalag á þessari jörðu, það sannaðist þegar Gunnar maðurinn minn og bróðir þinn fórst í flugslysi 1987. Þá vorum við nýbúin að eiga góðan dag á Þingvöllum í fallegu umhverfi með fjölskyld- um okkar og voru það okkur dýrmætar minningar. Hann og Birna systir þín taka eflaust á móti þér með trega ásamt for- eldrum ykkar. Þrátt fyrir að Gunnar hafi látist áttum við fleiri fjöl- skyldustundir, m.a. héldum við sameiginlegar bæði fermingar- og stúdentsveislu Ásu Dagnýj- ar og Hlyns. Stórfjölskyldan átti svo margar minningarstundir sam- an um áramót þegar krakkarn- ir voru lítil og síðar jólaboðin. Áttræðisafmæli foreldra þinna Sigríður Kristinsdóttir ✝ Sigríður Krist- insdóttir fædd- ist 6. mars 1943. Hún lést 12. nóv- ember 2022. Útför hennar fór fram 23. nóvember 2022. sem var haldið í bústað málara- meistara á Vogi á Snæfellsnesi er einnig eftirminni- legt, alltaf var gít- arinn með, slegið á létta strengi og án undantekninga var sungið fram eftir kvöldi (nóttu) og oftar en ekki „Vem kan segla“ ásamt fleiri lögum. Við geymum næsta samsöng þar til síðar, kæra Sirrý. Hver siglir byrlaust um hafið hratt hver getur róið án ára, hver getur vininn sinn vænsta kvatt og varist grátinum sára. (Vem kan segla förutan vind? Vem kan ro utan åror? Vem kan skiljas från vännen sin Utan att falla tårar? (Daniel Fischer o.fl.) Við Ása Dagný sendum Torfa, sonum ykkar, systkinum og fjölskyldum þeirra allra innilegar samúðarkveðjur, guð veri með þeim og styðji á þess- um erfiðu tímum. Þín mágkona, Kolbrún Jónsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.