Morgunblaðið - 30.11.2022, Síða 20

Morgunblaðið - 30.11.2022, Síða 20
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 2022 DÆGRADVÖL20 Láttu okkur sjá um jólabaksturinn! Ásta Laufey Sigurðardóttir, fyrrverandi féhirðir í Landsbankanum á Hvolsvelli – 60 ára Unnið ötullega að íþróttastarfi Á sta Laufey Sigurðar- dóttir er fædd 30. nóvember 1962 á sjúkrahúsinu á Selfossi og ólst upp á Þórunúpi í Hvolhreppi þar sem heitir nú Rangárþing eystra. Ásta gekk í barnaskólann sem og gagnfræðaskólann á Hvolsvelli, hafði tveggja ára viðdvöl í Fjöl- brautaskólanum í Breiðholti og gekk síðan í Hótel- og veitingaskóla Íslands þaðan sem hún útskrifaðist sem matreiðslumaður. „Eftir námið fluttum við hjónin á Eskifjörð og bjuggum þar í fjögur ár þar starfaði ég í Landsbankan- um. Þar hófst einnig aðkoma mín að íþrótta- og æskulýðsstarfi. Við hjónin komum af stað handbolta- æfingum fyrir börn á aldrinum 6-7 ára. Einnig spilaði ég blak með öldungaliði Austra þar til við flutt- um þaðan. Þangað lá leið okkar suður og bjuggum við hjónin í Skógum í rúm tvö ár þar til að við fundum loks okkar hillu á Hvolsvelli og höfum við búið þar síðustu 27 árin.“ Á Hvolsvelli starfaði Ásta fyrst í íþróttamiðstöðinni og svo í Landsbankanum. Heildarstarfs- aldur hennar í bankanum var 25 ár og lauk hún störfum þar árið 2018. Síðan þá hefur Ásta verið heimavinnandi. Ásta hefur tekið þátt í starfi Íþróttafélagsins Dímonar á Hvolsvelli í yfir 20 ár bæði sem gjaldkeri og formaður félagsins. „Við maðurinn minn fundum sam- eiginlegan áhuga fyrir íþrótta- og æskulýðsstarfi og höfðum gaman af því að hjálpa til við að byggja upp íþróttastarfið og sjá það eflast. Skemmtilegast fannst mér þó að fylgjast með börnunum í leik og starfi og sjá þau þroskast og dafna í sinni grein. Við hjónin vorum einnig með íþróttaskóla á Hvolsvelli fyrir börn á aldrinum 4-6 ára í yfir 15 ár. Einnig var ég þjálfari í borðtennis- deild félagsins um árabil og var einn af stofnfélögum hennar. Ég hef einnig setið í varastjórn HSK.“ Meðan Ásta bjó í Skógum sat hún í sveitarstjórn Austur-Eyja- fjallahrepps og einnig í stjórn ungmennafélagsins þar. Árið 2013 fékk Ásta Silfurmerki ÍSÍ fyrir góð störf í þágu íþrótta- hreyfingarinnar fyrir að hafa um árabil verið helsti burðarás í kröft- ugu starfi Íþróttafélagsins Dímonar. Á hátíðarhöldum vegna 17. júní árið 2021 á Hvolsvelli fengu þau hjónin sérstaka heiðursviðurkenningu vegna framlags þeirra til íþrótta- og æskulýðsmála í sveitarfélaginu fyrir að hafa unnið ötullega að íþrótta- starfi barna og ungmenna í Rangár- þingi eystra og verið óþreytandi í að gefa tíma þeirra til þessara málefna. „Mitt helsta áhugamál er út- saumur og fatasaumur og hef ég Fjölskyldan Ásta og Ólafur ásamt börnum og tengdabörnum í brúðkaupi Heiðrúnar og Péturs 27.6. 2020. Heiðursviðurkenning Hjónin heiðruð 17. júní 2021. Hjónin Ólafur Elí og Ásta Laufey um síðustu jól. Til hamingju með daginn Stjörnuspá Haraldur Páll Þórsson 30 ÁRA Haraldur ólst upp í Brúarhlíð í Blöndudal, A-Hún., en býr í Miðengi í Grímsnesi. Hann er vélstjóramenntaður og vinnur sem bifvélavirki á Bifreiðarverkstæðinu Kletti á Selfossi. Haraldur er í hjálp- arsveitinni Tintron og áhugamálin eru hestar, kindur, almennt sveitalíf og jeppar. „Við vorum að taka við fjárbúskapnum í Miðengi.“ FJÖLSKYLDA Eiginkona Haraldar er Sigríður Þorbjörnsdóttir, f. 1990, deildarstjóri í leikskólanum Kerhóls- skóla. Synir þeirra: Guðmundur Þór, f. 6.2. 2021, d. 7.3. 2021, og Guðni Þór, f. 2022. Þau eiga einnig von á barni 27. janúar 2023. Sonur Haraldar er Ragnar Viðar, f. 2017 og stjúpsynir hans og synir Sigríðar eru Þorbjörn Óðinn, f. 2013, og Halldór Rafn, f. 2015. Foreldrar Haraldar eru hjónin Þór Sævarsson, f. 1969, vaktstjóri í Olís í Varmahlíð, og Guðmunda Sigrún Guðmundsdóttir, f. 1972, vinnur við ræstingar og í mötu- neyti hjá Landsvirkjun í Blöndustöð. Þau eru búsett í Brúarhlíð. Nýr borgari Miðengi, Grímsnesi Guðni Þór Haraldsson fæddist 24. febrúar 2022 kl. 06.11 í Reykjavík. Hann vó 2.804 g og var 47 cm langur. Foreldrar hans eru Haraldur Páll Þórsson og Sigríður Þorbjörns- dóttir. 21. mars - 19. apríl A Hrútur Þú hefur komið þér vel fyrir og mátt þess vegna gefa þér tíma til að njóta ávaxtanna af erfiði þínu. Skoðaðu stöðuna vandlega áður en þú ákveður að breyta til. 20. apríl - 20. maí B Naut Skipulagning er allt sem þarf til að þú getir klárað þau verkefni sem bíða þín. Misstu ekki móðinn þótt eitthvað fari úrskeiðis. 21. maí - 20. júní C Tvíburar Talaðu við álíka skapandi fólk um hugmyndir þínar – sérstaklega þær sem tengjast sviðum þar sem þú þekkir lítt til. Glaðværð þín smitar frá sér. 21. júní - 22. júlí D Krabbi Það er gott að þekkja sín eigin takmörk og þá ekki síður að virða þau þegar á það reynir. Vertu óhræddur við að sækja kraft í sjálfan þig. 23. júlí - 22. ágúst E Ljón Þú heldur að hegðun ótilgreinds ástvinar sé fyrirsjáanleg en hann á eftir að koma þér á óvart. Mundu að samstarf byggist á tillitssemi. 23. ágúst - 22. september F Meyja Misklíð innan fjölskyldunnar eða ósætti við viðskiptafélaga mun draga dilk á eftir sér. Einhver sem leitar sterkt á huga þinn þarf á þér að halda. 23. september - 22. október G Vog Eitthvað úr fortíðinni eða eitthvað sem tengist fólki sem er langt í burtu frá þér er ofarlega í huga þér. Þú getur lært mikið á því að skiptast á skoðunum við vin þinn. 23. október - 21. nóvember H Sporðdreki Láttu ekki aðra verða til þess að þú lokir þínar tilfinningar inni. Leyfðu málunum að jafna sig áður en þú ræðir þau við félaga þinn. 22. nóvember - 21. desember I Bogmaður Tækifærin bíða þín í hrönnum ef þú aðeins opnar augun og ert tilbúinn til þess að vinna með öðrum.Trúðu á þig. 22. desember - 19. janúar J Steingeit Þú getur fundið lausnir á þeim vandamálum sem upp koma í vinnunni. Þú ættir að ná takmarki þínu, þar sem þú leggur svo hart að þér. 20. janúar - 18. febrúar K Vatnsberi Það er sama hvað þú ert að glíma við, þú ert örugglega ekki eina manneskjan sem reynir það. Fólk leitar til þín til að fá góð ráð. 19. febrúar - 20. mars L Fiskar Þú munt eyða tíma á erlendri grundu sem reynist þér síður en svo þægi- legt. Reyndu að draga úr spennu með því að sýna þolinmæði og bíta á jaxlinn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.