Morgunblaðið - 30.11.2022, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 2022
DÆGRADVÖL 21
Kletthálsi 11 - Sími 511 0000 - bilalind.is
Verð 16.200.000
11/2021, Módelár 2022,
ekinn 16 þ.km,
sjálfskipting, dísel
FORD F350 PLATINUMTREMOR
án vsk.
Gjafaaskja fá Ferðaeyjunni
„Gisting og Konfekt“ að
verðmæti 33.800 kr. fylgir með.
mikið dálæti á því að sitja við góða
handavinnu. Ég hef saumað út ófá-
ar myndir, dúka og klukkustrengi
og hef einnig saumað þjóðbúninga á
bæði mig og börnin mín þrjú. Þessa
dagana dunda ég mér einnig við það
að sauma föt á barnabörnin.
Ég hef einnig mikinn áhuga á
útivist og því að ferðast innan-
lands. Skemmtilegast finnst mér
að komast í góða fjallaferð inn á
Emstrur með foreldrum mínum og
fjölskyldu.“
Fjölskylda
Eiginmaður Ástu er Ólafur Elí
Magnússon, f. 29.1. 1961, kennari við
Hvolsskóla í Rangárþingi eystra.
Foreldrar hans eru hjónin Magnús
Borgar Eyjólfsson, f. 19.5. 1940,
og Ástrún Svala Óskarsdóttir, f.
30.6. 1941, fyrrverandi bændur á
Hrútafelli, Austur-Eyjafjöllum.
Börn Ástu og Ólafs eru 1) Fanney
Björk Ólafsdóttir, f. 25.5. 1991,
viðskiptafræðingur. Eiginmaður
hennar Hlynur Magnússon, f. 20.9.
1987, vélvirki. Börn þeirra eru Rakel
Ösp, f. 2012 og Magnús Elí, f. 2014;
2) Heiðrún Helga Ólafsdóttir, f.
19.12. 1992, kennari. Eiginmaður
hennar er Pétur Logi Pétursson,
f. 12.1. 1996, tölvunarfræðingur.
Sonur þeirra er Pétur Óli, f. 2020;
3) Sigurður Borgar Ólafsson, f. 23.8.
1995, framreiðslumeistari. Hann er í
sambúð með Kristínu Rut Arnar-
dóttur, f. 24.7. 1996, sjúkraþjálfara-
nema. Dóttir þeirra er Ásta Laufey,
f. 2020.
Systkini Ástu eru Sigurlín Sig-
urðardóttir, f. 25.3. 1958, búsett á
Hvolsvelli; Baldur Þór Sigurðsson,
f. 6.5. 1964, búsettur á Hvolsvelli;
Guðbjörg Sigurðardóttir, f. 18.8.
1967, búsett á Hvolsvelli; Erla
Berglind Sigurðardóttir, f. 15.1. 1975,
búsett á Laugalandi í Holtum, og
Aðalheiður Sigurðardóttir, f. 20.5.
1977, búsett á Hvolsvelli.
Foreldrar Ástu eru hjónin Helga
Baldursdóttir, f. 3.10. 1935, og
Sigurður Sigurþórsson, f. 8.8. 1937,
fyrrverandi bændur á Þórunúpi
í Hvolhreppi. Þau eru búsett á
Hvolsvelli.
Ásta Laufey
Sigurðardóttir
Sæmundur Jónsson
bóndi á Þorleifsstöðum
Guðbjörg Sigurðardóttir
húsfreyja á Þorleifsstöðum
Sigurþór Sæmundsson
bóndi á Þorleifsstöðum og á Þórunúpi
Ásta Laufey Gunnarsdóttir
bóndi á Þorleifsstöðum á
Rangárvöllum og Þórunúpi
Sigurður Sigurþórsson
fv. bóndi á Þórunúpi
Gunnar Gíslason
sjómaður í Reykjavík
Ingibjörg Gísladóttir
húsfreyja í Reykjavík
Guðmundur Bjarnason
hafnarverkamaður í Rvík
Amalía Hjörtfríður Elísdóttir
húsfreyja í Reykjavík
Baldur Guðmundsson
verkamaður í Reykjavík
Sigurlín Jónsdóttir
verkakona í Reykjavík
Jón Jóhann Kristjánsson
bóndi á Vindási
Jónína Guðrún Jónsdóttir
húsfreyja á Vindási í Eyrarsveit
Ætt Ástu Laufeyjar Sigurðardóttur
Helga Baldursdóttir
fv. bóndi á Þórunúpi í Hvolhreppi
Vísnahorn
Skrítið hellublað
Niðurlagið á pósti Baldurs Haf-
stað er svohljóðandi:
„Sigurður Sigmundsson bætti
þessari sögu við bréf sitt og sýnir
hún að Sigurður Vigfússon gat vitað
fyrir fram hvaða orð myndu hrjóta
af vörum eins af sveitungum sínum
við gefnar aðstæður:
Einu sinni þegar bygging Markar-
fljótsbrúar og varnargarðanna sem
henni tengdust stóð yfir (1930-1934)
var Sigurður Vigfússon ásamt
mörgum sveitungum sínum að
vinna í Dímonargarðinum og fann í
grjótinu sem var lagt á garðinn litla
hellu sem var skringileg í laginu.
Sagði hann við þá sem næstir stóðu:
„Ég ætla að sýna honum Erlendi
helluna.“ (Erlendur var sérstakur
karl sem bjó smáu en góðu búi í
Hamragörðum.) Sigurður rétti
helluna að Erlendi og sagði:
Hér er skrítið hellublað,
(Erlendur svaraði:)
helvíti er að sjá það.
(Sigurður vissi hvað Lindi myndi
segja og var búinn að botna:)
Erlendur vill eiga það
en ekki skal hann fá það.“
Þorvaldur Andrésson skrifar
á Boðnarmjöð: „Þorvaldur Jón
Andrésson heiti ég og er að læra
kveðskap af fullum krafti. Faðir
minn heitir Andrés Björnsson og er
frá Gilsárvelli (Borgarfirði eystra).
Það er alltaf verið að segja að við
Andrés séum líkir:
Enga hef ég öðlast synd,
ef til vill ég kem af fjöllum.
Talin er ég eftirmynd
afAndrési frá Gilsárvöllum.
Indriði Aðalsteinsson svarar:
Enga hef ég öðlast synd
alltaf kem af fjöllum.
Talin er ég eftirmynd
afAndrési fráVöllum.
„Enn og aftur“ segir Davíð Hjálm-
ar Haraldsson:
Rjúpnaskyttan rápar löngum
rammvillt mitt um fjalla geim.
Eins og lúið lamb í göngum
loks er flutt á vagni heim.
Hólmfríður Bjartmarsdóttir spyr:
„Já er þetta ekki svona?“:
Skyttur iðni og ákefð sýna
áttum jafnt og slóðum týna.
En fuglinn hlær og fer í skjólin
að fagna því að lifa jólin.
Pétur Stefánsson yrkir á sunnu-
dagsmorgni:
Ekki gatmig Bakkus blekkt,
bjórsins ei ég sakna.
Æ hve það er yndislegt
óþunnur að vakna.
„OG ER EITTHVAÐ SEM ÞÚ SÉRÐ
EFTIR?“
„EKKI TRÚA EINU EINASTA ORÐI SEM
HANN SEGIR, MAMMA.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að gera eitthvað
sérstakt á hverjum
degi.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
KNÚSÁMINNING
MIKILVÆGU HLUTIRNIR
ÞURFA SINN TÍMA
ÞÚ ÁTT AFMÆLI Á MORGUN!
HVAÐ VILL EIGINKONA SEM Á
ALLT FÁ?
ALLT ENDURNÝJAÐ!
HRIF S!
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is