Morgunblaðið - 30.11.2022, Page 23
NBA-deildin
Philadelphia – Atlanta......................... 104:101
Washington – Minnesota .................... 142:127
Boston – Charlotte .............................. 140:105
Brooklyn – Orlando............................. 109:102
Toronto – Cleveland............................. 100:88
New Orleans – Oklahoma City.......... 105:100
Denver – Houston................................. 129:113
Utah – Chicago...................................... 107:114
Sacramento – Phoenix ......................... 117:122
LA Lakers – Indiana ............................. 115:116
Efstu lið í Austurdeild:
Boston 17/4, Milwaukee 14/5, Cleveland 13/8,
Indiana 12/8, Philadelphia 12/9, Toronto 11/9,
Washington 11/10, Atlanta 11/10.
Efstu lið í Vesturdeild:
Phoenix 14/6, Denver 13/7, NewOrleans 12/8,
Memphis 12/8, LA Clippers 12/9, Portland
11/9, Sacramento 10/9, Golden State 11/10.
ÍÞRÓTTIR 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 2022
Finnskur
bakvörður til KR
KR-ingar hafa fengið til liðs við
sig finnska körfuknattleiks-
manninn Aapeli Alanen og
tefla honum væntanlega fram
í mikilvægum leik gegn ÍR á
fimmtudagskvöldið. Alanen er 26
ára skotbakvörður, 2,01 metrar á
hæð. Hann hefur leikið nær allan
ferilinn í finnsku úrvalsdeildinni,
síðast með Kataja frá 2019 til
2021, en hann spilaði síðasta
tímabil með SKN St. Pölten í
Austurríki. Alanen á að baki leiki
með finnska landsliðinu.
Ljósmynd/Katajabasket
KR-ingur Aapeli Alanen er kominn
til liðs við Vesturbæinga.
Aron til liðs
við Framara
Knattspyrnumaðurinn Aron
Jóhannsson er genginn til liðs við
Framara og hefur samið við þá til
tveggja ára. Aron er 28 ára og var
fyrirliði Grindvíkinga á síðasta
tímabili sem var hans fimmta
með Suðurnesjaliðinu. Fram að
því lék hannmeð Haukum. Aron
á að baki 43 leiki í úrvalsdeildinni
og hefur skorað 7 mörk, þar sem
hann lék einn leik með Haukum
16 ára 2010, en hina með Grinda-
vík. Þá hefur hann spilað 181 leik í
1. deildinni og skorað 31 mark.
Ljósmynd/Kristinn Steinn
Fram Aron Jóhannsson hefur leikið
með Grindvíkingum í fimm ár.
Lokakaflinn erfiður í Aix
Morgunblaðið/Eggert
Erfitt Lokakaflinn í Frakklandi var erfiður fyrir Magnús Óla Magnússon
og félaga í Íslands- og bikarmeistaraliði Vals. Næsti leikur er í Búdapest.
lMisstu sterkt liðAix frá sér í lokinl
Mikilvægur leikur í Búdapest næst
EVRÓPUDEILDIN
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
Íslands- og bikarmeistarar Vals
máttu þola þriggja marka tap,
29:32, er liðið heimsótti franska
liðið Aix í B-riðli Evrópudeildar
karla í handbolta í gærkvöldi. Aix
hafnaði í þriðja sæti frönsku 1.
deildarinnar á síðustu leiktíð og
er með gríðarlega sterka leikmenn
innan sinna raða. Valur þarf því
ekki að skammast sín fyrir tapið,
en möguleikarnir á að ná í sigur
voru til staðar.
Stiven Tobar Valencia kom Val
fjórum mörkum yfir, 24:20, á 43.
mínútu og voru áhorfendur í Aix
í hálfgerðu áfalli. Þá hrökk hins
vegar allt í baklás hjá Valsliðinu.
Aix sýndi gæðin sem búa í liðinu og
sneri taflinu sér í vil.
Gríðarlega sterkir leikmenn
Á meðal leikmanna franska
liðsins eru franski landsliðsmað-
urinn Romain Lagarde og spænski
landsliðsmaðurinn Ian Tarrafeta.
Þeir hafa verið skæðir með tveimur
af bestu landsliðum heims undan-
farin ár. Lagarde varð til að mynda
ólympíumeistari með Frökkum
í Tókýó og Tarrafeta var hluti af
spænska liðinu sem náði í silfur
á EM í janúar. Þá hefur William
Accambray unnið fimm gullverð-
laun á stórmótum með Frakklandi.
Valsmenn voru því ekki að kljást
við neina aukvisa í gær. Að lokum
var Valsliðinu refsað fyrir lítil mis-
tök og heimamenn voru klókari.
Lítil atriði í lokin
Það voru lítil atriði sem skildu
liðin að í gær. Í lokin urðu sóknir
Valsmanna flóknari og erfiðara
gekk að finna glufur á sterkri vörn
Aix-manna. Ákvarðanatökur Vals
voru ekki upp á tíu og fyrir vikið
varði Alejandro Romero nokkra
bolta í markinu. Sóknarmenn
Aix voru fljótir að refsa hinum
megin og Björgvin Páll Gústavsson
varði ekki eins vel, en hann varði
nokkrum sinnum stórkostlega í
fyrri hálfleik. Tjörvi Týr Gíslason
var ekki með á lokakaflanum, þar
sem hann fékk þrjár brottvísanir og
þar með rautt spjald á 45. mínútu.
Var því álagið á öðrum leik-
mönnum enn meira og atvinnu-
mannaliðið Aix átti meira eftir á
tankinum. Þá hefði Valur þurft
að fá meira frá Benedikt Gunnari
Óskarssyni og Magnúsi Óla Magn-
ússyni.
Það var hins vegar margt jákvætt
hjá Val, þrátt fyrir tapið. Arnór
Snær Óskarsson lék enn og aftur
vel og er hann á meðal markahæstu
manna í keppninni. Stiven heldur
áfram að gera góða hluti í vinstra
horninu og varnarleikurinn var
flottur á stórum köflum. Þá varði
Björgvin Páll nokkrum sinnum
virkilega vel, sérstaklega í fyrri
hálfleik.
Valur lék vel í gær, en til að vinna
lið eins og Aix hefðu meistararn-
ir þurft að spila stórkostlega.
Einhverjir óttuðust að Valur yrði
svokallað fallbyssufóður í riðlinum,
gegn nokkrum af sterkustu liðum
álfunnar, en svo hefur alls ekki
verið. Valur hefur unnið tvo leiki af
fjórum og staðið í gríðarlega sterk-
um liðum í Flensburg og Aix.
Valsmenn eru í þriðja sæti
riðilsins með fjögur stig og virðist
liðið ætla að berjast um þriðja og
fjórða sætið. Ferencváros er einnig
í þeirri baráttu og bíður Valsmanna
því mikilvægur leikur í Búdapest á
þriðjudag eftir viku.
Góð og slæmúrslit
fyrirValsmenn
Sænsku meistararnir í Ystad unnu
óvæntan 30:26-heimasigur á þýska
stórliðinu Flensburg í B-riðli Vals í
Evrópudeild karla í handbolta í gær.
Tapið var það fyrsta hjá Flensburg
í keppninni, á meðan Ystad jafnaði
Valsmenn á stigum með sigrinum.
Bæði lið eru með fjögur stig.
Úrslitin voru ekki sérlega hag-
stæð fyrir Val, því Ystad er með
jafnmörg stig og Íslandsmeist-
ararnir, í staðinn fyrir að vera
tveimur stigum á eftir. Teitur Örn
Einarsson komst ekki á blað hjá
Flensburg í gær.
Úrslitin í Búdapest, er Ferencvá-
ros og Benidorm mættust, voru
öllu hagstæðari fyrir Val. Benidorm
vann 33:32-sigur og náði í sín fyrstu
stig í riðlinum. Bæði lið eru nú með
tvö stig, tveimur minna en Valur.
Fjögur efstu liðin fara áfram og
virðast Flensburg og Aix ætla að
berjast um tvö efstu sætin og Valur,
Ystad, Ferencváros og Benidorm að
berjast um þriðja og fjórða sæti.
Morgunblaðið/Eggert
Tap Teitur Örn Einarsson og félagar í Flensburg máttu þola tap í gær.
Verðmiðinn hækkar
með hverjum leik
Hinn 23 ára gamli Cody Gakpo
hefur stolið senunni á HM í fót-
bolta í Katar, en hann skoraði sitt
þriðja mark á mótinu í öruggum
2:0-sigri Hollands á gestgjöfun-
um í gær. Gakpo hefur nýtt færin
sín á mótinu afar vel og skorað úr
öllum þremur tilraunum sínum
til þessa. Eitt með skalla, eitt með
vinstri fæti og annað með hægri
fæti.
Hann er fjórði Hollendingurinn
til að skora í þremur leikjum í röð
á lokamóti HM. Johan Neeskens
afrekaði slíkt árið 1974, Dennis
Bergkamp árið 1994 ogWesley
Sneijder 2010. Gakpo er sá eini
sem hefur skorað í fyrstu þremur
leikjum sínum á lokamótinu.
Þrátt fyrir að hafa stolið
senunni á sjálfu heimsmeistara-
mótinu leikur Gakpo ennmeð
uppeldisfélagi sínu PSV í heima-
landinu. Þar lék hann fyrsta
aðalliðsleikinn árið 2018. Hann
hefur vaxið með hverju tímabili.
Tímabilið 2020/21 skoraði hann
sjö deildarmörk og svo tólf mörk
á síðustu leiktíð. Þá skoraði
Gakpo níu mörk í fjórtán leikjum
í deildinni á yfirstandandi leiktíð,
áður en hann hélt til Katar.
Fyrir vikið hefur hann verið
orðaður við félög í ensku úrvals-
deildinni. Southampton og Leeds
slógust um hann í lok síðasta
félagaskiptaglugga, en hvorugu
félagi tókst að fá hann til að
yfirgefa heimahagana. Stórliðið
Manchester United ku vera
fremst í kapphlaupinu um Gakpo
um þessar mundir og ætlar fé-
lagið sér að kaupa Hollendinginn
strax í janúar. Ljóst er að verð-
miðinn hækkar með hverjum leik
sem hann leikur á HM.
AFP/Karim Jaafar
Þrjú Cody Gakpo hefur skorað þrjú
mörk úr þremur tilraunum á HM.
Vinstri bakvörðurinn Alex Sandro
missir af leik Brasilíu gegn Kamerún
í riðlakeppni heimsmeistaramótsins
í fótbolta vegna meiðsla í mjöðm.
Brasilíumenn verða því án þriggja leik-
manna í leiknum en Neymar og Danilo
eru báðir frá vegna ökklameiðsla.
Vonast er til að allir þrír verði tilbúnir í
slaginn í 16-liða úrslitum keppninnar.
Athygli vakti aðMarcus Rash-
ford benti til himins eftir að hann
skoraði mörk sín gegnWales í 3:0 sigri
Englendinga á heimsmeistaramótinu í
fótbolta í Katar í gærkvöld. „Ég missti
góðan vin fyrir nokkrum dögum en
hann hafði átt í langri baráttu við
krabbamein. Ég er ánægður með að
hafa skorað mörkin fyrir hann, hann
var mikill stuðningsmaður minn og
góður vinur,“ sagði Rashford.
Njarðvíkingar hafa náð sér í Bras-
ilíumann til að styrkja lið sitt fyrir
keppnina í 1. deild karla í fótbolta á
næsta keppnistímabili. Hann heitir
Joao Ananias, er 31 árs gamall varnar-
tengiliður og hefur lengst af spilað í
hinum ýmsu neðri deildum í Brasilíu.
Hann lék á síðasta tímabili með Bylis í
B-deildinni í Albaníu.
Kolo Touré, fyrrverandi leikmaður
Arsenal, Liverpool og Manchester City,
er orðinn knattspyrnustjóri enska
B-deildarfélagsinsWigan. Hann tók við
af Leam Richardson sem var rekinn
fyrr í þessummánuði.Wigan er í þriðja
neðsta sæti deildarinnar, fallsæti.
Stjórn ítalska knattspyrnufélagsins
Juventus hefur sagt af sér eins og hún
leggur sig. Ámeðal stjórnarmanna
sem sögðu af sér eru Andrea Agnelli
forseti og Pavel Nedved varafor-
seti. Juventus hefur sætt rannsókn
saksóknara í Tórínó vegna ásakana
um bókhaldssvindl og grunsamlegs
háttalags þegar kemur að kaupum og
lánum á leikmönnum á undanförnum
árum. Félagið tapaði 254 milljónum
evra á síðasta ári, sem er met hjá
knattspyrnufélagi á Ítalíu.
Alþjóðaknattspyrnusambandið,
FIFA, staðfesti í gær að Bruno
Fernandes hefði skorað fyrra mark
Portúgals gegn Úrúgvæ í 2:0-sigrin-
um á HM í Katar í
yrrakvöld, ekki
Cristiano Rona-
ldo. Ný tækni í
keppnisboltan-
um frá Adidas
gat skorið úr um
hvort Ronaldo
hefði snert
hann og FIFA
tilkynnti að haf-
ið væri yfir vafa
að snertingin
hefði ekki átt
sér stað.
f