Skátakveðjan - 01.12.1940, Blaðsíða 16

Skátakveðjan - 01.12.1940, Blaðsíða 16
14 SKÁTAKVEÐJAN Smælki. Skátaforinginn: Hefurðu nú glatt nokkurn í dag, Óli minn? ÓIi: Já, foringi, ég heimsótti hana frænku mína, hún verður alltaf svo feginn, þegar ég fer. * Jón: Mér sýndist þú leiða ókunn- uga stúlku í gær. Hefirðu fengið þér nýja kærustu? Siggi: Nei, þetta var gamla kærast- an min, en hún var nýmáluð! * „Ég held, að þér munið hafa þetta af“, sagði læknir nokkur við sjúk- ling sinn, „en þér eruð mjög alvar- lega veikur.“ „Góði læknir,“ sagði sjúklingur- inn, „gerið allt, sem þér getið, til að hjarga lifi mínu. Ef mér batnar, skal ég gefa 50 þúsund krónur til nýja spítalans.“ Nokkrum mánuðum síðar rakst læknirinn á þenna fyrrverandi sjúk- ling sinn á götunni. „Hvernig er heilsan?“ sagði hann. „O, alveg ágæt,“ svaraði maðurinn. „Ég hefi verið að hugsa um það að undanförnu,“ sagði læknirinn, „að ná tali af vður. Það var viðvíkjandi peningunum, sem þér lofuðuð að gefa nýja spítalanum. „Fyrirgefið," sagði maðurinn, „ég skil ekki, hvað þér eigið við.“ „Þér sögðuð, að ef yður batnaði, mynduð þér gefa 50 þúsund krónur til nýja spítalans,“ sagði læknirinn, Maðurinn setti upp undrunarsvip: „Sagði ég þetta? Mikið hlýt ég að liafa verið veikur!“ * „Ég lejdi mér að biðja uin hönd dóttur yðar.“ „Hm. Drekkið þér, ungi maður?“ „Þakka yður fyrir. En ættum, við ekki að útkljá liitt f}'rst?“ ¥ Þau börn eru lánsöm, sem eiga ekki of strangan föður og ekki of eftirláta móður. ¥ Menntun eru þau áhrif lærdómsins, er eftir verða i hverjum manni, þeg- ar liann er búinn að glevma öllu því, sem hann hefir lært. ¥ Winston Churchill uni skátahrevf- inguna: Margar virðulegar, frægar stofnan- ir og kerfi, sem lengi höfðu notið virðingar manna, hrundu í hamför- um heimsstyrjaldarinnar. En skáta- hreyfingin stóðst ekki einungis storma hennar, lieldur og alla þá upplausn og ringulreið, sem sigldi i kjölfar hennar. Kjörorð skátanna hefir aldrei haft dýpri þýðingu en einmitt nú. Það brýnir fyrir hverj- um manni að gæta skyldu sinnar og heiðurs: „Vertu viðbúinn“ til að verja sannleikann og réttlætið, hvað sem á dynur. Pélagsprentsmiðjan h.f.

x

Skátakveðjan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skátakveðjan
https://timarit.is/publication/1760

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.