Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.12.2022, Side 10

Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.12.2022, Side 10
10 JÓLASÖGUR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25.12.2022 Fékk prumputæk með fjarstýringu Albert Eiríksson, matar- bloggari og aðstoðar- skólastjóri, á alltaf kökudeig í ísskápnum. Hvað kemur þér í jólaskap? Ljúf og þægileg jólalög, en það er samt ágætt að byrja ekki of snemma að hlusta á jólalögin. Alla aðventuna er jólalagalist- inn á Spotify uppfærður og betrumbættur eins og hægt er. Smákökubaksturinn er stór hluti af jólastemningunni. Þótt tegundum hjá okkur hafi fækkað með árunum þá er alltaf nota- legt að baka. Við eigum oftast nokkrar tegundir af smáköku- deigi í ísskápnum, rúllað upp í lengjur. Köllum þetta jóladrjóla. Þægilegt að skera niður og baka ef einhver „rekur inn nefið“. Hver eru eftirminni- legustu jólin? Jólin á Kanarí aldamótaárið eru okkar eftirminnilegustu jól. Við vorum mjög vel undirbúnir til að halda alvöru íslensk jól í sólinni og hitanum. Tókum með okkur hangikjöt, grænar baunir, malt og appelsín, jólaseríu og síðast en ekki síst útvarpsmess- una á kassettu – meira að segja þögnin á undan bjölluslættinum klukkan 18 var tekin upp. Þrátt fyrir að leggja okkur alla fram náðist ekki að taka s inguna með okkur. Þ svo margt sem gerir inguna eins og við þe um hana best; kuldin myrkrið og asinn svo eitthvað sé nefnt. Sagan um þessi „rammíslensku jól“ okkar á Kanarí hefur glatt marga vini okkar og er reglulega rifjuð upp. Hver er sniðugasta jóla- gjöf sem þú hefur fengið? Prumputæki með fjarstýringu. Gefandinn rifjar stoltur upp að þetta var eitt það fyrsta sem hann pantaði á netinu, það er svo langt síðan. Prumputækið er hið vandaðasta og er enn í góðu lagi. Börn sem koma í heimsókn nota það óspart og það vekur alltaf mikla kátínu hjá ungum sem öldnum. Hvernig verða jólin í ár? Hefðbundið jólahald eins og hægt er, hvíld og notalegheit. Hjá okkur er hefðin að það þarf ekki að vera það sama í matinn ár eftir ár. Núna fengum við að gjöf vænt heimareykt læri af feitum sauð og ætlum að njóta þess ásamt fleira góðgæti um hátíðina. ALBERT EIRÍKSSON Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Loksins heima um jólin Haraldur Þorleifsson, frumkvöðull og stofn- andi Ueno, er kominn í jólaskap. Hvað kemur þér í jólaskap? Við fjölskyldan höfum verið svo mikið á flakki undanfarin ár að það hafa eiginlega allar hefðir fokið. En við verðum loksins á Íslandi þetta árið og það er komið upp tré og skraut og syni mínum finnst gaman að syngja Snjókorn falla með mér. Við vorum líka að setja saman lítil piparkökuhús en límið hélt mínu húsi ekki alveg nógu vel saman þannig að ég þurfti að borða það. Hver eru eftirminnilegustu jólin? Afi minn kom í mat til okkar þegar ég var unglingur. Hann var mjög rólegur og ljúfur maður. Ég var hins vegar mjög spenntur að komast í að opna pakkana eins hratt og ég mögulega gat. Þetta endaði þannig að við vorum búin að borða, vaska upp og opna pakkana at ennþá við borðið að klára matinn sinn. er sniðugasta jólagjöf sem efur fengið? r ég var tíu ára fékk ég fjarstýrðan bíl í jóla- á mömmu. Hann var í miklu uppáhaldi og ég hann mikið. Hún dó síðan nokkrum mánuð- einna og þá fannst mér of erfitt að leika mér með hann. En ég átti hann mjög lengi. Hvernig verða jólin í ár? Við verðum á Íslandi, allar framkvæmdir á heim- ilinu náðu að klárast fyrir jól þannig að við erum orðin mjög spennt að komast í frí og slappa af saman, án þess að búa með iðnaðarmönnum. Þeir eru allir afskaplega næs en það verður fínt að vera bara við fjölskyldan. Við borðum hátíðarkjúkling með pabba og konunni hans, opnum svo nokkra pakka og horfum kannski á smá bíó. HARALDUR ÞORLEIFSSON Morgunblaðið/Eggert Coloorbox Jólin, jólin alls staðar Sex landsþekktir Íslendingar segja frá jólahaldi á ýmsum stöðum, skrítnum og skemmtilegum pökkum og hvað kemur þeim í jólaskap. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Himneskur friður jólanna ÁRELÍA EYDÍS GUÐMUNDSDÓTTIR Borgarfulltrúinn Árelía Eydís Guðmundsdóttir býst við miklu fjöri á aðfangadagskvöld. Hvað kemur þér í jólaskap? Þegar ljósin fara að kvikna eitt og eitt í myrkrinu í lok nóvember og hillir undir jólapróf fer ég að komast í jólastuð. Hið sanna hátíðarskap hins vegar er þegar hinn himneski friður jólanna kviknar innra með mér þegar kirkjubjöllur klingja klukkan sex á aðfangadag. Hver eru eftirminnilegustu jólin? Fáklædd fjölskyldan að sötra kampavín á ströndinni í Ástralíu undir heitri sól á aðfangadag (þau yngstu fengu ekki kampavín skal tekið fram) er líklega óvana- legasta jólaminning okkar hingað til. Hver er sniðugasta gjöf sem þú hefur fengið? Ég elskaði jólaskrautsgjafir barnaminna þegar þau voru lítil, þær voru bestar. Kannski ekki fegurstar en bestar. Ég og Kristín systir mín heitin gáfum hvor annarri „kærasta“-pakka þegar enginn var kærastinn í gamla daga og það gat verið ýmislegt skemmtilegt og skrýtið. Hvernig verða jólin í ár? Jólin í ár verða bæði fjölmenn og blátt áfram dásam- leg. Börnin, barnabarn, tengdasonur og foreldrar hans, foreldrar mínir og bróðir minn og hans fjölskylda. Það má ekki bregða út af vananum í matargerð: ham- borgarhryggur, steikt hvítkál, brúnaðar kartöflur, græn- ar baunir og rauðkál, malt og appelsín. Mamma kemur með frómas og tengdasonurinn með heimagerðan ís og í ár bætist við eplasalat frá Birgittu. Ég mun vera í stressi á síðustu stundu fram að mat, skipa krökkunum óþolinmóð fyrir og öskra á köttinn og þýt svo upp og set á mig varalit áður en gestir koma rétt fyrir kvöldmat. Klukkan 18 mun allt falla í dúnalogn og allir verða sestir niður þegar blessun hátíðarinnar leggst yfir okkur. Morgunblaðið/Eggert i temn- að er stemn- kkj- n, og afi s Hver þú h Þega gjöf fr notaði um s

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.