Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.12.2022, Page 12

Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.12.2022, Page 12
12 JÓLASÖGUR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25.12.2022 halda áfram að reyna að prófa sem mest af þessum yndislega mat og drykk sem er í boði í þessari geggjuðu borg og hlusta á ítölsku jólalögin í bland við þau sem ég þekki fyrir og vera þakklát fyrir hvað ég er heppin. Hér finnur maður bara alls ekki fyrir þessu svokallaða jólastressi. Ekkert jólastress í Flórens Rakel Garðarsdóttir framleiðandi og stofnandi Vakanda ætlar að njóta jólanna í Flórens þar sem hún býr. Hvað kemur þér í jólaskap? Jólalög og jólaljós. Elska lagið Driving home for Christmas. Þegar ég heyri það kemur jólaskapið. Hver eru eftirminnilegustu jólin? Mér finnst öll jól eftirminnileg – þau koma bara og fara eins og allt annað. Ég hef stundum verið erlendis og elska það, það er svo afslappað og næs. Svo elska ég líka að vera á Íslandi og taka þátt í jólahefðum, eins og að spila með fjölskyldunni, borða skötu á Þorláksmessu, fara í messu á jólanótt hjá Karmelsystrum og svo er það hin ómis- sandi lagkaka frá Siggu frænku. Það toppar enginn þá uppskrift. Hver er sniðugasta jólagjöf sem þú hefur fengið? Ég er ekkert svo hlynnt jólagjöfum, mér finnst þau svolítið barn síns tíma. Jólin fyrir mér snúast um eitthvað annað en enda- lausar gjafir. En ef það á að gefa þá er ég hlynntust upplifunargjöfum eða einhverju sem hægt er að borða eða nota eins og sáp- um og kertum. Ég skil vel að gefa börnum pakka um jól en þetta er komið í svo mikið rugl. Allir eru á þönum að reyna að finna bara eitthvað handa þeim sem eiga allt. Ég hef oft fengið sniðugar jólagjafir því þeir sem standa mér næst eru rosalegir snill- ingar í að gefa nytsamlegar gjafir eða gjafir eins og bækur eða íslensk listaverk sem er hægt að finna í dag í öllum verðflokkum. Ég er þó enginn „Grinch“. Ég elska jólin og samveruna og stemninguna sem fylgir þeim en hjá mér skipta pakkarnir bara engu máli. Ég vitna bara í Sif Sigmars og er svo sannarlega sammála henni um að á jólum göngum við á gjafir jarðar sem aldrei fyrr. Í aðdraganda hátíðanna væri okkur hins vegar hollt að muna að lífið er líka takmörk- uð auðlind. Hvernig verða jólin í ár? Í ár verða þau í Flórens á Ítalíu þar sem við búum núna. Við fáum vini okkar í heimsókn og borðum með þeim eitthvað sniðugt á aðfangadag. Hér er aðfangadagur bara venjulegur dagur. Á jóladag munum við borða á Savoy-hótelinu sem ítalska vinkonan mín skipulagði. Það er aðaldagur- inn hér í Flórens og því eiginlega allt lokað hér á jóladag. Ég ætla nú að reyna að finna jólatónleika eða eitthvað hátíðlegt í einni af þessum fallegu kirkjum hér, helst með fallegum barnakór. Annars ætla ég bara að RAKEL GARÐARSDÓTTIR Morgunblaðið/Eggert Braut skíðin nokkrum dögum seinna Þorsteinn Guðmundsson, sálfræðingur og leikari, man vel eftir forláta skíðum sem hann fékk tólf ára gamall í jólagjöf. Hvað kemur þér í jólaskap? Uppáhaldsjólaplatan mín er með Nat King Cole, ég set hana yfirleitt á fóninn að minnsta kosti einu sinni á ári. Mér finnst líka gaman að kveikja í greni; það gefur lykt sem maður finnur bara í kringum jólin. Ég elska líka Sigga Guðmunds, Valdimar og svo er Helga Möller jóladrottningin fyrir mér. Hver eru eftirminnilegustu jólin? Ég á almenntmjög góðarminningar af jólun- um. Jólaboðin hjá afa og ömmu eruminnisstæð. Þau byrjuðumeð því að við fórum á jólaball í Útvarpinu á Skúlagötu, fengumnammipoka, löbbuðum svo saman í snjónum á Laufásveginn þar sem við fluttummeðal annars heimatilbúin leikrit eftir ömmu, yfirleitt um smala, lamb og álf- konu. Ein jólin steig ég á pall með Siggu frænku og Steina frænda semRíó tríóið og við fluttum Arídú arídúradei. Ég veit ekki hvort ég sagði þeim frá því en í huganumþá var égHelgi Péturs, sem, án þess aðmóðga neinn, var svalastur. Hver er sniðugasta jólagjöf sem þú hefur fengið? Held að Elan-skíðin (úr slóvensku Ölpunum) sem ég fékk þegar ég var 12 ára sé jólagjöfin sem hefur glatt mig mest og hef ég þó fengið margar góðar gjafir. Þetta voru mjög flott skíði og ég einhvern veginn upplifði að ég væri svona 30% flottari að eiga þau. Ég var ekkert sérstaklega mikið á skíðum á þessum árum og braut þau á heimatilbúnu stökkbretti nokkrum dögum seinna en minningin lifir um þetta kærkomna stöðutákn. Hvernig verða jólin í ár? Nú höldum við fyrstu jólin okkar í Hafnar- firði sem er auðvitað hinn opinberi jólabær landsins (og reyndar líka víkingabærinn, álfa- bærinn og er hann ekki frægur fyrir að þar búa flestir vitleysingar landsins, samanber Hafnfirðingabrandarana?). Við erum fast- heldin á hefðirnar og erum með möndlugraut með viðeigandi verðlaunum fyrir þann sem finnur möndluna, reyktan lax með aspas (sem gefur pissinu manns mjög undarlega lykt, en mér skilst að sýran í aspasinum brotni niður í brennistein í meltingunni), hamborgarhrygg með viðeigandi meðlæti og franska súkkulaði- köku í eftirrétt. Þá stendur maður yfirleitt á blístri og þarf að taka langa pásu áður en við treystum okkur í að opna pakkana. Geggjað stuð. ÞORSTEINN GUÐMUNDSSON Morgunblaðið/Eggert Uppþvottabursti í jólagjöf Söngkonan Sigrún Hjálmtýsdóttir, ávallt kölluð Diddú, elskar að dunda sér í eldhúsinu á aðfangadag. Hvað kemur þér í jólaskap? Það sem mér finnst notalegast þegar aðventan nálgast eru æfingarnar sem fylgja öllum jólatónleikunum. Þá fer um mann hlý endurminning um hvað í vændum er. Svo að sjálfsögðu þegar ilmurinn úr eldhúsinu leggst yfir allt við smákökubaksturinn. Hver eru eftirminnilegustu jólin? Við bjuggum nokkur ár erlendis á námsár- unum, bæði í Englandi og svo á Ítalíu. Jólin voru þá eðlilega með öðrum hætti en þegar við héldum þau heima á Íslandi í hefðbundnum faðmi fjölskyldunnar. Þegar við vorum á Ítalíu með tvíburana tveggja ára áttum við okkar fyrstu jól sem fjölskylda, án allra á Íslandi. Við reyndum að apa upp eftir ítölskum venjum, en gjarnan er borðaður fiskur eða kjúklingur á þeirra eina hátíðisdegi. Hátíðin þeirra er nefni- lega stutt miðað við okkar hefðir. Þá smökkuð- um við panettone í fyrsta sinn. Jammijamm! Hver er sniðugasta jólagjöf sem þú hefur fengið? Við vorum tiltölulega nýflutt í húsið okkar í Dalnum og ég var hörð á því að vilja enga uppþvottavél því útsýnið var svo fallegt við vaskinn. Kelinn gaf mér því forláta uppþvottabursta og uppþvottagrind. Skýr skilaboð það! Hvernig verða jólin í ár? Hefðirnar hér heima verða í háveg- um hafðar í ár. Við fjölskyldan, dæt- ur, tengdasynir og barnabörn, ásamt tengdamömmu, verðum öll hjá okkur í Mosfellsdal á aðfangadag. Ég verð í eldhúsinu allan daginn að nostra við matinn og hlýða á jólakveðjur. Það er ómetanlegur tími. Svo kíkja vinir gjarnan við í sopa og með því upp úr hádegi. Keli minn fer alltaf snemma með gjafir til vina og vandamanna. Við verðum með rjúpur, hamborgarhrygg og veganrétt. Og alls kyns meðlæti sem allir geta gætt sér á. Á jóladag kemur stórfjölskylda Kela saman í pálínuboð, þar sem allir leggja eitthvað á borðið. Eftir matinn er spilað og sungið. Og síðan á annan dag jóla hittumst við sjö systkinin með okkar fjölskyldur, en þegar allir eru á landinu erum við rúmlega fimm- tíu. Þar verður líka pálínuboð, dansað og sungið kringum jólatréð og spilað alvöru bingó! SIGRÚN HJÁLMTÝSDÓTTIR

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.