Vegna viðhaldsvinnu geti verið truflanir á þjónustu Tímarit.is frá 18:00 og fram eftir kvöldi.

Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.12.2022, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.12.2022, Blaðsíða 20
20 JÓLAKVEÐJUR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25.12.2022 og svo er dóttirin Bára sem eignað- ist dreng með svörtum manni. „Hann þykist vera illa við útlendinga en gerir í raun grín að rasisma í gegnum það,“ segir Berg- þór og segist í upphafi hafa leitað að þessum nöfnum í þjóðskrá. „Flest nöfnin eru ekki til,“ segir hann og nefnir enn eina persónuna og setninguna sem hún kemur fyrir í: Ketill Áslákur kom að vestan með bifreið og verður hjá okkur þar til hann fer í aðgerð á Landspítalanum á endaþarmi. Gyllinæðin var á stærð við egg. Ekkert okkar, né nágrannar okkar, hafa séð svona áður,“ segir Bergþór og blaðamaður nær varla andanum fyrir hlátri. Lét blessa söngbuxur Bergþór segist hafa hætt að leita fólksins því honum þykir þetta svo skemmtilegt að hann vill ekki spilla því með því að komast að því hver það er sem skrifar. „Það er alltaf saman rithöndin „Elsku yndislegi stórsöngvari“ Handskrifuð jólakort heyra nánast sögunni til en þó eru einhverjir sem enn gefa sér tíma til að setjast niður og skrifa jólakveðju, setja í umslag og fara með í pósthús. Í nánast öllum tilvikum eru það vinir og vandamenn sem senda slík jólabréf en það á ekki við um bréfin sem birtast inn um lúguna um hver jól hjá Bergþóri Pálssyni, söngvara og skólastjóra. Í sautján ár hefur bréf og jafnvel jólagjöf birst á Þor- láksmessu frá óþekktum einstak- lingi sem rekur í bréfunum sögur af fjölskyldunni; fjölskyldu sem Bergþór kannast ekkert við, enda augljóslega skálduð. Annað sem einkennir bréfin er einlæg aðdáun á söngvaranum með tilheyrandi lofs- yrðum. En gefum Bergþóri orðið. Tuttugu manns í svínarófu Fyrstu jólin sem Bergþór fékk jólabréf var ausið yfir hann lofi. „Fyrsta bréfið kom jólin 2005, þannig að þetta verður átjánda bréfið sem kemur núna. Fyrsta jólakortið byrjaði með jólakveðju og aðdáun. Þar stendur: Elsku yndislegi stórsöngvari Bergþór Pálsson. Hafðu þakkir fyrir fallegan og hjartnæman söng þinn og stóran og hlýjan faðm og kossa á ögurstund. Lof sé honum í allri sinni dýrð. Megi englakór drottins okkar hljóma í höfði þínu þér til dýrðar fyrir góðmennsku þína til handa þeim sem minna mega sín þessa jólahátíð. Emmanúel, lof sé honum. Svo kemur alveg fyrirvara- laust tal um son hans, Bjarna Skúla: Bjarni Skúli kom heim í ágúst og hafði með sér konu sem hann segir vera konu sína. Hún er frá annarri heims- álfu og ber þess greinilega merki. Hún heitir Anisjasínjing, afskaplega stórskorin og ófríð. Móðir hennar er hjá okkur. Hún fer vonandi fljótlega til Asíu aftur. Mæðgurnar elda alltaf og hafa boðið tuttugu manns til okkar í svínarófu á jóladag. Ekki þekki ég þetta fólk og Bjarni Skúli ekki heldur; Guð gefi okkur styrk! Hafðu það sem best um jólin og megi drottinn guð fylla þig hamingju um hátíðina, og konu. Svo strikar hann yfir konu og skrifar „sambýlisfélaga“, en eftir þessi jól stílar hann alltaf bréfin á Bergþór Pálsson og frú,“ segir Bergþór, en eiginmaður Bergþórs er Albert Eiríksson. „Þessi frú er algjört aukaatriði. Eitt sinn stóð utan á pakka: Herra stórsöngvari Íslands, herra Bergþór Pálsson, og frú og í annað sinn stóð: Heyr þú himnasmiður, til hins útvalda Bergþórs Pálssonar, ekki til konu hans,“ segir Bergþór og skellir upp úr. Gylllinæð á stærð við egg Bergþór hefur að vonum stór- gaman af þessum sendingum og bíður spenntur um hver jól eftir að fá fréttir af „fjölskyldunni“. Hann segist gjarnan fá ýmsar veikinda- sögur og jafnvel andlátsfregnir. „Eitt sinn stóð eingöngu: Olga dó í maí. Ég veit ekkert hver það er,“ segir hann og segir oft sömu nöfn koma fyrir, en synir sendandans heita Bjarni Skúli, Hörður Grettir Persónuleg jólakort og jafnvel gjafir hafa borist söngvaranum Bergþóri Pálssyni í tæpa tvo áratugi frá ókunnugum sendanda. Bergþór bíður spenntur um hver jól eftir jólabréfinu góða. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Bréfin eru öll handskrifuð og oft nokkuð löng. Ein jólin fékk Bergþór þessar buxur sem búið var að blessa í Taílandi.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.