Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.12.2022, Side 28
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25.12.2022
LESBÓK
Stal ekki hljóðnema
AFP/Mike Windle
Justin Hawk-
ins með eigin
hljóðnema.
LEYST Aursletturnar gengu yfir Justin Hawkins,
söngvara The Darkness, eftir að hann virtist storma
á svið og rífa hljóðnemann af sjálfum Brian Johnson,
söngvara AC/DC, í miðjum flutningi hans á klassík-
inni Back in Black á minningartónleikunum um
Taylor Hawkins, trymbil Foo Fighters, í Lundúnum
í haust. Nú liggur loks fyrir hvernig málið er vaxið
en Johnson skýrði það út í viðtali í útvarpsþættin-
um Trunk NationWith Eddie Trunk á dögunum.
Hawkins, sem er mikill AC/DC-maður, átti sumsé
að koma á svið og syngja annað versið en var svo
yfirspenntur að hann gleymdi sínum hljóðnema og
þurfti því að fá hljóðnema Johnsons lánaðan. Morgunblaðið/Eggert
Venjulegt fólk
heldur að sjálf-
sögðu hátíðleg jól.
JÓLASJÓNVARP Íslenskt efni verður fyrir-
ferðarmikið í dagskrá sjónvarpsstöðvanna í
kvöld, jóladagskvöld. Stöð 2 byrjar á Allra síð-
ustu veiðiferðinni, þar sem sjálfum forsætisráð-
herra er boðið í veiðiferð
vinahópsins. Þar á eftir
kemur stórmyndin Everest
eftir Baltasar Kormák. RÚV sýnir
Þorpið í bakgarðinum eftir Martein Þórsson sem
fjallar um konu sem kynnist erlendum ferða-
manni á gistiheimili. Sjónvarp Símans býður svo
upp á sérstakan jólaþátt af hinum geysivinsæla
gamanmyndaflokki Venjulegu fólki.
Íslenskt atkvæðamikið í sjónvarpinu
Lét breyta
einu atriði
AFP/Robyn Beck
Jessica Chastain ver sínar persónur.
VÖLD Leikkonan Jessica
Chastain greinir frá því í samtali
við tímaritið Marie Claire að hún
hafi látið breyta atriði í mynda-
flokknum George & Tammy
sem fór fyrir brjóstið á henni.
Flokkurinn fjallar um hjónin og
kántrístjörnurnar George Jones
og TammyWynette og í téðu
atriði var, að mati Chastain, gert
lítið úrWynette, sem hún leikur.
Michael Shannon, sem fer með
hlutverk Jones, mun líka hafa
hagrætt orðalagi í þáttunum,
sem honum þótti of klúrt. Segið
svo að leikarar séu bara viljalaus
verkfæri! Þess ber að vísu að geta
að Chastain er líka einn framleið-
enda George & Tammy.
ÁTT ÞÚ RÉTT Á
SLYSABÓTUM?
Veitum fría ráðgjöf í slysamálum
skadi.is
S. 568 1245 | fyrirspurnir@skadi.is | skadi.is
Grátið út af
börnunum
Árið 1985 komu 40 málmlistamenn saman til að
taka upp lagið Stars til styrktar bágstöddum í
Afríku að fordæmi poppara eins og Band Aid.
Það gekk þó ekki þrautalaust fyrir sig.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Öll þekkjum við lögin Do
They Know It's Christmas
og Hjálpum þeim sem
breska og íslenska popplandsliðið
gáfu út til styrktar langsoltnum og
bágstöddum börnum í Afríku um
miðjan níunda áratug siðustu aldar.
Færri kannast líklega við lagið
Stars sem alþjóðalið málmlista-
manna gaf út um líkt leyti í sama
tilgangi, enda höfðu aðstandendur
þess verkefnis ekki rænu á því að
pakka lagi sínu inn í jólapappír,
þannig að dusta mætti rykið af því
árlega eins lengi og ból byggist, líkt
og hinum tveimur.
Do They Know It's Christmas
með Band Aid-hópnum, sem út kom
fyrir jólin 1984, og bandaríska hjálp-
arlagið, We are the World með USA
for Africa-flokknum, sem leit dags-
ins ljós rúmum þremur mánuðum
síðar, voru upptakturinn að Stars.
Höfundinum, Ronnie James Dio,
ættföður þungarokkara í heimin-
um, þótti hans menn ekki nægi-
lega áberandi í hinum atriðunum
tveimur. Engum sögum fer af því
hvort Dio heitinn heyrði Hjálpum
þeim með Íslensku hjálparsveitinni
nokkru sinni í lifanda lífi en þar fór
frændi hans, Eiríkur Hauksson,
sannarlega mikinn. Íslendingar
alltaf framsæknir og á undan sinni
samtíð.
Dio smalaði sínu liði, um 40
málmhausum, saman seint í maí
1985 í húsakynnum A&M Record
Studios til að hljóðrita lag sem hann
hafði samið ásamt tveimur félögum
AFP/Evan Agostini
Hear 'N Aid-flokkurinn saman kominn framan á plötuumslaginu á sinni tíð.
Skiljið egóið eftir við dyrnar!
Blackie Lawless, forsprakkiW.A.S.P. og góðkunningi Lesbókar,
var meðal þeirra málmlistamanna sem tóku þátt í gerð Stars;
söng bakraddir.Hann rifjaði verkefnið upp í hlaðvarpsþættinum
PaltrocastWith Darren Paltrowitz á dögunum.Að sögn Blackies
hafði upptökustjórinn, Ken Kragen, hengt upp skilti fyrir utan
hljóðverið, þar semWe are theWorld var líka tekið upp,með
áletruninni: „Skiljið egóið eftir við dyrnar!“
„Það er svo undarlegt,“ sagði Black
„skiltið var óþarft. Ef einhver var með
þarna inni, og maður þekkti ansi mar
sást það ekki.Maður auðmýkist nefni
allur þegar maður er innan um svona
mikla hæfileika.“
Og hafi menn verið stífir í byrjun þá
mýktust þeir fljótt upp – enda var
barinn opinn.
ie,
egó
ga, þá
lega
Blackie Lawless missti
ekki af Stars-gigginu.