Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.12.2022, Blaðsíða 32
SUNNUDAGUR 25. DESEMBER 2022
ÞRÍFARARVIKUNNAR
Úlfar Lúðvíksson
sýslumaður
GuðniÁgústsson
rithöfundur
Guðjón Þórðarson
knattspyrnuþjálfari
GAMLA FRÉTTIN
Út úr Koo
Sú heimsfrétt barst frá Bret-
landi laust fyrir jólin 1982 að
bandarísku leikkonunni Koo
Stark, sem fræg var orðin fyrir
samband sitt við Andrés prins,
hefði verið boðið í nýársfagn-
að konungsfjölskyldunnar.
Þetta hafði Morgunblaðið eftir
breska blaðinu Daily Express
á aðfangadag. „Þá skýrði Daily
Mirror frá því í gær, að þau
skötuhjú hefðu átt fjögurra
stunda ástarfund í Bucking-
ham-höll á mánudagskvöld.“
Talsmaður Buckingham-hall-
ar neitaði að staðfesta fregnina,
er hún var borin undir hann,
en vildi heldur ekki bera hana
til baka á þeim forsendum, að
aldrei væri gefið upp opinber-
lega hverjum drottningin byði
í veislur.
„Daily Express [skýrði] frá því,
aðAndrew prins, sem nú er 22
ára gamall og af flestum blöðum
heims talinn eftirsóttasti pipar-
sveinninn sem völ er á, hefði
óskað eftir því að Koo Stark yrði
boðið í nýársfagnaðinn.Blaðið
sagði einnig, að hennar væri von
í lok næstu viku og myndi hún
dveljast eitthvað fram á nýárið
með konungsfjölskyldunni, að
sveitasetri hennar.“
Andrés prins þykir ekki alveg
eins töfrandi í dag.
AFP/Leon Neal
Leikkonan Koo Stark átti um tíma í ástarsambandi við Andrés Bretaprins.
Enginn Jesús á jólunum
Keppni hefst á ný í ensku úrvals-
deildinni á öðrum degi jóla.
Langt rof kom í ensku úrvalsdeildina í knattspyrnu á þessum
vetri vegna einhverrar trúarsamkomu austur í Katar. Nú er
biðin loks á enda og verða leikir á dagskrá nær daglega frá
öðrum degi jóla fram til 5. janúar. Þrjár heilar umferðir, takk
fyrir túkall! Fyrir þá sem ekki muna hvernig stigataflan lítur út
þá er Arsenal nokkuð óvænt með fimm stiga forystu á toppn-
um. Skytturnar fá nágranna sína, Hamrana, það er West Ham,
í heimsókn að kvöldi annars í jólum og þær eru Jesúlausar yfir
hátíðirnar, illu heilli. Gabriel Jesus varð fyrir hnjaski í Katar. Af
öðrum merkilegum leikjum þann dag má nefna að Aston Villa,
með nýbakaðan heimsmeistara, Emi Martínez, innanborðs
tekur á móti Liverpool og Brentford mætir Tottenham. Chelsea
og Manchester United ryskjast af stað á þriðjudaginn, gegn Bo-
urnemouth og Nottingham Forest. Á miðvikudagskvöldið tekur
svo Leeds á móti ríkjandi meisturum, Manchester City.
AFP/Glyn Kirk
Fjarvera Gabriels
Jesus veikir að lík-
indum lið Arsenal.
AFP/Oli Scarff
Hvað ætli Erling Braut Haaland setji mörg mörk
fyrir meistara Manchester City yfir hátíðirnar?
Engin tímamörk á
skiptimiðum frá okkur.
Hafðu það huggulegt
heima um jólin.
Skeifan | Kringlan | Glerártorg | Hafnartorg Gallery | casa.is