Fréttablaðið - 17.01.2023, Qupperneq 2
Playþota bíður eftir að finnast í
blaði dagsins. Fréttablaðið/Ernir
gar@frettabladid.is
leikur Nýr gjafaleikur Play og
Fréttablaðsins sem hófst í blaðinu
á laugardaginn hefur fengið frá-
bærar undirtektir lesenda.
Næstu fjórar vikur eiga lesendur
kost á að vinna fjögur eitt hundrað
þúsund króna gjafabréf frá Play, eitt
í hverri viku. Eina sem þarf að gera
er að finna þotu frá Play sem falin
er einhvers staðar í hverju tölublaði
Fréttablaðsins, skrá sig til leiks og
segja á hvað síðu þotan er.
Mestu möguleikana á vinningi
eiga vitanlega þeir sem finna þot-
una á hverjum degi og eiga þannig
öll svör vikunnar í pottinum þegar
dregið verður úr réttum lausnum.
Minnt er á að þeir sem ekki
komast í prentað eintak af Frétta-
blaðinu geta flett því á vef blaðsins,
frettabladid.is, og þannig fundið
Playþotuna sem gæti orðið lykill að
ferðalagi út í heim. Sjá síðu 17. n
Mikill áhugi á
gjafaleik Play
Gamlir vinir kankast á
Það var létt yfir umhverfiserindrekunum John Kerry og Ólafi Ragnari Grímssyni í gær þegar þeir hittust í Abu Dhabi. Engu er líkara en að Kerry sé reiðubúinn
að berjast við Ólaf – allavega gefa honum gott högg í öxlina. Þeir félagar eru á Heimsþingi hreinnar orku þar í landi en ráðstefnan tekur þrjá daga.
Fréttablaðið/EPa
- einfaldara
getur það
ekki verið!
Guðrún Aspelund sóttvarna-
læknir segir ekki mikið
áhyggjuefni að XBB.1.5 hafi
greinst hér á landi. Afbrigðið
valdi ekki meiri veikindum
en önnur sem í gangi eru en
það sé þó afar smitandi. Ekki
sé hægt að útiloka alvarlegri
afbrigði síðar.
birnadrofn@frettabladid.is
COViD-19 Nýtt undirafbrigði Omík-
ron-af brigðis kórónuveirunnar
hefur greinst hér á Íslandi og um
alla Evrópu.
Af brigðið ber heitið XBB.1.5. og
er samkvæmt sóttvarnastofnun
Evrópu eitt það mest smitandi
hingað til. Guðrún Aspelund sótt-
varnalæknir segir ekki ástæðu til
að vera með sérstakar áhyggjur eða
aðgerðir vegna þess.
„Þetta af brigði hefur ekki breitt
mikið úr sér í Evrópu. Fólk hefur
áhyggjur af því að þetta komi sér
meira undan ofnæmiskerfinu, sé
mjög smitandi, en við höfum ekki
orðið vör við meiri veikindi út af
þessu afbrigði,“ segir Guðrún.
Hún hvetur þó öll, og þá sérstak-
lega þau sem náð hafa 60 ára aldri,
til að fá bólusetningu. „Fólk getur
fylgst með sínum bólusetningum
inni á Heilsuveru og við hvetjum
sérstaklega þau sem eru orðin 60 ára
og eldri til að fara í sprautu þegar
fjórir mánuðir eru liðnir frá síðustu
sprautu á undan,“ segir Guðrún.
Hún hvetur fólk einnig til þess að
fara í PCR-próf ef það hefur fengið
jákvætt heimapróf eða ef grunur er
um Covid-smit. „Þannig fáum við
hugmynd um útbreiðsluna hér og
fáum sýni til að raðgreina,“ segir
Guðrún en með raðgreiningu er
hægt að fylgjast með þeim afbrigð-
um sem greinast hér.
Spurð að því hvort enn sé mögu-
leiki á því að nýtt stökkbreytt
af brigði, sem myndi kalla á hertar
sóttvarnaraðgerðir, geti skotið upp
kollinum segir Guðrún svo vera.
„Okkur finnst enn ástæða til að
fylgjast með þessu og alþjóðlegum
stofnunum finnst það líka, sá mögu-
leiki er alveg til staðar,“ segir hún.
„Við erum auðvitað að vona að
af brigði sem ekki veldur miklum
eða meiri veikindum verði það sem
tekur yfir en hitt er alveg mögulegt,“
bætir hún við.
XBB.1.5. greindist fyrst í norð-
austurhluta Bandaríkjanna og hefur
breiðst hratt út þar. Þann 11. janúar
síðastliðinn hafði afbrigðið greinst
í 38 löndum í heiminum, langflest
tilfellin voru í Bandaríkjunum, yfir
80 prósent þeirra.
Ef grunur leikur á smiti eða ef ein-
staklingar eru með einkenni er hægt
að skrá sig í sýnatöku á Heilsuveru
eða með því að hringja í heilsu-
gæsluna.
Á Íslandi notar heilsugæslan PCR-
eða hraðpróf til að greina Covid og
á vefnum covid.is er tekið fram að
sjálfspróf sem hægt er að kaupa
í búðum séu almennt ekki talin
áreiðanleg, jákvæða niðurstöðu úr
þeim þurfi að staðfesta hjá heilsu-
gæslu. n
Segir enn vera möguleika á
alvarlegra afbrigði Covid
Sóttvarnalæknir hvetur fólk til að fara í bólusetningu, sérlega þau sem eru
orðin 60 ára. Staða bólusetninga er á innri vef Heilsuveru. Fréttablaðið/anton
Guðrún Aspel-
und, sóttvarna-
læknir
benediktboas@frettabladid.is
StjórnSýSla Starfshópur á vegum
dómsmála-, heilbrigðis- og umhverf-
is- og auðlindaráðherra sem átti að
skoða mengun vegna flugelda vildi
skipa annan starfshóp til að vinna
tillögur um fjármögnun björgunar-
sveita.
Jón Gunnarsson dómsmálaráð-
herra hefur tekið ákvörðun um
að skipa ekki annan starfshóp um
málið. Treystir að starfshópurinn
sem var skipaður í janúar árið 2020
geti skilaði tillögum um hvernig
draga megi úr neikvæðum áhrifum
á lýðheilsu og loftgæði vegna meng-
unar af völdum flugelda og vinna
tillögur um fjármögnun björgunar-
sveita.
Þetta kemur fram í svari Jóns við
fyrirspurn frá Andrési Inga Jóns-
syni um aðgerðir vegna mengunar
af völdum skotelda. Að mati Jóns er
mikilvægt að samráð eigi sér stað
áður en teknar eru ákvarðanir sem
gætu haft áhrif á getu björgunar-
sveitanna til að sinna sínum verk-
efnum. Í framhaldi af því verður
tekin afstaða til þeirra tillagna sem
lagðar voru fram og ákvörðun um
næstu skref. n
Starfshópur vildi annan starfshóp
Sala skotelda er langstærsti hluti
fjáröflunar björgunarsveita á Íslandi.
2 fréttir FRÉTTABLAÐIÐ 17. jAnúAR 2023
ÞriÐJUDAGUr