Fréttablaðið - 17.01.2023, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 17.01.2023, Blaðsíða 32
frettabladid.is 550 5000 RitstjóRn ritstjorn@frettabladid.is AuglýsingAdeild auglysingar@frettabladid.is PRentun & dReifing Torg ehf. 2022 - 2025 Á þessum tíma ársins verður mér stundum hugsað til lögfræðingsins sem Ólafía Hrönn hífði á handafl- inu upp á ökklunum svo skotsilfrið rann úr vösunum og klingdi á fjöl- unum, á hápunkti þorrablótsins í Garðabænum. Þorrablótin hófust um helgina sem leið hérna á höfuðborgar- svæðinu. Þorrinn hefst nú samt ekki fyrr en 20. janúar, en það rótar nú ekki í hefðum hér syðra. Þorrablótin vestra eru af öðrum toga en þau sem tíðkast syðra. Því kynntist ég árin sem ég bjó á Vest- fjörðum. Í fámennu og stundum einangruðu samfélagi er nálægðin mikil, hver smábreyting á högum og lífi þorpara á pari við tilkynn- ingarskylda skipulagsbreytingu með grenndarkynningu. Jafnvægið og friðurinn í slíku samfélagi er umfram allt. Í því umhverfi þarf ventil til að hleypa út irringi og pirringi ársins – áhyggjum og afskiptasemi. Þar leikur þorrablótið lykilhlutverk. Í þorrabragnum eru sveitarstjórinn og aðrir leikendur teknir upp á ökklunum; hristir og hæddir með vægðarlausu gríni. Blótið er karni- val fólksins, einu sinni á ári er gert grín að öllu sem má ekki rífast yfir eða skvaldra um í heyrandi hljóði. Svo ekki sé minnst á lillabláar kjaftasögur. Maður lifandi hvað það er hlegið og maður lifandi hvað það er frelsandi. Svo er dansað inn í nótt- ina, við þá sem maður elskar og þá sem maður má ekki elska, þá sem maður þolir ekki og þá sem maður þarf að þola. Þvottekta súrkarnival, það er þorrablót – vestfirskt þorrablót. Það er auðvelt að sakna Vest- fjarða. n Súrkarnivalið Ný og öflug fasteignaleit Finndu réttu eignina fyrir þig á frettabladid.is 1. sætið í ánægju- voginni 6 ár í röðTAKK Bæjarlind 4 Sími: 510 7900 www.fastlind.is DÆMISÖGUR FRÁ VIÐSKIPTAVINUM Jón og Gunna eru ungt par sem keypti sína fyrstu íbúð nýlega. Íbúðin þarfnaðist viðhalds og þau vantaði ný húsgögn, rúm og gardínur. Þau máluðu í búðina, skiptu um gólfefni, tóku baðherbergið í gegn og skiptu um blöndunartæki Þar sem þau voru í viðskiptum við Lind fasteignasölu fékkst 30% afsláttur af öllu því sem þau vanhagaði um. Með vildarkortinu spöruðu þau sér: 687.368 kr. Borgþór og Aníta eru hjón um fimmtugt. Þau keyptu sér gamalt einbýlishús sem þarfnaðist yfirhalningar. Þau tóku húsið meira og minna í gegn, skiptu um öll gólfefni, endur- nýjuðu tvö baðherbergi ásamt því að sparsla og mála allt húsið. Þau settu granítborðplötur í eldhúsið og annað baðherbergið, skiptu svo út öllum gardínum og keyptu sér að lokum nýtt rafmagnsrúm í versluninni Betra bak. Með vildarkortinu spöruðu þau sér: 1.442.500 kr. Jónína, kona á besta aldri, keypti sér nýja íbúð. Í hana vantaði öll ljós, parket og gardínur og sófinn sem hún átti var of stór þar sem hún var að minnka við sig. Hún keypti það sem hana vantaði, viðarparket, fallegar gardínur og screen, borðstofuborð, stóla og sófa. Þar sem hún var í viðskiptum við Lind fasteignasölu og nýtti sér vildarkortið, sparaði hún umtalsverða fjárhæð. Með vildarkortinu spöruðu hún sér: 458.978 kr. Það hafa aldrei verið færri eignir til sölu., sérstaklega þar sem fólk finnur ekki réttu eignina áður en það setur sína eigin á sölu. Það eru nokkrar leiðir færar til að leysa þessi mál sem við getum kynnt fyrir þér. Markaðsaðstæður á fasteignamarkaði í dag eru óvenjulegar VILDARKORT LINDAR: AFSLÁTTUR HJÁ EFTIRFARANDI FYRIRTÆKJUM: 30% Settu heimilið þitt á sölu hjá okkur og við finnum nýtt heimili handa þér áður en þú selur. Við kíkjum í heimsókn, gerum verðmat ásamt lýsingu á eigninni. Jafnframt mætum við með atvinnuljósmyndara og gerum allt klárt. Þegar draumaeignin kemur setjum við allt á fullt og hjálpum þér við kaupin á nýju heimili. Ef við finnum ekki nýtt heimili, né seljum það gamla, tökum við enga þóknun fyrir. Skráðu eignina eða fáðu tilboð í þjónustu og lausnir á www.fastlind.is Húsgagnahöllin: 30% afsláttur af öllum vörum. Betra bak: 30% afsláttur af öllum vörum. Dorma: 30% afsláttur af öllum vörum. Flügger: 30% afsláttur af allri innimálningu. S. Helgason: 30% afsláttur af öllum borðplötum. Parki: 30% afsláttur af öllum vörum nema innréttingum. Z brautir og gluggatjöld: 30% afsláttur af öllum vörum. Vídd: 30% afsláttur af öllum vörum.. Húsasmiðjan: 30% afsláttur af hreinlætistækjum og ljósum. ATH! Afslátturinn gildir ekki á útsölum. Á Lind fasteignasölu starfa yfir 30 löggiltir fasteignasalar með áratuga reynslu á öllum aldri, allt frá 25 ára til 66 ára og jafnt kynja- hlutfall tryggir það að allir ættu að geta fundið fasteignasala við sitt hæfi. Pétur Georgs Markan bakþankar |

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.