Fréttablaðið - 17.01.2023, Blaðsíða 30
Endurnar sækja í
menn og kunna ekki
að bjarga sér í svona
frosti eins og smáfugl-
arnir.
Sigríður Svala Másdóttir,
dýravinur
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Guðmundur Örn Jóhannsson gudmundur@torg.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Auður Húnfjörð audur@
frettabladid.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrir@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078:
Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolbeinn@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is
FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR/FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is TÍMAMÓTA- OG
ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
Dýravinurinn Sigríður
Svala Másdóttir kom önd í
neyð, vegna fimbulkulda á
Reykjavíkurtjörn, til bjargar.
Öndinni kom hún til Hús-
dýragarðsins og hvetur hún
alla til að huga að fuglunum í
frostinu.
odduraevar@frettabladid.is
Sigríður Svala Másdóttir segir að
hún hafi ekki getað setið hjá þar
sem hún gekk fram á andarstegg,
nær dauða en lífi, við Reykjavíkur–
tjörn. Sigríður segist hvetja alla til að
huga að fuglunum í því fimbulfrosti
sem nú er uppi en önnur kona hafði
samband við Fréttablaðið og hafði
sömu sögu að segja. Sú bjargaði
tveimur svönum sem frosið höfðu
fastir í Keflavík og kom að þeim
þriðja dauðum.
„Ég skrapp á Tjörnina í gær að gefa
öndunum og maður klökknar bara
þegar maður sér litlu greyin rífast
um matarbita. Tjörnin er líka svo
ofboðslega stór og það er svo mikið
af öndum, þannig að þeir veikustu
verða undir. Mig langar að segja við
borgina að það verði að stækka heita
pollinn, hafa hann aðeins stærri.“
Sigríður segir að hún væri líka
til í að bakkinn við tjörnina væri
klakahreinsaður. „Það þyrfti
að skafa bakkann því margar
endurnar komast ekkert,“
segir Sigríður.
„Öndin sem ég bjargaði, ég tók
hana bara upp og setti hana inn á
mig til þess að hlýja henni. Ég próf-
aði að setja andarstegginn í pollinn
aftur, hann reyndi að synda og allir
tróðu sér yfir hann og ég hugsaði
bara að þetta væri hryllileg sjón,“
segir Sigríður.
„Ég ákvað að fara ekki heim, því
þá hefði ég verið andvaka í alla nótt
og ég hefði þurft að tékka á honum
strax um morguninn. Þannig að
þarna var hann að reyna að kom-
ast upp á land, en komst ekki út af
þessum snjóklaka. Þetta var mikið
átak,“ segir Sigríður.
Hún segir öndina hafa komist
upp á ísinn en runnið. „Ég ákvað að
fara bara á Tjörnina á klakann og
detta þá bara ofan í. Þarna er hann
að renna en svo sér hann mig og
kvakar og veit að ég ætla að hjálpa
honum, því hann hafði verið þarna
inni á mér.“
Sigríður segist rétt svo hafa náð
öndinni. „Ég rétt svo næ að grípa
í hann og tek hann inn á mig, svo
hleypur maðurinn minn að mér og
togar mig upp og við förum beint
upp í Húsdýragarðinn með hann.“
Sigríður segist hafa fundið það á
öndinni að hún hafi verið ofkæld.
„Hún var rosalega köld. Þeir tóku
vel á móti henni en hún ætlaði ekki
að vilja fara frá mér.“
Í Húsdýragarðinum hafi jafn-
framt verið grágæs sem komið hafi
verið með af sömu sökum, hún hafi
verið að deyja úr kulda. Sigríður
segist hafa hringt í garðinn í morgun
og sér hafi verið sagt að öndin væri
miklu betri.
„Þeir sögðu mér að ef ég hefði
ekki bjargað honum þá væri hann
dáinn núna. Mig hefði ekki langað
að mæta á Tjörnina í dag og sjá hann
dáinn, þannig að sem betur fer gerði
ég eitthvað í þessu. Þeir sögðu að
hann væri farinn að borða og svona.
Þeir ætla svo að sleppa honum í dag
og ég bað þá um að sleppa honum
bara í Tjörnina.“
Sigríður segist vera mikill dýra-
vinur. Hún er úr Kópavogi en segist
fara reglulega að Reykjavíkurtjörn.
„Við þurfum öll að vera vak-
andi fyrir þessu. Endurnar
sækjast í menn og kunna ekki
að bjarga sér í svona frosti eins
og smáfuglarnir. “ n
Sigríður stakk andarstegg
inn á sig á Reykjavíkurtjörn
Sigríður heimsótti stegginn í Húsdýragarðinn. Hann hafði allur braggast og mun lifa af. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRyGGUR ARI
FRÉTTAVAKTIN
KL. 18.30 ALLA VIRKA DAGA
Fréttavaktin býðum landsmönnum upp á
fjölbreytta fréttaumfjöllun í opinni dagskrá.
Úrvalslið fjölmiðlafólks fer yfir fréttayfirlit
dagsins ásamt því að fá til sín góða gesti að
ræða helstu mál líðandi stundar.
Fréttavaktin er á dagskrá alla virka daga á
Hringbraut, dv.is og frettabladid.is
26 lífið FRÉTTABLAÐIÐ 17. jAnúAR 2023
17. janúar 2023 ÞRIÐJUDAGUR