Fréttablaðið - 17.01.2023, Page 32
frettabladid.is
550 5000
RitstjóRn
ritstjorn@frettabladid.is
AuglýsingAdeild
auglysingar@frettabladid.is
PRentun & dReifing
Torg ehf.
2022 - 2025
Á þessum tíma ársins verður mér
stundum hugsað til lögfræðingsins
sem Ólafía Hrönn hífði á handafl-
inu upp á ökklunum svo skotsilfrið
rann úr vösunum og klingdi á fjöl-
unum, á hápunkti þorrablótsins í
Garðabænum.
Þorrablótin hófust um helgina
sem leið hérna á höfuðborgar-
svæðinu. Þorrinn hefst nú samt
ekki fyrr en 20. janúar, en það rótar
nú ekki í hefðum hér syðra.
Þorrablótin vestra eru af öðrum
toga en þau sem tíðkast syðra. Því
kynntist ég árin sem ég bjó á Vest-
fjörðum. Í fámennu og stundum
einangruðu samfélagi er nálægðin
mikil, hver smábreyting á högum
og lífi þorpara á pari við tilkynn-
ingarskylda skipulagsbreytingu
með grenndarkynningu.
Jafnvægið og friðurinn í slíku
samfélagi er umfram allt. Í því
umhverfi þarf ventil til að hleypa
út irringi og pirringi ársins –
áhyggjum og afskiptasemi. Þar
leikur þorrablótið lykilhlutverk. Í
þorrabragnum eru sveitarstjórinn
og aðrir leikendur teknir upp á
ökklunum; hristir og hæddir með
vægðarlausu gríni. Blótið er karni-
val fólksins, einu sinni á ári er gert
grín að öllu sem má ekki rífast yfir
eða skvaldra um í heyrandi hljóði.
Svo ekki sé minnst á lillabláar
kjaftasögur.
Maður lifandi hvað það er hlegið
og maður lifandi hvað það er
frelsandi. Svo er dansað inn í nótt-
ina, við þá sem maður elskar og þá
sem maður má ekki elska, þá sem
maður þolir ekki og þá sem maður
þarf að þola.
Þvottekta súrkarnival, það er
þorrablót – vestfirskt þorrablót.
Það er auðvelt að sakna Vest-
fjarða. n
Súrkarnivalið
Ný og öflug
fasteignaleit
Finndu réttu eignina fyrir þig á frettabladid.is
1. sætið í ánægju-
voginni
6 ár
í röðTAKK
Bæjarlind 4
Sími: 510 7900
www.fastlind.is
DÆMISÖGUR FRÁ VIÐSKIPTAVINUM
Jón og Gunna eru ungt par sem
keypti sína fyrstu íbúð nýlega.
Íbúðin þarfnaðist viðhalds og þau
vantaði ný húsgögn, rúm og gardínur.
Þau máluðu í búðina, skiptu um
gólfefni, tóku baðherbergið í gegn
og skiptu um blöndunartæki
Þar sem þau voru í viðskiptum við
Lind fasteignasölu fékkst 30%
afsláttur af öllu því sem þau
vanhagaði um.
Með vildarkortinu spöruðu þau sér:
687.368 kr.
Borgþór og Aníta eru hjón um
fimmtugt. Þau keyptu sér gamalt
einbýlishús sem þarfnaðist yfirhalningar.
Þau tóku húsið meira og minna
í gegn, skiptu um öll gólfefni, endur-
nýjuðu tvö baðherbergi ásamt því að
sparsla og mála allt húsið. Þau settu
granítborðplötur í eldhúsið og annað
baðherbergið, skiptu svo út öllum
gardínum og keyptu sér að lokum
nýtt rafmagnsrúm í versluninni
Betra bak.
Með vildarkortinu spöruðu þau sér:
1.442.500 kr.
Jónína, kona á besta aldri, keypti
sér nýja íbúð. Í hana vantaði öll ljós,
parket og gardínur og sófinn sem hún
átti var of stór þar sem hún var að
minnka við sig.
Hún keypti það sem hana vantaði,
viðarparket, fallegar gardínur og
screen, borðstofuborð, stóla og sófa.
Þar sem hún var í viðskiptum við Lind
fasteignasölu og nýtti sér vildarkortið,
sparaði hún umtalsverða fjárhæð.
Með vildarkortinu spöruðu hún sér:
458.978 kr.
Það hafa aldrei verið færri eignir til sölu.,
sérstaklega þar sem fólk finnur ekki réttu eignina
áður en það setur sína eigin á sölu. Það eru
nokkrar leiðir færar til að leysa þessi mál sem
við getum kynnt fyrir þér.
Markaðsaðstæður
á fasteignamarkaði
í dag eru óvenjulegar
VILDARKORT LINDAR:
AFSLÁTTUR
HJÁ EFTIRFARANDI FYRIRTÆKJUM:
30%
Settu heimilið þitt á sölu hjá okkur og við
finnum nýtt heimili handa þér áður en þú selur.
Við kíkjum í heimsókn, gerum verðmat ásamt lýsingu á eigninni. Jafnframt
mætum við með atvinnuljósmyndara og gerum allt klárt. Þegar draumaeignin
kemur setjum við allt á fullt og hjálpum þér við kaupin á nýju heimili.
Ef við finnum ekki nýtt heimili,
né seljum það gamla, tökum við enga þóknun fyrir.
Skráðu eignina eða fáðu tilboð í þjónustu og lausnir á www.fastlind.is
Húsgagnahöllin: 30% afsláttur af öllum vörum.
Betra bak: 30% afsláttur af öllum vörum.
Dorma: 30% afsláttur af öllum vörum.
Flügger: 30% afsláttur af allri innimálningu.
S. Helgason: 30% afsláttur af öllum borðplötum.
Parki: 30% afsláttur af öllum vörum nema innréttingum.
Z brautir og gluggatjöld: 30% afsláttur af öllum vörum.
Vídd: 30% afsláttur af öllum vörum..
Húsasmiðjan: 30% afsláttur af hreinlætistækjum og ljósum.
ATH! Afslátturinn gildir ekki á útsölum.
Á Lind fasteignasölu starfa yfir 30 löggiltir fasteignasalar með
áratuga reynslu á öllum aldri, allt frá 25 ára til 66 ára og jafnt kynja-
hlutfall tryggir það að allir ættu að geta fundið fasteignasala við sitt hæfi.
Pétur Georgs
Markan
bakþankar |