Fréttablaðið - 17.01.2023, Qupperneq 13
okkar í hópfimleikum hefur þrisvar
sinnum orðið Evrópumeistari og
u-18 liðið okkar tvisvar. Þetta er
árangur sem stærri nágrannaþjóðir
okkar myndu stæra sig af. Það sem
ekki allir vita er að landsliðsfólk í
fimleikum er ekki einungis tilbúið
að leggja á sig allar þær klukku-
stundir sem þarf til að skara fram
úr, heldur borgar það einnig með
sér í landsliðsverkefnin. Það æfir á
föstudags- og laugardagskvöldum,
þar sem að fimleikahús landsins eru
smekkfull og landslið okkar eru upp
á velvild félaganna komin til að fá
æfingatíma. Fimleikasambandið
er félögum gríðarlega þakklátt, en
nú erum við komin að þolmörkum.
Þær 1.500 klukkustundir sem FSÍ
nýtti í félögunum á síðasta ári, eru
klukkustundir sem iðkendur félag-
anna hliðra til í sinni þjálfun fyrir
landsliðsstarfið okkar og liggur
það í augum uppi að slíkt er engin
langtímalausn. Nú er hætt við að sú
staða komi upp að landsliðin okkar
verði heimilislaus ef ekki verður
bætt úr, eins og önnur sérsambönd
hafa verið að benda á í sínu lands-
liðsstarfi.
Öf lugur hópur hefur verið að
störfum í kringum Fimleikasam-
bandið á þessari vegferð, öf lugir
þjálfarar, dómarar, fagteymi, fag-
nefndir og fjöldinn allur af sjálf-
boðaliðum sem hafa lagt á sig
þrotlausa vinnu í þágu íslenskra
f imleika. Félögin okkar halda
áfram að stækka, eflast og nútíma-
væðast þar sem fólkið vinnur með
hjartanu og ástríðan fyrir íþróttinni
er í forgrunni. Menntun og fræðsla
er grunnurinn að starfinu, gleði og
nám verður að fara saman til að ná
árangri. Sú staðreynd á alltaf við,
líka í skólakerfinu okkar, ungt fólk
sem hreyfir sig og hefur gaman nær
betri árangri.
Stjórnvöld hafa sett sér það mark-
mið að allir Íslendingar verði með-
vitaðir um ábyrgð á eigin heilsu, þar
er horft til næringar, hreyfingar og
geðræktar. Eins má sjá í stjórnar-
sáttmálanum markmið um að
jafna kynjahlutföll innan íþrótta-
hreyfingarinnar. FSÍ tekur hlutverk
sitt í að styðja við stjórnvöld í þess-
ari markmiðssetningu alvarlega, því
eins og alkunna er fela fimleikar í
sér einn þann besta grunn sem
hægt er að tileinka sér á þeirri veg-
ferð sem hreyfing alla ævi er. Heilsa
eins er okkar allra hagur!
Það er erfitt að finna orð sem lýsa
því stolti, þeirri aðdáun á fólkinu
okkar og þeirri gleði sem það hefur
verið að fá að taka þátt í þeirri veg-
ferð sem Fimleikasambandið hefur
verið á. Vegferð sem mun skila sér
í betra umhverfi fyrir fimleikafólk
til framtíðar, því um leið og það
gerist erum við líka að tryggja það
að íslenska íþróttahreyfingin verði
ríkari en ella.
Áhugaverðar staðreyndir
um fimleika
Fimleikar eru langstærsta innan-
húss íþróttagrein landsins, fim-
leikar eru ekki minnihlutahópur
heldur breiðfylking sem starfar
um allt land. Sveitarfélögin hafa í
auknum mæli verið að mæta þörf-
um þessa stóra hóps með byggingu
fimleikaaðstöðu. Þegar fimleika-
hús hafa verið byggð þá hafa þau
alltaf fyllst, en um leið gert skipu-
lag íþróttastarfsins í bæjarfélaginu í
heild sinni fjölbreyttara, auðveldara
og aðgengilegra.
Þegar við skoðum konur sérstak-
lega í 5 stærstu innanhúss-íþrótt-
unum sjáum við að um helmingur
þeirra eru í fimleikum.
Svo er það framtíðin, rúmlega
40% þeirra sem stunda innan-
hússíþróttir koma úr fimleikum
og því mikilvægt að við hugsum til
framtíðar og gerum vegferð þeirra
sem besta innan íþróttahreyfingar-
innar. n
Fimleikar eru lang-
stærsta innanhúss-
íþróttagrein landsins.
Undanfarin ár hefur landslag
íslenskra fimleika breyst, eða rétt-
ara sagt umturnast. Nú er það svo
að Fimleikasamband Íslands (FSÍ) er
orðið eitt af stærstu sérsamböndum
landsins, þriðja hver stúlka 18 ára
og yngri í landinu okkar er skráð
í fimleika. Sérstaða Fimleikasam-
bandsins felst einna helst í því að
við erum eina sambandið þar sem
konur draga vagninn. Á síðustu 15
árum hefur iðkendafjöldi í fimleik-
um tvöfaldast sem er metfjölgun
innan íþróttahreyfingarinnar, þar
sem iðkendur fóru úr rúmlega 7.000
í rúmlega 14.000. Öll fimleikahús
á landinu eru yfirfull og biðlistar
eru orðnir áskorun í langflestum
félögum landsins . Á sama tíma
hefur fjöldi stráka í fimleikum fjór-
faldast sem hefur einnig verið eitt af
stóru markmiðum sambandsins í
þessari miklu vaxtarkúrfu, því jafn-
réttisbaráttan hefur jú sínar ýmsu
birtingarmyndir. Sambandið hefur
fjölgað viðburðum fyrir keppendur
með sérþarfir og á síðasta ári fóru
yfir 100 heldri borgarar í verkefni
erlendis á vegum FSÍ.
Síðasta áratug hefur íslenskt fim-
leikafólk í áhaldafimleikum reglu-
lega unnið sér keppnisrétt á HM
og á Ólympíuleika, kvennaliðið
Fimleikar fyrir alla, alla ævi, því að það er okkar allra hagur
Sólveig
Jónsdóttir
framkvæmda-
stjóri Fimleika-
sambands Íslands
N Ý F O R M
h ú s g a g n a v e r s l u n
h ú s g a g n av e r s l u n
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
ÚTSALA
á sýningarvörum í verslun
Borðstofuborð, borðstofustólar, eldhússtólar,
sófaborð, sófar o.fl. o.fl.10-60%
afsláttur
Ciro 3 litir
Áður 39.900
NÚ 29.900
Alison
snúnings
Áður 33.900
NÚ 27.000Sierra
nokkrir litir
Áður 25.700
NÚ 19.200
Kato svart
Áður 29.900
NÚ 19.400
Adele
Áður 39.900
NÚ 23.900
Obling 3ja sæta
Áður 129.000 NÚ 103.000
Brookliyn borðstofuborð
220x98, stækkun 2x50 cm, reykt eik – hvítuð eik
Áður 199.000 NÚ 149.000
Notthingham sófaborð
Áður 116.000 NÚ 58.000
Hill hvíldarstóll með tauáklæði
Áður 176.000 NÚ 123.000
Staturn 3ja sæta
Áður 159.000 NÚ 119.000
25%
25%
25%
25%
40%
50%
35%
30%
20%
20%
Fréttablaðið skoðun 1317. janúar 2023
ÞRIðJuDAGuR