Tímarit rafvirkja - 01.12.1949, Blaðsíða 4

Tímarit rafvirkja - 01.12.1949, Blaðsíða 4
Óskar Hallgrimsson: Iðnskólarnir þurfa að samhæfa fræðilegt- nám og verklega reynslu Á undanförnum árum hefur margt verið rætt og ritað innan rafvirkjastéttarinnar, um hversu ónóg og takmörkuð sú fræðzla sé, sem hinir almennu iðnskólar láta í té. Hefur í umræðum um þetta verið bennt á, hversu mikils ósamræmis gæti milli hins fræðilega náms í skólunum og hins verklega starfs. I þessu efni hefur þó á seinni árum tvímælalaust orðið nokkur breyting til batn- aðar; þó hinu sé ekki að leyna að enn skorti mikið á að iðnfræðslan sé komin í það horf að raf- virkjastéttin geti talið fullnægjandi. Fátt sýnir betur hina algjöru vöntun á samhæfingu náms og starf í þessu tilliti, en atvik er skeði í sambandi við sveinspróf er háð var hér í Reykjavík á s. 1. vori. í sveinsprófi þessu, sem var með þeim fjöl- mennari en fram hafa farið í rafvirkjaiðn, gerðist það, að flestir þátttakendur féllu á einu prófverk- efnanna. Og á hverju haldið þið? Verklega prófinu? Nei, síður en svo, þeir voru feldir á raflagnateikningu! Þetta atvik vakti að vonum undrun margra; sem betur fer eru slíkir atburðir ekki hversdags- legir. Ekki dró það úr undrun manna, að vitað var að margir þeirra er hlutu þennan ,,ómilda“ dóm prófnefndarinnar, höfðu lokið burtfararprófi frá Iðnskólanum í Reykjavík í þessari sömu grein, með mjög hagstæðri einkunn. Þar á meðal sumir með um eða yfir 9 í einkunn, en við sveinspróf mun í hæstalagi krafizt 5 sem aðaleinkunnar, til þess að standast próf! Það er næsta eðlilegt að spurt sé: Hvernig stend- ur á því að nauðsynlegt er talið, að nemar sem ganga undir sveinspróf, skuli þurfa að taka þar próf í sömu greinum og þeir hafa þegar lokið prófi í, við burtför úr Iðnskóla? Svar við slíkum spurningum er að finna í reglugerð um iðnaðar- nám, en þar er prófnefndinni uppálagt að láta próf- taka ganga undir próf í iðnteikningu. Jafnframt ber iðnskólunum, að sjálfsögðu, að veita nemend- um kennslu í þessari sömu grein. Megin munur- inn á þessu tvennu, og það sem veldur þeim mikla mismun á einkunnargjöf þessara tveggja aðila, er sá, að þegar iðnteikning er dæmd í iðn- skóla er mest lagt upp úr handbragði og frágangi teikningarinnar, en þegar prófnefnd dæmir sams- konar teikningu, leggur hún megin áherzlu á upp- byggingu raflagnarinnar í teikninguni! Frá sjón- armiði rafvirkjastéttarinnar, staðfestir þetta það sem haldið hefur verið fram; að iðnskólarnir leggja ekki nægjanlega áherzlu á, að samhæfa fræðilegt nám og verklega reynslu. Meðan svo er getum við hvenær sem er átt von á því, að sagan frá sveinsprófinu í vor, endurtaki sig. En það hlýtur að vera metnaðarmál rafvirkjastéttarinnar að hindra slíkt. Það verður bezt gert, með því að stéttin beiti sér sameiginlega fyrir því, að iðn- fræðslunni verði komið í viðunandi horf. Fyrsta krafan í því sambandi ætti að vera sú, að iðnskól- arnir samhæfi fræðilegt nám og raunhæfa kennslu, byggða á reynslu stéttarinnar við verkleg störf. Reynslan af þeim tveim prófum er hér hafa verið gerð að umtalsefni, sveinsprófið í vor og burt- fararprófið úr iðnskólanum, sýnir að slík krafa er fullkomlega tímabær. Þegar þeim áfanga er náð, verður án efa skammt til þess næsta í bar- áttunni fyrir aukinni og bættri iðnfræðslu. 2 TÍMARIT rafvirkja

x

Tímarit rafvirkja

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit rafvirkja
https://timarit.is/publication/1766

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.