Tímarit rafvirkja - 01.12.1949, Side 13
Rafvirkjastéttin og hinn nýi skipafloti íslendinga
Viðtal við Svein Sœmundsson, rafvirkja á m.s. Goðafoss
Á síðustu árum hefur íslenzka kaupskipaflotan-
um bætzt mörg og glæsileg skip. Þessi nýi floti er
gleðilegt tákn um stórhug Islendinga og bjargfasta
trú þeirra mátt sinn. Með tilkomu hinna nýju skipa
hefur rafvirkjastéttin hafið nýtt „landnám“ ef svo
má að orði kveða. Því var spáð er fyrstu skipin í
hinum nýja flota komu til landsins, að ekki yrði
langt að bíða þar til sjómannastéttinni bættist ný
starfsgrein. Sú varð og raunin, því að skömmu
eftir að hið nýja skip Eimskipafélags íslands,
„Goðafoss“, hóf siglingar, var ráðinn á það raf-
virki. Nokkru síðar var einnig ráðinn rafvirki á
m/s „Tröllafoss" sem E. I. hafði þá nýverið keypt
til landsins. Með hliðsjón af þeirri reynslu sem
Eimskipafélagið hafði fengið af starfi þessara raf-
virkja, hefur það einnig ráðið rafvirkja á þau skip
er síðan hafa verið byggð fyrir félagið, þ. e., m/s
„Dettifoss" og m/s Lagarfoss“. Þá hefur Skipaút-
lægri, en á nokkrum öðrum stað í Bandaríkjunum,
en samt sem áður bætir fyrirtækið hag sinn ár frá
ári.
Raforkan léttir húsmœðrum störfin.
Á fjöldamörgum bóndabýlum í Tenneseedaln-
um eru lífsþægindi nú engu minni, en þar, sem
þau eru mest í stórborgunum. Raforkan léttir
mönnum störf, ekki hvað sízt húsmæðrunum,
enda kunna þær ef til vill bezt allra dalbúa að
meta raforkuna. Vatnsdælurnar eru nú drifnar af
rafmagni, í stað gömlu eldavélanna, eru nú komn-
ar nýtízku rafeldavélar og þvottabalinn hefur
orðið að lúta í lægra haldi fyrir þvottavélinni
Á mörgum býlum eru til frystiskápar og víða
annast rafknúin tæki heyþurrkunina. Á síðari ár-
um hefur notkun mjólkurkælitækja farið mjög í
vöxt meðal bænda og sömuleiðis hafa þeir margir
fengið sér hentugar og handhægar þreskivélar.
Litlu þorpin í Tenneseedalnum hafa aukizt og
eflst svo stórkostlega, að enginn þorði að láta sér
slíkt til hugar koma fyrir nokkrum árum síðan.
Bærinn Guntersville er gott dæmi um þau skjótu
straumhvörf. Áður en TVA byggði Gunterville-
stíflugarðinn skammt frá þorpinu, voru íbúarnir
bæði fáir og þóttu framtakslausir. Þegar flóðgátt-
um stíflunnar var lokað, sáu þeir, sér til mikillar
undrunar, að Tenneseefljótið, sem fram að þessu
hafði runnið í nokkurra kílómetra fjarlægð frá
þorpinu, breyttist allt í einu í mikið stöðuvatn, og
að það stóð nú á bökkum þess. Og ekki leið á löngu
áður en þetta litla þorp breyttist í allstórann
„hafnarbæ“, og nú hafa íbúar hans fengið á sig
orð fyrir dugnað og framfarir. Guntersville hefur,
vegna hins nýja samgöngukerfis, komist í
siglingasamband við Pittsburg, Chicago og ST.
Paul. Til bæjarins er sífellt flutt mergð bifreiða,
landbúnaðarvéla, auk benzíns, sem þaðan er síðan
dreyft út um sveitirnar. Hið fagra landslag um-
hverfis stöðuvatnið laðar árlega þangað ferða-
menn svo þúsundum skiptir, og eigendur hinna
nýreistu gistihúsa græða á tá og fingri.
Framkvœmdir TVA kostuðu
16 milljarða króna.
Framkvæmdir TVA kostuðu hvorki meira né
minna en 16 milljarða króna. Almennt ríkir samt
enginn ágreiningur um það í Bandaríkjunum að
þessari geysiháu fjárupphæð sé vel varið. Fyrir
fjármagn þetta hafa bændur í víðlendu héraði,
sem áður háðu sífellda og örðuga baráttu við
náttúruöflin og bjuggu við ótrúlega fátækt, hlotið
tækifæri til að framleiða verðmæti, er skapa þeim
góð lífskjör og vonir um stórbættan efnahag og
vaxandi menningu í framtíðinni.
(Þýtt úr sænsku).
TÍMARIT RAFVIRKJA 1 1