Tímarit rafvirkja - 01.12.1949, Page 8

Tímarit rafvirkja - 01.12.1949, Page 8
Jón Á. Bjarnason, rafmagnsverkfrœðingur: BIPlM type 51IMÍ-INE HEÍT Um flúrlampa ) FLUOneiCCHT LAMFÍ 4o wjirr l —r,— atrworr 1 r n áTrj'ot-UBL.GriSLAH S 6o% zn?h Hiri HtT0H SKAltTA O* 0L£Arf*fL. 7,*\ðrr , 1 W* y U.7 w*rr tqTA JjrjXórr ~4 ! L7ÓS lAiwírr 1 6EISLA- 26.** Tjmnnrmri f coMvrcjrfM - corJB wcrtoM I 4. mynd. Þau leiðinlegu mistök áttu sér stað í síðasta blaði, að grein Jóns A. Bjarna- sonar var prentuð eftir ófullgerðu handriti og án þess að próförk væri lesin. Allmargar villur voru þessvegna í greininni og er hún því endurprentuð hér ásamt viðauka. Greinarhöfundur og lesendur eru beðnir afsökunar á þessum leiðu mistökum. Gerður er greinarmunur á tveim mismunandi tegundum flúrlampa, svo nefndum heitskauts og kaldskauts lömpum. Heitskauts lampana má greina í tvo flokka, tvítinda gerð (bipin type) og mjólínu lampa (slimline). Áður en gerð er frekari grein fyrir mismuni þessara tegunda, er rétt að minnast lauslega á grundvallaratriði flúrlýsingar og helstu hluta lampanna. a) Flúr nefnist sá eiginleiki efnis að geta sogið að sér nokkurn hluta, þess ljóss er á það (efnið) fellur, en geislað því síðan frá sér aftur, sem ljósi með annari (lengri) öldulengd. Utgeisl- unin á sér aðeins stað á meðan efnið verður fyrir utanað komandi geislun. Ljósgjafi lampans er lofttóm glerpípa með örfáum mg af kvikasilfri og argonlofti. I enda pípunnar er komið fyrir skautum lampans, en milli þeirra myndast „ljósbogi“ (elektrónu- straumur) þegar hæfilegri spennu er hleypt milli skautanna. Ljósboginn er nær ósýni- legur mannlegu auga, sökum þess að öldu- lengd hans liggur utan hins sýnilega sviðs litrófsins. Geislar þessir eru útfjólubláir. Sér- stöku dufti, sem hefur flúrandi eiginleika í ríkum mæli, er smurt innaná glerpípuna, en 1) „Florescent lamp“ hefi ég kallað „flúrlampa" á íslenzku, til þess að sneiða hjá hinu erlenda orði í grein þessari. Sama máli gegnir um afleidd og samsett orð af sama stofni. Vafalaust má deila urn það, hve heppileg slík þýðing er. 6 TÍMARIT RAFVIRKJA

x

Tímarit rafvirkja

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit rafvirkja
https://timarit.is/publication/1766

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.