Víkurfréttir - 02.02.2022, Blaðsíða 1
16 SÍÐUR Í ÞESSARI VIKU • STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM
VIÐ SÝNUM ALLAR EIGNIR, FÁÐU TILBOÐ Í FERLIÐ.
ÁSTA MARÍA
JÓNASDÓTTIR
A S TA@A L LT.I S | 560-5507
UNNUR SVAVA
SVERRISDÓTTIR
U N N U R@A L LT.I S | 560-5506
SIGRÍÐUR
GUÐBRANDSDÓTTIR
S I G R I D U R@A L LT.I S | 560-5520
JÓHANN INGI
KJÆRNESTED
J O H A N N@A L LT.I S | 560-5508
DÍSA EDWARDS
D I S A E@A L LT.I S | 560-5510
ELÍNBORG ÓSK
JENSDÓTTIR
E L I N B O RG@A L LT.I S | 560-5509
PÁLL
ÞOR BJÖRNSSON
PA L L@A L LT.I S | 560-5501
25%
AFSLÁTTUR
AF HEILSU- OG
LÍFSSTÍLSVÖRUM
ALLT AÐ
27. JANÚAR - 6. FEBRÚAR
HEILSUDAGAR Í NETTÓ
Tvö af stærstu fyrirtækjunum í
fluggeiranum á Keflavíkurflug-
velli, Icelandair og Airport Associ-
ates ætla að ráða samtals um sjö
hundruð manns til starfa í sumar.
Icelandair hefur að undanförnu
auglýst eftir fólki í ýmis störf á
Keflavíkurflugvelli. Um er að ræða
sumarstörf í farþegaafgreiðslu, hlað
deild, ræstingum og flugeldhúsi. Alls
er um að ræða um 473 stöðugildi
fyrir sumarið 2022. Ekki fengust
upplýsingar um störf flugmanna
og flugþjóna en Icelandair hefur
að undanförnu verið að ganga frá
endurráðningu fólks í þeim störfum.
„Við erum á þessum tímapunkti
eingöngu að ráða í tímabundin
störf með möguleika á fastráðningu
í haust ef forsendur fyrir áfram
haldandi starfi verða til staðar þá.
Fyrstu hópar byrja að koma inn
í mars en við erum að ráða alveg
inn í júní. Allir fá samning út sept
ember, sumir mögulega út október
líka,“ segir Guðmundur Ólafsson hjá
Icelandair. „Við fögnum sem flestum
umsóknum af Suðurnesjunum enn
meirihluti starfsfólks okkar er bú
settur í Reykjanesbæ og nærliggj
andi bæjarfélögum. Við munum þó
að öllum líkindum þurfa að ráða
einhvern hluta af sumarfólki þessa
árs beint frá Póllandi eins og undan
farin ár að undanskildum 2020 og
2021. Hjá okkur vinnur líka fólk sem
er búsett af höfuðborgarsvæðinu en
það er þó í minnihluta,“ sagði Guð
mundur.
Sigþór Kristinn Skúlason, fram
kvæmdastjóri Airport Associates
á Keflavíkurflugvelli, segir að til
standi að ráða 150 til 200 manns
og í heildina geti starfsmannafjöldi
náð 400 manns í sumar. Hann vonar
að hægt verði að ráða sem flesta frá
Suðurnesjum en þó liggi það fyrir að
sækja verði starfsfólk út fyrir land
steinana. Þegar mest var árið 2018
náði starfsmannafjöldi fyrirtækisins
um 700.
„Þetta er allt á réttri og mikil bjart
sýni. Reksturinn hefur verið í góðum
gír allt frá síðasta vori og veturinn
varð betri en við áttum von á. Það
er bjartsýni hjá erlendu flugfélög
unum og Play verður með sex flug
vélar í sumar og tíu á næsta ári,“
segir Sigþór en flugfélögin sem nýta
þjónustu APA verða nálægt tuttugu í
sumar. Sigþór segir að innan tveggja
ára verði starfsemin að öllum lík
indum orðin eins og þegar hún var
mest árið 2018. Félög tengd Airport
Associates, UPS hraðsendingafyrir
tækið og Suðurflug sem APA keypti
ekki alls fyrir löngu hafa gengið vel
í heimsfaraldri. Starfsmannafjöldi
fyrirtækjannna er samtals um 30
til 40.
Ljóst er að fjöldi starfa sem í boði
verða í og við flugstöðina mun verða
á annað þúsund. Eitthvað af þeim
störfum verða til frambúðar. Fjöldi
annarra fyrirtækja við stöðina munu
einnig ráða fólk í sumar. Í Víkur
fréttum er auglýsing frá Fríhöfninni
sem óskar eftir starfsfólki en hún
hefur alla tíð verið einn af stærri
vinnustöðum flugstöðvarinnar. Þær
upplýsingar bárust rétt áður en
blaðið fór í prentun að Isavia gerir
ráð fyrir að fjöldi sumarstarfa hjá
fyrirtækinu verði um 300 talsins.
Á annað þúsund sumarstörfLjósmyndasíða
Keflvíkings varð
að ljósmyndabók
á fimmtudagskvöld kl. 19:30
á Hringbraut og vf.is
Sjá síðu 7
Miðopna!
Villikettir
í Reykjanesbæ heimsóttir
Nýja slökkvistöðin
skoðuð í Suðurnesjamagasíni vikunnar
n Bjartsýni hjá aðilum í ferðageiranum
n Hluti starfana til framtíðar
Boeing 737 Max 8 farþgaþota Icelandair lendir á Keflavíkurflugvelli síðasta föstudag. Hún er fyrsta þota félagsins sem tekur upp nýjar merkingar. VF-mynd: Hilmar Bragi
Grænn
í gegn
Sjá íþróttaumfjöllun
Miðvikudagur 2. febrúar 2022 // 5. tbl. // 43. árg.