Víkurfréttir - 02.02.2022, Blaðsíða 10
Guðmundur Rúnar Júlíusson er átján
ára og kemur frá Keflavík. Guðmundur
er formaður nemendafélags Fjölbrauta-
skóla Suðurnesja. Milli þess að læra
og skipuleggja viðburði fyrir nemenda-
félagið nýtur hann þess að hlusta á
góða tónlist og eyða tíma með vinum
sínum. Rúnni er fyrsti viðmælandinn í
FS-ing vikunnar sem er endurvakinn.
Á hvaða braut ertu?
Ég valdi Fjölgreinabrautina.
Hver er helsti kosturinn við FS?
Mikið af skemmtilegu fólki í skólanum
og svo eru alltaf kunnug andlit á öllum
stöðum skólans.
Hvaða FS-ingur er líklegur til að verða
frægur og hvers vegna? Þar verð ég að
setja hann Þorstein Helga. Rosalega
hæfileikaríkur tónlistarmaður sem á
bjarta framtíð.
Skemmtilegasta saga úr FS?
Af mörgum mjög skemmtilegum er það
líklegast nýnemaballið sem haldið var í
byrjun síðustu annar. Rosaleg stemmning
og erfitt að toppa Pál Óskar en vonandi
tekst okkur það nú á næstu böllum.
Hver er fyndnastur í skólanum?
Það er hann Róbert Andri, alltaf gaman
og stutt í hláturinn í kringum hann.
Hver eru áhugamálin þín?
Hef mikinn áhuga á tónlist, kvikmyndum
og að hitta fólk sem er skemmtilegt.
Hvað hræðistu mest?
Guðnýju Kristjánsdóttur.
Hvert er uppáhaldslagið þitt?
Virkilega erfið spurning en það endar á
Wish You Were Here með Pink Floyd.
Hver er þinn helsti kostur? Frumkvæði.
Hver er þinn helsti galli? Fljótfærni
sem leiðir ekki endilega alltaf til bestu
ákvarðanna.
Hvaða forrit eru mest notuð
í símanum þínum? Facebook,
Spotify og YouTube.
Hvaða eiginleiki finnst þér
bestur í fari fólks?
Góður tónlistarsmekkur.
Hver er stefnan fyrir fram-
tíðina? Ná mínum markmiðum,
ekki flóknara en það.
Ef þú ættir að lýsa sjálfum þér
í einu orði hvaða orð væri það?
Flókinn.
Margrét Norðfjörð Karlsdóttir er
sextán ára Njarðvíkurmær. Margrét
æfir körfubolta og hefur gaman að
félagsstörfum. Hún er formaður
unglingaráðs Fjörheima en situr einn-
ig í ungmennaráði Reykjanesbæjar og
í nemendaráði Akurskóla.
Í hvaða bekk ertu? Ég er í 10. bekk í Akur-
skóla
Hvað gerir þú utan skóla? Fyrir utan skólann
er ég oftast á æfingum þar sem ég æfi
alla daga, einu sinni til þrisvar á dag. Ég er
einnig formaður unglingaráðs Fjörheima og
er í ungmennaráði Reykjanesbæjar. Ég er
vikulega á fundum með unglingaráðinu og
svo með ungmennaráðinu nokkrum sinnum í
mánuði. Með skólanum fylgja líka störf nem-
endaráðsins þar sem ég er í því. Annars eyði
ég deginum í að læra eða hlusta á tónlist.
Hvert er skemmtilegasta fagið?
Klárlega stærðfræði.
Hver í skólanum þínum er líklegur til að
verða frægur og hvers vegna?
Jóhann Ingi bekkjarbróðir minn á TikTok
Skemmtilegasta sagan úr skólanum:
Þegar það kviknaði í rafmagnstöflunni í
íþróttahúsinu þegar bekkurinn minn var í
íþróttum og allir hlupu klappandi út því það
hafði aldrei kviknað í áður.
Hver er fyndnastur í skólanum? Klárlega ég
– en ef ég ætti að velja einhvern annan þá
væri það Benjamín bekkjarbróðir minn eða
Haraldur náttúrufræðikennarinn minn.
Hver eru áhugamálin þín?
Körfubolti og félagsstörf.
Hvað hræðistu mest? Ketti.
Hvert er uppáhaldslagið þitt?
Enn eitt menntaskólalagið með 12:00.
Hver er þinn helsti kostur?
Vingjörn, traust og agalega fyndin.
Hver er þinn helsti galli?
Kann ekki að spara peningana mína.
Hvaða forrit eru mest notuð í símanum
þínum? Snapchat og TikTok.
Hvaða eiginleiki finnst þér bestur í fari
fólks?
Þegar það er gott í samskiptum og þegar
það er með góðan húmor
Hvað langar þig að gera eftir grunnskóla?
Mig langar að fara á félagsvísindabraut í
framhaldsskóla til þess að komast í sálfræði
eða eitthvað álíka í háskóla.
Ef þú ættir að lýsa sjálfum þér í einu orði
hvaða orð væri það? Hæfileikarík.
Gígja býður sig
fram í 4. sæti
Ég hef ákveðið að bjóða mig fram
í 4. sæti í prófkjöri Sjálfstæðis
flokksins í Reykjanesbæ sem fer
fram 26. febrúar næstkomandi.
Með því að bjóða mig fram til
þátttöku vil ég leggja mitt af
mörkum til að skapa samfélag þar
sem er gott að búa, lifandi bæ þar
sem fjölskyldufólk er sett í for
gang og menningar og íþróttalífið
blómstrar.
Ég er 32 ára gömul, uppeldis
og menntunarfræðingur að
mennt og starfa sem flugfreyja
hjá Ice landair, ásamt því að deila
mataruppskriftum á vef Gott í
matinn. Ég er gift Ásgeiri Elvari
Garðarssyni og við eigum tvö
börn á leikskólaaldri. Ég hef fylgst
vel með bæjarmálunum í Reykja
nesbæ frá því ég flutti hingað
fyrir meira en áratug og var á
lista Sjálfstæðisflokksins í sveitar
stjórnarkosningunum árið 2014.
Ég hef tekið virkan þátt í starfi
Sjálfstæðisflokksins, sat í stjórn
Heimis, félags ungra sjálfstæðis
manna í Reykjanesbæ um tíma og
var í 10. sæti á framboðslista Sjálf
stæðisflokksins í Suðurkjördæmi
fyrir síðustu alþingiskosningar.
Reykjanesbær er ört vaxandi
bæjarfélag með stórkostleg tæki
færi til þess að verða framúrskar
andi á öllum sviðum. Til þess þarf
margt að fara saman ímynd sam
félagsins og rekstrarumhverfið í
bænum þarf að vera aðlaðandi.
Sem móðir tveggja barna á leik
skólaaldri þekki ég vel raunveru
leika ungs fjölskyldufólks og mun
leggja mikla áherslu á málefni
fjölskyldunnar, leikskólamál og
betri heilsugæslu. Eflingu heilsu
gæslunnar þarf að setja í for
gang í samstarfi ríkis og sveitar
félagsins, þar sem þjónustan við
íbúana verði útgangspunkturinn
og miðuð að okkar þörfum. Ég
vil að í Reykjanesbæ verði hægt
að tryggja börnum öruggt pláss í
dagvistun að loknu fæðingarorlofi
og að settir verði á fót ungbarna
leikskólar í bæjarfélaginu.
Hér er gott að vera og hér vil ég
búa. Ég nýt þess að takast á við
áskoranir og ég er sannfærð um
að ég hafi margt til málanna að
leggja til að gera Reykjanesbæ að
enn betri bæ til að búa í.
Til þess þarf ég ykkar aðstoð
og samstarf kæru íbúar – ég óska
eftir ykkar stuðningi í 4. sæti.
Gígja S. Guðjónsdóttir.
Starfið felur í sér eftirfarandi:
Z Daglegur rekstur veitingasölu og afgreiðslu
Z Innkaup vegna veitingasölu og golfbúðar
Z Ráðning starfsmanna, þjálfun og mönnun
vakta
Z Skipulagning og innleiðing nýrra viðburða
fyrir félagsmenn GS
Z Náin samvinna við framkvæmdastjóra og
stjórn GS
Menntunar og hæfniskröfur:
Z Reynsla af innkaupum kostur
Z Reynsla af mannaforráðum kostur
Z Reynsla af veitingasölu kostur
Z Reynsla af skipulagningu viðburða kostur
Z Skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnu-
brögð mikilvæg
Z Mjög góð færni í mannlegum samskiptum
og rík þjónustulund
Verkefnastjóri hjá Golfklúbbi Suðurnesja
Vinnutími er sveigjanlegur og fer eftir starfsemi hjá GS
hverju sinni, getur verið bæði um kvöld og um helgar.
Umsóknarfrestur er til 14. febrúar. Umsókn og ferilskrá
sendist á gs@gs.is. www.gs.is
Golfklúbbur Suðurnesja (GS) óskar eftir verkefnastjóra til að hafa
yfirumsjón með veitingasölu og viðburðum á vegum klúbbsins
FS-ingur vikunnar: Guðm
undur Rúnar Júlíusson
Fljótfær
og flókinn
Ung(m
enni) vikunnar: M
argrét Norðfjörð Karlsdóttir
Hæfileikarík
Thelma Hrund Hermannsdóttir
thelma.h.hermannsdottir@gmail.com
10 // vÍkurfrÉttir á SuðurNeSJuM