Víkurfréttir - 02.02.2022, Blaðsíða 15
Markvörðurinn Ingvar
Jónsson varð Íslands- og
bikarmeistari með Víkingi
á síðasta ári en hann er
uppalinn Njarðvíkingur.
Eftir nokkur ár í atvinnu-
mennsku í Noregi og
Danmörku flutti Ingvar
og fjölskylda aftur heim,
núna búa þau og starfa
í Reykjanesbæ þar sem
þau hafa stofnað fyrir-
tæki með vinafólki sínu.
Ingvar spilaði með Njarðvík í
gegnum alla yngri flokkana og
eftir þrjú tímabil með meistara
flokki Njarðvíkur skipti hann yfir í
Stjörnuna í Garðabæ sem hann lék
með í fjögur ár. Eftir það lá leiðin til
Noregs þar sem hann lék á fjórum
árum með liðunum Start, Sande
fjord og Sandnes Ulf áður en hann
fór til Viborg í Danmörku og var þar í
eitt og hálft ár. Þá fannst Ingvari nóg
komið af flækingi og flutti aftur heim
til Íslands þar sem hann gekk til liðs
við Víking árið 2020.
Þú ert ekkert á förum þaðan er
það? „Nei, vonandi ekki. Maður
veit samt aldrei í fótboltanum en
viðræður eru nýhafnar og ég býst
við að vera þar allavega eitt ár í
viðbót. Spennandi tímar þar í gangi.
Síðasta tímabil ansi vel heppnað,“
segir Ingvar en hann varð tvöfaldur
meistari með liði sínu á síðasta ári.
Á að verja titlana í ár?
„Já, það er stefnan hjá okkur.“
Alltaf verið markmaður
Ingvar byrjaði í fótbolta um sex ára
gamall og frá því að hann byrjaði
hefur hann alltaf verið markmaður.
„Ég prófaði það og fannst það
svo gaman að ég festist bara þar.
Kannski hefur mér þótt svona
leiðinlegt að hlaupa eða eitthvað.
Einhvern veginn fannst mér alltaf
langskemmtilegast að vera í marki.
Byrjaði svona sex, sjö ára gamall
þannig að þetta eru orðin nokkur
ár núna – ég á vonandi nokkur góð
ár eftir, markmenn geta spilað svo
lengi.
Ég er nýbyrjaður að taka mark
mannsstigin í KSÍ og er aðeins byrj
aður að þjálfa hjá Njarðvík, er með
sjöunda flokkinn. Ég held að maður
endi í þjálfun eftir fótboltann svo
það er fínt að byrja aðeins núna,
aðeins að fá tilfinninguna fyrir
þessu og klára þessi stig. Svo hef
ég verið með nokkur markmanns
námskeið hérna á Suðurnesjum
sem hafa verið vel sótt. Reyndar
var það þannig þegar ein bylgjan
var að skella á okkur, í kringum
jólin, að það voru þrjátíu markmenn
skráðir og mættu tuttugu og tveir að
lokum. Þetta voru krakkar úr öllum
liðunum hérna á Suðurnesjum, nám
skeiðið náði til margra sem var mjög
skemmtilegt. Það eru margir áhuga
samir um markmannsþjálfun hér
suður frá en markmannsstaðan er
oft vanmetin, samt dregur hún alltaf
nokkra til sín – það er skemmtilegt
að vera aðeins öðruvísi en allir hinir.
Ég var í körfu þangað til ég var
fjórtán eða fimmtán sem ég held að
sé mjög góður grunnur fyrir mark
menn. Það er um að gera að stunda
fleiri en eina íþrótt þegar maður er
yngri, hafa þetta fjölbreytt.“
Ingvar er í sambúð með Íris Guð
mundsdóttur og þau eiga tvö börn
saman. „Hún elti mig um allt þarna í
Noregi og Danmörku. Svo var þetta
orðið gott af flutningum, sérstaklega
eftir að börnin voru byrjuð í skóla.
Það var eiginlega ástæðan fyrir því
að við komum heim, það var ekki
hægt að bjóða þeim upp á enn einn
flutninginn og nýtt umhverfi. Þetta
er mikið flakk og aðeins erfiðara en
að segja það að vera að flytja með
árs millibili, sérstaklega þegar það
þarf að byrja allt í nýju landi. Þannig
að það kom ekkert annað til greina
en að koma heim á þeim tíma.“
Grænn hugsunarháttur
að ryðja sér til rúms
Ingvar og Íris búa nú í Keflavík þar
sem Íris er íþróttakennari í Myllu
bakkaskóla.
„Íris er systir Halla [Haraldar
Guðmundssonar], aðstoðarþjálfara
Keflavíkur, og Bryndísar Guðmunds
dóttur sem var í körfunni með
Keflavík. Þetta er mikil Keflavíkur
fjölskylda.“
Og hvernig gengur það, að bræða
saman Njarðvíking og Keflvíking?
„Það gengur ágætlega. Ég gaf alla
vega eftir, keypti hús í Keflavík og
börnin eru byrjuð að æfa þar,“ segir
Ingvar og hlær. „Nei, í alvöru talað þá
er ekki jafn mikill rígur og var í gamla
daga – en þau skipta yfir í Njarðvík
seinna.“
Er kannski orðinn grundvöllur til
að sameina þessi félög?
„Það er margt vitlausara held ég,
sérstaklega í yngri flokkunum. Þá
kannski nýtast peningarnir betur í
fleiri þjálfara og getuskipta þeim sem
eru að æfa. Þetta á eftir að breytast
einhvern tímann.“
Ingvar og Íris reka einnig fyrir
tækið Víkurbása á Hafnargötu ásamt
vinafólki sínu, þeim Kára Oddgeirs
syni og Katrínu Jónsdóttur.
Hvernig gengur að reka svona fyrir-
tæki í dag?
„Við byrjuðum þetta fyrir rúmu ári
síðan og erum búin að fá yfir okkur
þrjár eða fjórar Covidbylgjur. Þetta
hefur gengið svona í bylgjum en fyrst
við höfum lifað þetta allt af þá er ég
mjög vongóður með framhaldið,
þegar engar hömlur verða og ekkert
Covidvesen lengur.
Fólk hefur tekið ótrúlega vel
í þetta og gengið vel. Fólk er að
kynnast þessu konsepti, þetta er
svolítið nýtt. Þetta er búið að vera
lengur í bænum og það þekkja þetta
ekki allir en það eru stöðugt fleiri að
koma til okkar og kúnnahópurinn fer
sístækkandi.“
Víkurbásar er nokkurs konar um
boðssala fyrir notuð barnaföt þar
sem fólk leigir pláss fyrir sínar vörur
og svo sjá Ingvar og félagar um að
selja og auglýsa.
Finnst þér vera mikil vitundar-
vakning í svona grænni hugsun?
„Já, ég held að á undanförnum árum
hafi fólk farið að hugsa miklu meira
um þetta og farið að átta sig á hversu
stóran þátt fataiðnaðurinn spilar
í umhverfismálum. Fólk getur lagt
sitt af mörkum þar með því að selja,
kaupa og endurnýta í stað þess að
vera alltaf að kaupa allt nýtt. Eins og
með barnaföt sem eru kannski notuð
í tvo eða þrjá mánuði, oft sér ekki á
þessum fötum og það er hægt að
kaupa þau margfalt ódýrari notuð.“
Ingvar bendir á að áður fyrr hafi
fatnaður jafnan gengið milli fólks
innan fjölskyldna en svo breyttist
eitthvað og við urðum að þessu
mikla neyslusamfélagi þar sem alltaf
þarf að kaupa allt nýtt.
Upphafið að verslunarrekstrinum
seigir Ingvar hafa orðið með þeim
hætti að hann hafi verið að spá hvað
hann gæti tekið sér fyrir hendur
samhliða fótboltanum.
„Það hentar ekkert alltof vel að
ráða sig í vinnu frá átta til fjögur,
maður þarf oft frí hér og þar vegna
æfinga eða leikja. Ég hef alltaf haft
þann draum að vera með lítið fyrir
tæki og svo gerðist það að kona vinar
míns, sem var flugmaður hjá Icel
andair, missti vinnuna. Nú ég og Íris
höfðum kynnst svona verslunum í
Noregi og Danmörku, þar sem nánast
allir velja svona endurnýtingu í stað
þess að kaupa sér nýtt. Svo við
fórum í þetta saman og það hefur
bara gengið ótrúlega vel. Vinnu
tíminn hentar mjög vel, nokkrir
klukkutímar á dag og svo fótboltinn
seinni partinn.
Við lögðum auðvitað mikið í þetta
við að byggja þetta upp fyrsta árið
en nú erum við komin með helgar
starfsmann þannig að þetta er farið
að ganga ágætlega og álagið á okkur
að minnka.“
Bankar á dyrnar í landsliðinu
Ingvar á að baki átta leiki með
Alandsliði Íslands en hann er ný
kominn úr verkefni með landsliðinu.
Þá spilaði landsliðið vináttulands
leiki við Úganda og SuðurKóreu í
Tyrklandi.
Nú ertu nýkominn úr landsliðsverk-
efni, hvernig gekk það?
„Það gekk nú ekkert sérstaklega
vel,“ segir Ingvar. „Þetta var beint
eftir jólafrí, alveg í byrjun janúar, og
einu æfingarnar sem ég var búinn
að vera á voru á frosnu gervigrasi
í bænum. Þannig að það var smá
munur að fara á rennandi blautt
gras og ég tognaði í kálfa á annarri
æfingunni, þannig að ég missti af
báðum leikjunum en ég átti að byrja
báða leikina. Það var svolítið svekkj
andi en svona er þetta, meiðsli eru
partur af þessu. Þetta voru bara æf
ingaleikir og ekkert undir þannig að
það var ekkert vit í að vera að pína
sig neitt.
Vonandi fæ ég bara aftur tækifæri
til að sýna mig, það voru komin þrjú
ár síðan ég var valinn síðast og það
var gaman að finna smjörþefinn af
þessu aftur.“
Ertu að minna á þig?
„Þeir voru allavega ánægðir með
mig. Það eru náttúrlega miklar
breytingar á markmannsstöðunni,
Hannes [Halldórsson] hættur og
margir ungir að koma inn. Svo er
auðvitað spurning hversu mikið þeir
fá að spila með sínum félagsliðum,
það er erfitt að velja menn í hóp sem
eru ekki að spila. Maður er allavega
inni í myndinni og veit að ef maður
stendur sig vel á maður góðan séns
að komast í hóp aftur – það er extra
gulrót,“ segir markvörðurinn að
lokum.
Grænn í gegn
Ingvar og liðsfélagar hans fagna
fyrsta Íslandsmeistaratitli Víkings
í þrjátíu ár. Mynd: Fótbolti.net
Jóhann Páll Kristbjörnsson
johann@vf.is
Markverðir á æfingu landsliðsins í Tyrklandi 2022. Halldór Björnsson,
Hákon Valdimarsson, Ingvar og Jökull Andrésson. Mynd úr safni Ingvars
Íris Guðmundsdóttir, Ingvar Jónsson, Kári Oddgeirsson
og Katrín Jónsdóttir, eigendur Víkurbása.
vÍkurfrÉttir á SuðurNeSJuM // 15