Víkurfréttir - 02.02.2022, Blaðsíða 9
KEFLVÍKINGURINN JÓN SVEINSSON STÝRIR iCelaNd tHe PHOtOgraPHer’S ParadiSe MEÐ 66.000 MEÐLIMUM
Íslandsmyndir Jóns og félaga
í nýrri ljósmyndabók
fyrir það það tæki
færi sem er að eiga
mynd í bók.
Ljósmyndahóp
urinn á Facebook,
Iceland The Photo
grapher’s Paradise,
er ein af stærstu
íslensku síðunum
á Facebook þar
sem þátttakendur
eru mjög virkir í
því að setja inn
myndir og tjá sig
í athugasemdum
um innsendar
myndir. Síðan
er sett upp sem
hópur og þarf
að sækja um
aðild. Jón rit
stýrir síðunni
og reynir eftir
bestu getu að
halda aftur af
mönnum og
halda friðinn
milli manna.
Þá er tekið
á því þegar
sett eru inn inn
legg sem eru augljós sem markaðs
setning. Þá leggur Jón mikið upp úr
kurteisi síðumeðlima í garð hvers
annars. Sama hversu góðir ljós
myndarar menn eru, eða ef þeir eru
ruddar við aðra, þá er þeim úthýst
af síðunni.
Áhugi á myndforminu
Jón segist alltaf haft áhuga á mynd
inni sem formi. Hann átti filmuvél í
gamla daga. Hann eignaðist Canon
F1 á sínum tíma og myndaði mikið.
Þeirri vél var stolið af honum og
það þýddi að hann hafði ekki ráð
á að kaupa sér nýja vél. Jón segist
hafa smitast af ljósmyndaáhuga á
sínum tíma af Friðþjófi Helgasyni,
ljósmyndara og kvikmyndatöku
manni, sem er góður vinur hans.
Sjálfur segist Jón hafa verið að fást
við málverk og teikningar en alltaf
haft áhuga á myndinni í öllum list
formum.
Jón bjó í Svíþjóð og gekk í gegnum
skilnað árið 2005. Þá kom hann
heim til Íslands og gerðist leigubíl
stjóri.
„Leigubílstjórar vinna lengi og
mikið, sex daga vikunnar, og ég
fór að finna fyrir því að ég var að
brenna út í vinnunni og fannst hún
leiðinleg. Ég kvartaði um þetta við
vinkonu mína, Gróu Hreinsdóttur,
sem þá var tónlistarkennari norður
í Aðaldal. Hún sagði mér bara að
koma norður til sín og vera eins
lengi og ég vildi á meðan ég væri
að hvíla mig á leigubílaakstrinum.
Ég fór norður í átta eða níu daga og
slakaði vel á. Gróa réri að því öllum
árum að kveikja aftur í listamann
inum í mér.
„Nonni, áttu dollara?“
Ég var m.a. dansari í fjórtán ár og
dansaði í Þjóðleikhúsinu, Iðnó og
Norræna húsinu. Ég söng líka og var
m.a. í Jesus Christ Superstar. Ég var
farinn að reykja þannig að ekki gat
ég sungið og ég var orðinn of feitur
til að geta dansað. Gróa sagði mér að
fara að teikna eða mála. Flestir vita
hvernig það er að endurvekja ein
hvern þátt í lífi sínu með hliðsjón af
því að fá borgað fyrir það.
Að endanum spyr Gróa mig út
í ljósmyndunina en ég tek dræmt í
allar þessar hugmyndir. Sex vikum
eftir að ég er farinn heim aftur og
byrjaður að vinna hringir Gróa í
mig og spyr mig að því hvort ég eigi
dollara. „Nonni, áttu dollara?“ spurði
hún. Sem leigubílstjóri átti ég eitt
hvað af dollurum. Hún sagðist vera
á leiðinni til Orlando í Bandaríkj
unum og ætlaði að kaupa fyrir mig
myndavél.
Hún keypti vélina, Nikon D80
með 17–55 mm og 55–200 mm
linsum. Ég tek upp á því að vera
alltaf með myndavélina í bílnum.
Ég er oftast að vinna á nóttunni
og þetta sumar var alveg dýrðlegt
upp á veðurblíðu að gera með sól
setri og sólarupprás. Það var svona
veðrátta í fimm vikur. Ég hafði keypt
mér 70–300 mm linsu fyrir FX vél
sem gerði linsuna að 400 mm linsu
og tók margar myndir af sólsetrinu
og sólarupprásinni.
Féll fyrir ljósmyndabakteríunni
Þetta fangar mig gjörsamlega og
stuttu síðar segir bílstjóri við mig að
ég þurfi að sýna þessar myndir. Það
sé ekki nóg að sýna bara vinnufé
lögum myndirnar. Hann hjálpaði
mér að setja upp síðu á Facebook og
ég setti inn myndir á hverjum degi.
Ég fékk hól fyrir mínar myndir og þá
fór ég fljótlega út í það að gera síðu
þar sem fleiri en ég gætu sett inn
myndir. Hún hefur svo vaxið jafnt og
þétt síðan þá og meðlimum fjölgað.“
Eignast marga góða vini í
gegnum ljósmyndahópinn
Jón segist hafa eignast marga vini í
gegnum síðuna og þegar hann átti
afmæli á aðfangadag fékk hann
2.300 kveðjur frá meðlimum síð
unnar.
Jón á von á því að síðan á Face
book haldi áfram að vaxa og nú sé
von á því að ferðamönnum fari að
fjölga á ný og um leið ljósmyndurum
sem koma til að taka Íslandsmyndir.
„Þá verður síðan vonandi stærri og
myndum fjölgar sem er grunnur
að næstu bók,“ segir Jón Sveinsson
áhugaljósmyndari að endingu.
Jón Sveinsson með fyrsta
eintakið af ljósmyndabókinni
Iceland The Photographer’s
Paradise sem er byggð á
samnefndri síðu á Facebook.
VF-mynd: Hilmar Bragi
Hilmar Bragi Bárðarson
hilmar@vf.is
vÍkurfrÉttir á SuðurNeSJuM // 9