Víkurfréttir


Víkurfréttir - 02.02.2022, Blaðsíða 12

Víkurfréttir - 02.02.2022, Blaðsíða 12
Farsæl skólaganga Anna Sigríður Jóhannesdóttir, BA sálfræði og MBA, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ. Börnin eru mikilvægust, þau eru framtíðin og skólakerfið á að veita öllum börnum jöfn tækifæri á að þroska sína ólíku hæfileika og skapa sjálfstraust til að skapa verðmæti í framtíðinni og verðmæti fyrir sam­ félagið. Börnin eru grunnurinn og framtíðin og skólinn leggur grunn að því sem framundan er. Pössum okkur að dragast ekki aftur úr, við erum að gera vel og við viljum vera í fremstu röð í menntamálum. Reykjanesbær getur verið leið­ andi í menntamálum á Íslandi með frábæra kennara og gott fagfólk í leik­ og grunnskólum ásamt framúr­ skarandi nemendum. Um síðustu aldamót gekk skólum í okkar sam­ félagi ekki nægilega vel en með góðu, samstilltu átaki tókst að snúa til sóknar og okkur tókst að stíga upp yfir landsmeðaltal í íslensku og stærðfræði. En það tók mörg ár að vinna okkur upp og við sjáum árangurinn í mjög frambærilegu ungu fólki. Við megum ekki glutra slíkum árangri niður. Gæði sam­ félaga eru í síauknum mæli metin í gæðum skólakerfis þess. Lykillinn að velgengni í lífinu er farsæl skóla­ ganga og menntun en öll börn þurfa góðan stuðning og hvatningu í námi. Börnin verja oft löngum degi í leik­ og grunnskóla og mikilvægt er að gott samstarf sé milli heimilis og skóla svo við tryggjum barninu líði vel og gangi vel í námi. Mikil fjölgun ungra barna kallar á fleiri leikskóla­ pláss og mikilvægt er að sú þjónusta sé til staðar fyrir barnafjölskyldur í Reykjanesbæ. Ég ítreka að í auknum mæli er það fyrsta sem fólk gerir þegar það tekur ákvörðun um að flytja í annað sveitarfélag að skoða hvort séu góðir leik­ og grunnskólar í samfélaginu. Leikskólinn er fyrsta skólastigið og þegar framtíðarstefna bæjarins var gerð árið 2011 var lögð rík áhersla á betra samstarf milli leik­ og grunn­ skóla. Í leikskólum var lögð meiri áhersla á grunnfærni lesturs og stærðfræði en áður hafði verið gert. Framtíðarsýnin hafði jákvæð áhrif á samstarf þessara skólastiga og í dag hefur einnig samstarf milli grunn­ og framhaldsskóla aukist. Árið 2013 var svo nemendum í grunnskólum boðið að taka áfanga í íslensku, dönsku, ensku og stærð­ fræði í Fjölbrautaskóla Suðurnesja og fleiri áfangar eru í boði í dag. Fyrirkomulagið hefur marga kosti í för með sér fyrir grunnskólanem­ endur en þeir leggja sig frekar fram í námi á mið­ og unglingastigi til þess að komast í þessa áfanga. Jafnframt kynnast nemendur vinnuálagi sem tíðkast í framhaldsskólum og eru þar af leiðandi betur undir það mennt­ astig búnir. Duglegir nemendur gætu jafnvel flýtt töluvert fyrir sér í námi á framhaldsskólastigi. Í stefnu Reykjanesbæjar til ársins 2030 var lögð áhersla á að börnin væru sett í fyrsta sæti og börnin væru mikil­ vægust og styðja ætti börn svo þau blómstri í fjölskyldunni, í skólum, íþróttum og tómstundum til að auka kraft samfélagsins. Yfirgangur fárra ógn við orkuöryggi á Suðurnesjum Ásmundur Friðriksson, alþingismaður og fv. bæjarstjóri. Ég hef í annað sinn lagt fram frum­ varp til laga um framkvæmdaleyfi fyrir lagningu Suðurnesjalínu 2. Markmið framkvæmdarinnar er að bæta afhendingaröryggi raforku á Suðurnesjum, auka flutningsgetu milli höfuðborgarsvæðisins og Suður­ nesja og styðja við afhendingaröryggi á höfuðborgarsvæðinu með öflugra flutningskerfi raforku á Suðvestur­ horni landsins. Tekist hefur verið á um hvaða leið skuli farin við lagningu línunnar. Eini raunhæfi möguleikinn er lagning lín­ unnar yfir jörðu og hafa 143 landeig­ endur í Vogum veitt leyfi fyrir fram­ kvæmdinni en fimm landeigendur í Vogum ekki, og sveitarstjórn Voga ekki heldur. Sautján ár af þvælingi í kerfinu Í áliti Skipulagsstofnunar kemur fram að það sé í höndum hlutaðeigandi sveitarfélaga að taka afstöðu til þess hvaða kostur verði endanlega fyrir valinu og að ákvarðanirnar þurfi að vera teknar sameiginlega hjá sveitar­ stjórnunum. Meirihluti er fyrir leið C, loftlínu um Hrauntungur og frá sveitarfélagamörkum Hafnarfjarðar og Voga samhliða Suðurnesjalínu 1, en þrjú af fjórum sveitarfélögum sem koma að framkvæmd lagningar Suðurnesjalínu 2 hafa veitt leyfi fyrir framkvæmdinni. Framkvæmdaleyfi fyrir lagningu Suðurnesjalínu 2 má segja að sé af­ mörkuð einskiptisaðgerð. Markmiðið með frumvarpinu er að auka skil­ virkni í málsmeðferð til að tryggja framgang þjóðhagslegra mikilvægra framkvæmda í flutningskerfi raforku sem hafa farið í gegnum lögbundið undirbúnings­ og samráðsferli og eru í samræmi við stefnu stjórnvalda um uppbyggingu flutningskerfis raforku og stefnu um lagningu raflína. Lýðræðis­ hallinn er augljós þegar bæjarstjórn Voga og nokkrir landeigendur, samtals ellefu manns, hafa rétt 30 þúsund íbúa á Suðurnesjum til afhendingaröryggis raforku og fyrirséðan orkuskort í hendi sér. Þetta mál hefur þvælst í sautján ár um í kerfinu. Í samræmi við aðalskipulag Voga Fram til ársins 2005 var raforka að­ eins flutt frá höfuðborgarsvæðinu til Suðurnesja en á síðasta áratug hefur það breyst. Vinnsla á Suðurnesjum hefur aukist og verulegir flutningar eru frá Suðurnesjum til höfuðborgar­ svæðisins. Mikið álag er á núverandi flutningskerfi og hætta er á alvar­ legum truflunum á afhendingu ef bilanir verða. Flutningsleiðirnar eru þegar orðnar þunglestaðar. Suðurnesjalína 2 fellur að stefnu svæðisskipulags Suðurnesja 2008– 2024 sem gildir í sveitarfélögunum Vogum, Grindavíkurbæ og Reykja­ nesbæ. Meginstefna svæðisskipu­ lagsins er að nýta núverandi flutnings­ leiðir raforku og eru þær skilgreindar sem meginlagnabelti á Suðurnesjum, þ.e. Suðurnesjalínur, Reykjaneslínur og Svartsengislínur, og gert ráð fyrir að fleiri línur geti byggst upp innan þeirra. Fyrirhuguð framkvæmd um Suðurnesjalínu 2, valkostur C, er í samræmi við aðalskipulag Sveitar­ félagsins Voga 2008–2028. Grípum í taumana Suðurnesjalína 2 er mikilvæg fram­ kvæmd út frá þjóðarhagsmunum og því þarf ekki að fjölyrða um brýna nauðsyn þess að ráðast í hana. Óviðunandi töf hefur nú þegar orðið á málinu sem hefur velkst í kerfinu árum saman. Það er ekki ásættanlegt að íbúar svæðisins þurfi að líða fyrir þær miklu ógöngur sem leyfisveiting til þessarar framkvæmdar hefur lent í. Það er því nauðsynlegt að grípa í taumana til að koma í veg fyrir frekari tafir og flýta því að framkvæmdir geti hafist. Við ættum öll að hafa hugrekki til þess. Upp í loft með línurnar! Í nýjasta blaði Víkurfrétta (26. janúar 2022) upplýsir upplýs­ ingafulltrúi Landsnets okkur um að það sé ekki hættandi á að leggja rafmagnsstrengi í jörð hér á Suðurnesjum vegna jarðhrær­ inga. „Ljóst er af öllum gögnum að rekstraröryggi jarðstrengs er verra en loftlínu m.t.t. jarðskjálfta og sprunguhreyfinga,“ segir full­ trúinn. Í ljósi þessa er ljóst að það voru gerð mikil mistök hér um slóðir fyrir hálfri öld síðan þegar raf­ línur voru lagðar í jörð. Fyrstu árin sem raforku var dreift inn á heimilin voru allar línur í lofti, á staurum, út um allt!. Til mikillar prýði. Mér er sagt að þá hafi raf­ magnið iðulega farið af, jafnvel dögum saman. Þó ekki vegna jarðskjálfta. Síðan á sjöunda áratugnum voru þessar loftlínur teknar niður og lagðir jarðstrengir milli húsa og bæjarfélaga. Til dæmis fá Vogar allt rafmagn eftir jarðstreng utan frá Fitjum. Þvers og kruss um allar Suðurnesjabyggðir er raf­ magn leitt í jarðstrengjum. Nú skalf jörð hér dögum og vikum saman nýlega. Hljóta þessir jarðstrengir þá ekki að vera komnir í spað? Var rafmagnið ekki alltaf að fara af í skjálfta­ hrynunni? Að vísu ekki hjá mér, en hjá þér? Ef við tökum boðskap Lands­ nets alvarlega ættum við að steinhætta að leggja jarðstrengi í ný hverfi og setja raflínurnar á staura – og í framhaldi í eldri hverfum líka! Kannski væri rétt að setja vatns­ og skólpleiðsl­ urnar líka á staura, svo bévítans jarðskjálftarnir grandi þeim ekki? Já, mér er fúlasta alvara! Þorvaldur Örn Árnason. Kominn til ára sinna og ólst upp við raflínur á staurum. Um 1950 var bæði rafmagn og sími á staurum, eins og sést á myndinni. Treystum rekstur og árangur íþrótta í Reykjanesbæ Eiður Ævarsson, frambjóðandi í 4. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins. www.eiduraevarss.is Reykjanesbær er þekktur íþróttabær. Hér er vagga körfuboltans á Íslandi með óteljandi Íslandsmeistaratitla og knattspyrnuliðin okkar ekki síður verið í fremstu röð og skilað mörgum titlum hús. Árangur og aðstaða í íþróttum er eitt af því sem fólk horfir til þegar það velur sér nýtt bæjarfélag til að búa í. Þess vegna er það mikil­ vægt að bæjarfulltrúar hlúi að íþrótta­ starfsemi, uppbyggingu íþróttamann­ virkja og standi vörð um stuðning við rekstur íþróttahreyfingarinnar í bænum. Ég hef kynnt mér stöðu hreyfingarinnar og mun, ef ég verð til þess kosinn, leggja áherslu á stuðning og uppbyggingu íþróttafélaganna í Reykjanesbæ. Styrkari stoðir undir rekstur Ég tel það mikilvægt að við skoðum hvað önnur sveitarfélög eru að gera í þessum málaflokki og taka það besta af því til okkar. Sjálfboðaliðar og starf foreldra að málefnum íþróttahreyf­ ingarinnar er afar mikilvægur þáttur í starfseminni en í dag orðið erfiðara að fá sjálfboðaliða til starfa fyrir íþróttafélögin. Að fá sjálfboðaliða til að sinna stærri verkefnum eins og að stýra einhverri deild er enn verra. Þeir sem gefa sig í þetta endast ekki lengi, þeir enda á að brenna út og hætta algerlega afskiptum af íþróttum og þar með er þekking þeirra farin úr hreyfingunni. Hér verður Reykjanesbær að stíga inn í hlutina ef ekki á illa að fara. Bærinn þarf að gera úttekt á íþróttamálum í Reykjanesbæ og gera samanburð við önnur sveitarfélög þar sem hlutirnir eru að ganga mjög vel, hvað er öðru­ vísi hjá þeim og hvernig viljum við hafa hlutina, og koma svo með alvöru stuðning frá bænum þegar búið er að hanna módel sem þarf að fara eftir. Tekjulindir horfnar Í dag eru félögin að kalla eftir fleiri starfsmönnum greidda af bænum en það er bein afleiðing af því að um­ fangið hefur aukist og erfiðara er að fá sjálfboðaliða til starfa. Félögin hafa orðið fyrir gríðarlegu tekjufalli. Áhorfendur á leiki síðastliðin tvö ár hafa nær alveg horfið og þorrablót og aðrar skemmtanir sem hafa verið stór þáttur í að afla fjár til að halda úti metnaðarfullu starfi hafa fallið niður. Aukum þátttöku Til þess að auka hér þátttöku í íþróttum þá ættu börn og unglingar að fá að prófa allar íþróttir ef vilji er til þess hjá þeim. Reykjanesbær getur samið við íþróttafélögin um að fyrstu tvö árin sem barn stundar íþróttir verði að kostnaðarlausu og bærinn hreinlega kaupir þjónustuna af íþróttafélögunum. 23% Íbúa Um 4.400, eða 23%, íbúa Reykjanes­ bæjar eru af erlendu bergi brotin en aðeins lítill hluti barna þeirra skila sér í íþróttir. Börnum innflytjenda sem stunda íþróttir gengur betur að að­ lagast og festa rætur í nýju samfélagi. Það liggur því alveg ljóst fyrir að gera þarf gangskör í að fá börn innflytjenda til þess að vera með í íþróttum. Það er liður í að láta þau finna það að þau eru velkomin í Reykjanesbæ. Auðvelt fyrir fjölskyldur Það þarf að gera fjölskyldum auð­ veldara fyrir til þess að krakkar geti stundað íþróttir. Það gerum við meðal annars með því að samræma betur skóla og íþróttastarf og frístundabílar sem eru fyrir 1.– 4. bekk verði fyrir alla grunn­ skólanemendur. Tökum höndum saman og gerum Reykjanesbæ aftur að íþróttabæ. Sækist eftir 5. sæti í prófkjöri Sjálf- stæðisflokksins í Reykjanesbæ Kæru bæjarbúar. Ég hef ákveðið að gefa kost á mér í 5. sæti í prófkjöri Sjálfstæðis­ flokksins í Reykjanesbæ þann 26. febrúar næst­ komandi. Ég er 34 ára gamall og bý í Innri­Njarðvík ásamt kærustu minni, Guðrúnu Ýri Halldórsdóttur, og börnunum okkar þremur. Ég hef búið hér síðastliðin fjögur ár og hér viljum við fjölskyldan vera enda kynnst mikið af góðu fólki og hér líður okkur vel. Ég er rafvirki að mennt og á og rek Prism Ljósastudio hér í bæ. Atvinnumál eru mér hugleikin ásamt leikskóla­ og húsnæðis­ málum. Við þurfum að grípa tækifærin og sýna stórum sem smáum fyrir­ tækjum að hér er hægt að skapa verðmæti, ásamt því að hlúa vel að þeim sem fyrir eru. Það skiptir miklu máli að hér sé bæði hægt að búa og starfa án þess að þurfa að leita langt yfir skammt. Ég tel mig vera mann sem lætur verkin tala og er reiðu­ búinn að leggja mitt að mörkum í að skapa hér gott og samkeppnis­ hæft samfélag. Grípum tækifærin og látum verkin tala. Ég óska eftir stuðn­ ingi íbúa Reykjanesbæjar í 5. sætið í næstkomandi prófkjöri Sjálfstæðisflokksins þann 26. febrúar. Bestu kveðjur, Steinþór Jón Gunnarsson Aspelund. 12 // vÍkurfrÉttir á SuðurNeSJuM

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.