Víkurfréttir


Víkurfréttir - 02.02.2022, Side 1

Víkurfréttir - 02.02.2022, Side 1
16 SÍÐUR Í ÞESSARI VIKU • STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM VIÐ SÝNUM ALLAR EIGNIR, FÁÐU TILBOÐ Í FERLIÐ. ÁSTA MARÍA JÓNASDÓTTIR A S TA@A L LT.I S | 560-5507 UNNUR SVAVA SVERRISDÓTTIR U N N U R@A L LT.I S | 560-5506 SIGRÍÐUR GUÐBRANDSDÓTTIR S I G R I D U R@A L LT.I S | 560-5520 JÓHANN INGI KJÆRNESTED J O H A N N@A L LT.I S | 560-5508 DÍSA EDWARDS D I S A E@A L LT.I S | 560-5510 ELÍNBORG ÓSK JENSDÓTTIR E L I N B O RG@A L LT.I S | 560-5509 PÁLL ÞOR BJÖRNSSON PA L L@A L LT.I S | 560-5501 25% AFSLÁTTUR AF HEILSU- OG LÍFSSTÍLSVÖRUM ALLT AÐ 27. JANÚAR - 6. FEBRÚAR HEILSUDAGAR Í NETTÓ Tvö af stærstu fyrirtækjunum í fluggeiranum á Keflavíkurflug- velli, Icelandair og Airport Associ- ates ætla að ráða samtals um sjö hundruð manns til starfa í sumar. Icelandair hefur að undanförnu auglýst eftir fólki í ýmis störf á Keflavíkurflugvelli. Um er að ræða sumarstörf í farþegaafgreiðslu, hlað­ deild, ræstingum og flugeldhúsi. Alls er um að ræða um 473 stöðugildi fyrir sumarið 2022. Ekki fengust upplýsingar um störf flugmanna og flugþjóna en Icelandair hefur að undanförnu verið að ganga frá endurráðningu fólks í þeim störfum. „Við erum á þessum tímapunkti eingöngu að ráða í tímabundin störf með möguleika á fastráðningu í haust ef forsendur fyrir áfram­ haldandi starfi verða til staðar þá. Fyrstu hópar byrja að koma inn í mars en við erum að ráða alveg inn í júní. Allir fá samning út sept­ ember, sumir mögulega út október líka,“ segir Guðmundur Ólafsson hjá Icelandair. „Við fögnum sem flestum umsóknum af Suðurnesjunum enn meirihluti starfsfólks okkar er bú­ settur í Reykjanesbæ og nærliggj­ andi bæjarfélögum. Við munum þó að öllum líkindum þurfa að ráða einhvern hluta af sumarfólki þessa árs beint frá Póllandi eins og undan­ farin ár að undanskildum 2020 og 2021. Hjá okkur vinnur líka fólk sem er búsett af höfuðborgarsvæðinu en það er þó í minnihluta,“ sagði Guð­ mundur. Sigþór Kristinn Skúlason, fram­ kvæmdastjóri Airport Associates á Keflavíkurflugvelli, segir að til standi að ráða 150 til 200 manns og í heildina geti starfsmannafjöldi náð 400 manns í sumar. Hann vonar að hægt verði að ráða sem flesta frá Suðurnesjum en þó liggi það fyrir að sækja verði starfsfólk út fyrir land­ steinana. Þegar mest var árið 2018 náði starfsmannafjöldi fyrirtækisins um 700. „Þetta er allt á réttri og mikil bjart­ sýni. Reksturinn hefur verið í góðum gír allt frá síðasta vori og veturinn varð betri en við áttum von á. Það er bjartsýni hjá erlendu flugfélög­ unum og Play verður með sex flug­ vélar í sumar og tíu á næsta ári,“ segir Sigþór en flugfélögin sem nýta þjónustu APA verða nálægt tuttugu í sumar. Sigþór segir að innan tveggja ára verði starfsemin að öllum lík­ indum orðin eins og þegar hún var mest árið 2018. Félög tengd Airport Associates, UPS hraðsendingafyrir­ tækið og Suðurflug sem APA keypti ekki alls fyrir löngu hafa gengið vel í heimsfaraldri. Starfsmannafjöldi fyrirtækjannna er samtals um 30 til 40. Ljóst er að fjöldi starfa sem í boði verða í og við flugstöðina mun verða á annað þúsund. Eitthvað af þeim störfum verða til frambúðar. Fjöldi annarra fyrirtækja við stöðina munu einnig ráða fólk í sumar. Í Víkur­ fréttum er auglýsing frá Fríhöfninni sem óskar eftir starfsfólki en hún hefur alla tíð verið einn af stærri vinnustöðum flugstöðvarinnar. Þær upplýsingar bárust rétt áður en blaðið fór í prentun að Isavia gerir ráð fyrir að fjöldi sumarstarfa hjá fyrirtækinu verði um 300 talsins. Á annað þúsund sumarstörfLjósmyndasíða Keflvíkings varð að ljósmyndabók á fimmtudagskvöld kl. 19:30 á Hringbraut og vf.is Sjá síðu 7 Miðopna! Villikettir í Reykjanesbæ heimsóttir Nýja slökkvistöðin skoðuð í Suðurnesjamagasíni vikunnar n Bjartsýni hjá aðilum í ferðageiranum n Hluti starfana til framtíðar Boeing 737 Max 8 farþgaþota Icelandair lendir á Keflavíkurflugvelli síðasta föstudag. Hún er fyrsta þota félagsins sem tekur upp nýjar merkingar. VF-mynd: Hilmar Bragi Grænn í gegn Sjá íþróttaumfjöllun Miðvikudagur 2. febrúar 2022 // 5. tbl. // 43. árg.

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.