Víkurfréttir - 02.02.2022, Side 5
Pálína Guðnadóttir
notar REPAIR
,,Undrabætiefni! Ég var búin að vera mjög slæm og með
verki í öllum vöðvum og liðamótum, þá aðallega í mjöðm,
hné og fingrum. Ég var búin að prufa ýmislegt til að reyna að
hjálpa mér en ekkert virkaði nægilega vel. Ég kynnist
GeoSilica í desember 2017 og strax á fyrstu flöskunni fann ég
mun á sjálfri mér! Ég ákvað að halda áfram og í dag eru allir
verkir horfnir og ég get nánast allt. Það mætti halda að ég
hafi yngst um mörg ár, eða mér líður allavega þannig. Ég er
svo innilega þakklát fyrir geoSilica og hvað það hefur hjálpað
mér að líða betur”.
Ingibjörg er í
áskrift af PURE
,,Ég hef verið í áskrift af fæðubótaefnum sem
eru úr kísilsteinefnum frá GeoSilica núna í tvö
ár og get mælt með þeim. Þessar vörur eru
einstaklega góðar og ég hef fundið jákvæðan
mun á húð, hári og nöglum. Líður vel af
þessum vörum, hárið er ræktanlegra og
neglurnar vaxa hraðar. Einstaklega þæginlegt
að fá þær sendar heim að dyrum
mánaðarlega”.
Áskriftarleið
Gott er að taka steinefni inn daglega. Við
vitum það að í daglegu amstri er það
líklegt til þess að gleymast. Til þess að
auka við þægindi ákváðum við að bjóða
viðskiptavinum okkar upp á áskriftarleið.
Þar geta viðskiptavinir fengið sitt
uppáhalds steinefni með 15% afslætti og
ókeypis sendingu í hverjum mánuði. Með
þessari leið er líklegra að viðskiptavinir
haldi í þann árangur sem hefur náðst með
inntöku. Áskriftarleiðin hefur fengið
frábærar undirtektir á vefsíðu okkar
www.geosilica.is
Vörurnar koma í vökvaformi og dagleg
inntaka er ein matskeið. Hver flaska dugar
í mánuð. Vörurnar fást í vefverslun
GeoSilica, Fjarðarkaup, Hagkaup, Vegan
búðinni og í völdum apótekum.
REPAIR fyrir liði og bein inniheldur kísil og
mangan en varan hefur slegið í gegn hjá
einstaklingum sem glíma við liðverki.
RENEW fyrir hár, húð og neglur er vinsæl
vara meðal þeirra sem glíma við hárlos,
húðvandamál og brothættar neglur.
RECOVER fyrir vöðva og taugar inniheldur
kísil og magnesíum en sú vara hefur verið
vinsæl meðal þeirra sem stunda
reglulega hreyfingu og glíma við eymsli í
vöðvum. REFOCUS fyrir hug og orku
inniheldur kísil, D vítamín og járn er vinsæl
meðal þeirra sem glíma við járnskort og
mikla þreytu, sérstaklega þegar
skammdegið er sem mest Einnig hefur
REFOCUS verið vinsæl meðal vegan
einstaklinga þar sem það er sjaldgæft að
finna vörur með D vítamín í vökvaformi
sem er vegan vottað. Allar vörur GeoSilica
hafa hlotið vegan vottun og innihalda
engin slæm rotvarnar- eða aukaefni".
,,Hvernig vel ég mér vöru?"
Algengasta spurning sem Steinunn Ósk
markaðsstjóri GeoSilica til margra ára fær.
,,Þetta er algeng spurning sem ég fæ frá
bæði nýjum viðskiptavinum og einnig
þeim sem langar að prufa aðrar tegundir.
Við bjóðum upp á 5 vörur í vörulínu
GeoSilica. Hver og ein vara inniheldur kísil
ásamt viðbættum steinefnum fyrir
heilsubætandi áhrif. PURE inniheldur
eingöngu kísil og er fyrir alhliða heilsu.
GeoSilica var stofnað 2012 út frá lokaverkefni í Háskóla Íslands við
orku- og umhverfistæknifræði. ,,Við erum stolt af því að bjóða upp
á íslenskar vörur, hugvit og framleiðslu. Vörur GeoSilica hafa
slegið í gegn frá upphafi og hefur salan vaxið ár eftir ár. Við erum
þakklát fyrir stuðninginn bæði á Íslandi og í Evrópu", segir Fida
Abu Libdeh stofnandi og framkvæmdastýra GeoSilica.