Víkurfréttir - 02.02.2022, Side 8
Iceland The Photographer’s Paradise er nafn veglegrar ljósmyndabókar sem er
að koma út um þessar mundir. Það er Keflvíkingurinn Jón Sveinsson sem á veg
og vanda af bókinni í samstarfi við Forlagið. Jón hefur í um áratug farið fyrir
hópi áhugaljósmyndara á Facebook. Þar er hópur sem ber nafn bókarinnar,
Iceland The Photographer’s Paradise, og meðlimir eru 66.000 talsins.
Reglan er að aðeins séu birtar myndir frá Íslandi.
Stýrir Facebook-síðu með
mörgum virkum ljósmyndurum
„Forlagið hafði samband við mig
áður en Covidfaraldurinn skall á og
spurði hvort það væri ekki áhugi á
að búa til bók byggða á Facebook
síðunni þar sem ég er með marga
mjög virka ljósmyndara. Á þeim tíma
voru meðlimir síðunnar að setja
upp undir fimmtíu nýjar myndir á
dag en það hefur aðeins dregið úr
virkninni í faraldrinum þar sem er
lendir ljósmyndarar hafa ekki verið
að komast til landsins að mynda.
Síðan byggir á samvinnu við ljós
myndarana. Þegar Forlagið hafði
ákveðið að gefa út bókina deildi ég
því með ljósmyndurum á síðunni og
bauð þeim þátttöku. Viðbrögðin létu
ekki á sér standa og ég fékk sendar
um 4.000 ljósmyndir,“ segir Jón um
tilurð bókarinnar.
Jón segir að myndirnar hafi verið
misjafnar að gæðum en hann hafi
farið í gegnum hverja einustu mynd
og skar fjöldann úr 4.000 niður í
500 myndir sem voru sendar til út
gáfunnar. Þar var haldið áfram að
vinna úr myndunum með tilliti til
lita og prentgæða.
Bókin á bið í Covid
Bókin var svo gott sem tilbúin
þegar Covidfaraldurinn brast á og
þá var ákveðið að bíða með útgáfu
bókarinnar þar til ferðamannaiðn
aðurinn tæki við sér að nýju. „Það
eru aðallega ferðamenn sem kaupa
svona bækur,“ segir Jón. Frestun
útgáfunnar opnaði þá möguleika
á nýjum myndum og þannig náði
eldgosið í Fagradalsfjalli inn á
síður bókarinnar.
Í bókinni eru eitt hundrað
og tuttugu ljósmyndir en ljós
myndararnir eru um áttatíu
talsins. Söluhagnaði bók
arinnar verðu svo skipt
jafnt á ljósmyndir bók
arinnar. Hver ljósmynd
er einn hlutur, þannig
af ef ljósmyndari á
fjórar myndir fær hann
greidda fjóra hluti.
Vonandi
fyrsta bókin
af nokkrum
Jón vonast til að bókin Iceland The
Photographer’s Paradise verði fyrsta
af nokkrum sem byggðar eru upp
með þessum hætti. Hann sér fyrir
sér fjórar bækur fyrir árstíðir á Ís
landi, eina bók um hálendið og svo
lokabókina sem er það besta af því
besta.
Útgáfa ljósmyndabókar með
þessum hætti gefur ljósmyndurum
tækifæri til að fá mynd eftir sig á
prenti og geta barið sér á brjóst
KEFLVÍKINGURINN JÓN SVEINSSON STÝRIR iCelaNd tHe PHOtOgraPHer’S ParadiSe MEÐ 66.000 MEÐLIMUM
Íslandsmyndir Jóns og félaga
8 // vÍkurfrÉttir á SuðurNeSJuM