Víkurfréttir - 09.03.2022, Blaðsíða 9
í leikhúsið og eru pínulítið alin upp
hérna,“ segir Guðný og kímir.
Guðný og Júlíus eiginmaður
hennar innréttuðu Frumleikhúsið
ásamt nokkrum öðrum. „Ég ætla
ekki að segja mörgum öðrum, því
við vorum ekki mörg sem tókum
þátt í að byggja þetta leikhús upp á
sínum tíma.“
Frumleikhúsið er í húsi sem
Karlakór Keflavíkur byggði á sínum
tíma við Vesturbraut 17 í Keflavík.
Karlakórinn gaf síðan Keflavíkurbæ,
síðar Reykjanesbæ, húsnæðið. Leik-
félag Keflavíkur kom fyrst inn í húsið
til bráðabirgða. Þá var þar innrétt-
aður skemmtistaður.
„Við fengum það í gegn að þáver-
andi bæjarstjórn treysti okkur til að
breyta þessu í leikhús og við fengum
til þess ákveðna upphæð. Svo var
málið bara sett í okkar hendur. Við
gerðum þetta á níu mánuðum, einni
meðgöngu, að breyta skemmtistað
í leikhús.
Ég segi bara: „TAKK KARLAKÓR
KEFLAVÍKUR!“ Því þeir settu þá
kvöð á gjöfina að húsið yrði aldrei
selt og það yrði þar menningartengd
starfsemi – og Guð minn góður, hvað
hefði gerst fyrir nokkrum árum ef
þessi kvöð hefði ekki fylgt húsinu?
Þetta er frábær aðstaða sem við
höfum hérna. Leikstjórar sem koma
hingað að starfa með okkur öfunda
okkur af því hvað við höfum það
gott hérna. Við erum umtöluð fyrir
að vera eitt öflugasta áhugaleikfélag
landsins og hafa flottustu aðstöðuna.
Við erum endalaust þakklát fyrir
stuðning bæjaryfirvalda við starf
leikfélagsins og við höfum 100%
komið til móts við bæjarfélagið
okkar og tekið þátt í öllum uppá-
komum á vegum bæjarins, hvort
sem það er Ljósanótt, þrettándinn
eða þjóðhátíðardagurinn. Við erum
alltaf með.
Við erum líka alltaf að fá yngra og
yngra fólk til liðs við leikfélagið sem
er svo tilbúið að taka þátt í þessu.
Við verðum að móta þau á meðan
þau eru klár í þetta.“
Það er ekki slæmur félagsskapur að
taka þátt í starfi leikfélagsins.
„Ef ég tala fyrir mig, þá var ég
fjórtán ára þegar ég byrja og við
vorum þarna nokkrar ungar skvísur
að taka þátt í uppsetningu á Rauð-
hettu og úlfinum. Það er bara
hvernig allir eru á sama planinu,
hvort sem þeir eru með stórt eða
lítið hlutverk, að hvísla á bak við, í
förðun eða búningum, það myndast
einhver kraftur sem ég hef ekki
kynnst á öðrum stað en í leik-
húsinu. Þú kynnist fjölda fólks og
þú kynnist því svo vel baksviðs.
Við þurfum oft að opinbera okkur
svolítið mikið baksviðs og þá erum
við bara eins og ein stór fjölskylda.
Áhorfendur sjá ekkert hvað er að
gerast á bak við. Þetta er magnað
starf, því annars væri maður ekki í
þessu allan þennan tíma. Þetta gefur
manni alveg brjálæðislega mikið.“
Aldrei draumur að verða
atvinnuleikari
Varð aldrei draumur hjá þér að
verða atvinnuleikari, taka þetta
alla leið og fara í Þjóðleikhúsið eða
Borgarleikhúsið?
„Nei. Ég hef oft verið spurð af
þessu. Ég fór á námskeið bæði hér
og erlendis og hef nýtt mér það í
mínu starfi og innan leikfélagsins.
Þegar þetta er orðin atvinna þín,
þá er þetta orðið eitthvað annað en
áhugamál. Mér fannst bara geggjað
að geta tekið þátt þegar ég vildi.
Stundum tekið þátt af fullum krafti
í stóru hlutverki. Ég hef verið heppin
með hlutverk í gegnum tíðina. Svo
gat maður bara stundum verið í
miðasölunni eða afgreitt í sjopp-
unni. Ég fór aldrei í inntökupróf í
leiklistarskólann. Það var aldrei á
dagskránni.“
Hvað er næst á dagskrá hjá þér og
leikfélaginu?
„Næst á dagskrá hjá mér er að
halda áfram mínu starfi með fé-
laginu. Ég er líka svo heppin að ég
er að vinna við þetta. Ég er að kenna
leiklist í Heiðarskóla, þannig að ég
er allan daginn að vafra í þessu. Ég
er ekki hætt að leika, svo sannar-
lega ekki, því þetta er svo mikil
innspýting. Eftir þetta síðasta verk
spyr maður sig hvað maður eigi að
fara að gera. Ekki er ég að fara niður
í leikhús, því það eru ekki sýn-
ingar framundan. Það er svo mikið
tómarúm hjá öllum. Eftir lokasýn-
inguna á Fyrsta kossinum grétum
við öll í kór uppi á sviði af spennu-
falli og söknuði yfir því að upplifa
ekki aftur þessa tíma – en það koma
önnur verk og við hittumst aftur.“
Er tilfinningin góð að vera uppi
á sviði með fullan sal og góð við-
brögð?
„Þetta er algjört kikk. Eins og þú
bendir á, þegar það er fullt af fólki
í salnum og þegar fólk er ánægt og
lófaklapp, það lyftir þér á hærra plan.
Það er líka jafn ömurlegt að vera
fyrir tómum sal að sýna og enginn
er að skemmta sér. Það hefur alveg
gerst, mjög sjaldan en það hefur
komið fyrir.“
Fólk vill revíur og barnaleikrit
Revíurnar, þar sem gert er grín að
bæjarbragnum og pólitíkinni, það
er vinsælt.
„Já, fólk vill sjá það. Pólitíkusar
fara stundum í fýlu þegar þeir eru
teknir fyrir og móðgast. Þeir fara
líka í fýlu ef þeir eru ekki teknir
fyrir. Við höfum tekið ykkur fyrir hjá
Víkurfréttum og allskonar menn og
málefni. Revíurnar okkar og barna-
sýningar er það vinsælasta sem við
setjum á svið. Við getum alltaf stólað
á fullt hús á þessum sýningum.
Framundan er svo geggjað verk
sem er verið að æfa í þessum töl-
uðum orðum. Það er samstarf Leik-
félags Keflavíkur og Vox Arena sem
er leikfélag Fjölbrautaskóla Suður-
nesja. Þau eru að æfa söngleikinn
Grease. Þar er Brynja, litla stelpan
mín sem skrifaði Fyrsta kossinn,
leikstjóri og er að standa sig brjál-
æðislega vel eins og hún gerir í flestu
því sem hún tekur sér fyrir hendur.“
Í haust mun Leikfélag Keflavíkur
setja upp barnasýningu og þar sem
það eru sveitarstjórnarkosningar í
vor þá verður örugglega til efniviður
í góða revíu sem verður sett á svið
eftir næstu áramót.
Leiklistin með móðurmjólkinni
Dætur þínar hafa fengið þetta beint
í æð frá foreldrunum.
„Báðar stelpurnar okkar hafa
glimrandi áhuga á leiklistinni, dreng-
urinn ekki alveg jafn mikið en það
vonandi kemur. Hann hefur einu
sinni farið á svið hérna og hann kom
tvisvar á sýninguna Fyrsti kossinn
og skemmti sér mjög vel. Hann er
stoltur af fólkinu sínu.“
Guðni Th. Jóhannesson, for-
seti Íslands, kom á eina af síðustu
sýningum á Fyrsta kossinum. „Það
er svo mikill heiður að fá forsetann.
Hann var að koma í annað sinn til
okkar. Hann kom líka á Dýrin í hálsa-
skógi með fjölskylduna. Þegar hann
kom til okkar á bak við þá sagði hann
við mig: „Þú ert greinilega ekki að
gera þetta í fyrsta sinn,“ og ég varð
dálítið montin. Ég sagði honum að ég
væri með 40 ára reynslu á bakinu og
gæti átt alla þessa krakka. Þá spurði
hann: „Er það ekki geggjað?“ Er ekki
einmitt svo geggjað við þetta starf
að það skiptir ekki máli hvort þú ert
55 ára og búin að vera í félaginu í
40 ár eða bara sextán ára að byrja?
Ég veit ekki hvað á að kalla þetta,
þetta er bara eitthvað annað. Fólk
þarf bara að koma og prófa að upp-
lifa þetta. Þess vegna er ég ennþá að
þessu. Þessi upplifun og allt þetta
fólk í kringum þetta. Að kynnast öllu
þessu skemmtilega fólki og öllum
þessum leikstjórum, sem allir vinna
svo misjafnt. Það er enginn leikstjóri
eins.“
Leikfélag Keflavíkur hefur verið
duglegt að fá þekkta leikstjóra til
samstarfs og einnig að nota heima-
fólk eins og til dæmis leikara sem
hafa verið innan félagsins en svo
farið í leiklistarnám.
„Það er alveg sama við hvaða leik-
stjóra við tölum, þeir eru allir til í að
koma án þess að hugsa sig um. Það
er frábært að Leikfélag Keflavíkur
hafi það orð á sér líka að það vilji
allir koma að vinna með okkur. Hér
er metnaður, mikill metnaður,“ segir
Guðný Kristjánsdóttir.
Aðalfundur í Samkaupum hf.
Stjórn Samkaupa hf. boðar hér með til aðalfundar
í félaginu fyrir rekstrarárið 2021.
Fundurinn verður haldinn miðvikudaginn 9. mars
2022 kl. 14.00 á skrifstofu félagsins að Krossmóa
4a, 260 Reykjanesbæ.
Á dagskrá fundarins eru aðalfundarstörf samkvæmt
14. gr. samþykkta félagsins.
Þá verður lögð fyrir fundinn tillaga um að félagið megi
eignast og eiga allt að 10% hlutafjár í félaginu í þrjú
ár.
Þetta er magnað
og ég held að það
sé alls ekki algengt í svona
leikfélögum að leikarar dansi,
syngi og leiki á hljóðfæri ...
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, hér ásamt leikhópnum
á einni af síðustu sýningum á Fyrsta kossinum.
Fulla kerlingin og fúli karlinn í Fyrsta kossinum,
Guðný og Arnar Helgason í hlutverkum sínum.
vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM // 9