Víkurfréttir - 09.03.2022, Síða 14
Framherjinn öflugi frá
Venesúela, Daniela
Wallen, hefur leikið vel
með Keflvíkingum síðustu
þrjú tímabil. Daniela svar-
aði nokkrum laufléttum
spurningum Víkurfrétta.
Hefurðu fasta rútínu á leikdegi?
Enga sérstaka en það er nauðsyn-
legt að taka smá smá lúr fyrir leik.
Hvenær byrjaðir þú í körfu og af
hverju valdirðu körfubolta?
Ég byrjaði þegar ég var fimmtán
ára og ég valdi körfubolta af því að
það er íþróttin sem báðir foreldrar
mínir elska og spiluðu áður.
Hver er besti körfuboltamaður
allra tíma? Michael Jordan
– engin spurning.
Hver er þín helsta fyrirmynd?
Mamma mín.
Hvert er eftirminnilegasta atvikið á
ferlinum? Ég gæti valið tvö atvik en
ætla að velja leikinn sem ég spilaði
eftir að mamma mín lést, ég spilaði
frábærlega henni til heiðurs og var
óstöðvandi á vellinum.
Hver er besti samherjinn? Þessa
stundina eru það Katla [Rún Garð-
arsdóttir] og Dalla [Salbjörg Ragna
Sævarsdóttir].
Hver er erfiðasti andstæðingurinn?
Ég held að öll lið sem við spilum
gegn séu erfið, hvert lið hefur
ólíkan leikstíl og styrk sem gerir
keppnina erfiða. Fyrir mér erum við
sjálfar erfiðasti andstæðingurinn,
þess vegna verðum við að leggja
hart að okkur á hverjum degi til að
verða betri.
Hver eru markmið þín á þessu
tímabili? Læra af mistökunum.
Hvert stefnir þú sem íþrótta-
maður? Stöðugt að bæta mig.
Hvernig væri fimm manna úrvalslið
þitt skipað með þér?
Diana Taurasi, Candace Parker, A’ja
Wilson, Lindsay Whalen og ég.
Fjölskylda/maki: Ekki enn.
Hvert er þitt helsta afrek fyrir utan
körfuboltann? Það stærsta var að
útskrifast úr háskóla.
Áttu þér áhugamál fyrir utan
körfuboltann? Ég teikna eða bara
spila PlayStation.
Ef þú ætlar að gera vel við þig,
hvað gerirðu? Kaupi mér nýja skó,
ég elska skó.
Hver er uppáhaldsmaturinn þinn?
Lasagna.
Ertu öflug í eldhúsinu? Ég get
alveg sagt að ég búi yfir hæfileikum
í eldamennsku – en það er ekki með
því skemmtilegasta sem ég geri.
Býrðu yfir leyndum hæfileika?
Ég held ekki.
Er eitthvað sem fer í taugarnar á
þér? Þegar fólk lýgur að mér.
Iðavellir 9c // 230 Reykjanesbær // Sími: 421 8085 // bilaver@bilaver.is
ATVINNA
Óskum eftir BIFVÉLAVIRKJA eða
vönum VERKSTÆÐISMANNI til starfa.
Umsóknum er svarað netfanginu
bilaver@bilaver.is
Nauðsynlegt að taka smá lúr fyrir leik
Michael Jordan er sá besti
að mati Daniela.
Morillo í leik með venesúelska landsliðinu
í Ameríkukeppninni á síðasta ári.
TREYJA NÚMER:
6
SKILAFRESTUR VEGNA STJÓRNARKJÖRS
Samkvæmt 6. grein laga Starfsmannafélags Suðurnesja auglýsir
uppstillingarnefnd félagsins frest til að skila inn tillögum vegna stjórnarkjörs
á aðalfundi félagsins sem haldinn verður 19. apríl 2022.
Í kjöri eru tveir aðalmenn í stjórn kosnir til tveggja ára og tveir varamenn kosnir til eins árs.
Tillögum skal skila til uppstillingarnefndar STFS, Krossmóa 4a, Reykjanesbæ eigi síðar
en 20. mars 2022. Tillögum skal fylgja; nafn, kennitala, starfsheiti, heimilisfang og heiti
vinnustaðar þeirra sem tillagan er gerð um.
Tillögum skal fylgja skriflegt samþykki þeirra sem tillaga er gerð um.
Uppstillingarnefnd
HÖ
NN
UN
: V
ÍK
UR
FR
ÉT
TIR
NAFN: ALDUR:
DANIELA WALLEN 26 ÁRA
STAÐA Á VELLINUM:
FRAMHERJI [FORWARD 3/4]
MOTTÓ:
GUÐS TÍMI ER FULLKOMINN
Störf í boði
hjá Reykjanesbæ
Umsóknir í auglýst störf skulu berast rafrænt gegnum vef
Reykjanesbæjar. Þar eru jafnframt nánari upplýsingar um auglýst
störf. Hægt er að notast við QR kóða til að fara beint inn á vefinn
Leikskólinn Holt – Deildarstjórar
Leikskólinn Holt – Leikskólakennarar
Duus Safnahús – Upplýsingagjöf og sýningagæsla
Velferðarsvið – Dagdvöl aldraðra
Vinnuskóli – Yfirflokkstjóri skrifstofu
Vinnuskóli – Flokkstjórar
Vinnuskóli – Sérverkefna flokkstjóri
Vinnuskóli – Skrúðgarða flokkstjóri
Vinnuskóli – Yfirflokkstjóri í virku eftirliti
Starf við liðveislu
sport