Víkurfréttir - 13.04.2022, Page 8
Myndlistarmars Myndlistaskóla Reykjaness var haldinn í samstarfi við Listaskóla Fjörheima.
Námskeiðin voru haldin í mars eins og nafnið gefur til kynna við góðar undirtektir fyrir öll skóla-
stigin í samstarfi við Fjörheima.
Námskeiðin voru öll ókeypis og eins konar smjörþefur af smiðjum sem munu vera í boði í Mynd-
listaskóla Reykjaness en stefnan er að vera komin með húsnæði fyrir skólann í haust.
Fyrsta námskeiðið var fyrir nemendur 1.–4. bekk, Teikning, tjáning og tilraunir. Næsta námskeið
22. mars var fyrir 5.–7. bekk, Málaramars og marmari. Síðasta námskeiðið var svo haldið í lok mars
fyrir 8.–10. bekk, Grafíkgrúsk og gjörningar.
Meðfylgjandi myndir voru teknar í Myndlistarmars.
Smjörþefur af smiðjum
sem verða í boði í
Myndlistaskóla Reykjaness
TJÓNASKOÐUN
BÍLAMÁLUN OG RÉTTINGAR
BÍLRÚÐUSKIPTI/VIÐGERÐIR
INNSTILLING Á ÖRYGGISBÚNAÐI
MYNDAVÉL OG FJARLÆGÐARRADAR
Bolafæti 3 – Njarðvík
Sími 421 4117
bilbot@simnet.is
Starfsmenn Bergraf, sem sjá um þjónustu við gatnalýsingu á
Suðurnesjum, þakka starfsmönnum sveitarfélaga og íbúum á
Suðurnesjum fyrir samstarfið í vetur. Við þökkum einnig fyrir
þolinmæðina og skilninginn sem íbúar sýndu okkur þegar
veður var sem verst og við áttum í vandræðum með að halda við
gatnalýsingu í sveitarfélögunum og á Reykjanesbrautinni.
Gleðilega páska!
Gaf Tónlistarskóla Sand-
gerðis forláta flygil
Tónlistarskóla Sandgerðis barst
höfðingleg gjöf, hvorki meira né
minna en flygill af gerðinni Görs &
Kalmann.
Margrét Pálsdóttir, píanóleikari
og fyrrverandi flugfreyja, dóttir Páls
Kr. Pálssonar organista og stofn-
anda Tónlistarskóla Hafnarfjarðar,
gaf tónlistarskólanum þennan for-
láta flygil. Hún er fyrrum nágranni
Sigurgeirs Sigmundssonar, gítar-
kennara skólans, af æskuheimili
hans á Seltjarnarnesinu. Margrét
setti sig í samband við Sigurgeir og
bauð okkur þessa höfðinglegu gjöf
sem Tónlistarskóli Sandgerðis að
sjálfsögðu þáði.
„Við þökkum Margréti hjartanlega
fyrir! Flygillinn á svo sannarlega eftir
að koma að góðum notum og nýtast
nemendum og kennurum í fram-
tíðinni,“ segir í færslu á fésbókarsíðu
Tónlistarskólans í Sandgerði.
Margrét Pálsdóttir og Sigurgeir
Sigmundsson við flygilinn.
Flygillinn er af gerðinni
Görs & Kalmann.
8 // víkurFrÉttir á SuðurNESJuM