Víkurfréttir


Víkurfréttir - 13.04.2022, Blaðsíða 14

Víkurfréttir - 13.04.2022, Blaðsíða 14
Atkvæðagreiðsla utan kjör- fundar vegna sveitarstjórnar- kosninga 14. maí 2022 Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna sveitarstjórnarkosninga hefst föstudaginn 15. apríl og verður fyrst um sinn einungis á skrifstofu sýslumanns að Vatnsnesvegi 33, Reykjanesbæ. Unnt er að greiða atkvæði utan kjörfundar á afgreiðslutíma sýsluskrifstofu, sem er: virka daga frá klukkan 8:30 til 15. 15. og 16. apríl verður þó unnt að greiða atkvæði klukkan 12–14 báða dagana. Kjósendur skulu hafa meðferðis gild persónuskilríki (ökuskírteini, vegabréf eða nafnskírteini). Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar vegna íbúakosningar í Sveitarfélaginu Hornafirði sem fram fer samhliða kosningum til sveitastjórna fer einnig fram á fyrrgreindum stað og tíma- setningum. Opnunartími verður lengdur og kjörstöðum fjölgað þegar nær dregur kjördegi og verður það auglýst nánar síðar. Sýslumaðurinn á Suðurnesjum 8. apríl 2022 Ásdís Ármannsdóttir „Hér erum við í dag að upplifa stórkostlegar umbætur og miklu stærri en maður áttar sig á og það er mikilvægt að koma því á fram- færi. Ég segi gjarnan við fólkið mitt í ráðuneytinu að við erum liðið á bakvið liðið og Heilbrigðisstofnun Suðurnesja er hjartað í þessu bæjar- félagi til að þjónusta fólk sem þarf á heilbrigðisþjónustu að halda. Hér hefur átt sér stað mikil fjölgun á til- tölulega skömmum tíma og í raun ótrúlegt hvað stofnunin hefur sýnt mikil þolgæði í gegnum þetta og við þurfum að standa með henni og styðja hana. Þessi dagur er búinn að vera mjög ánægjulegur að upplifa og sjá þessar umbætur sem eru í far- vatninu,“ sagði Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra, í samtali við Víkurfréttir þegar ný röntgendeild var opnuð á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja í síðustu viku. Hvað sérð þú sem heilbrigðisráð- herra að Heilbrigðisstofnun Suður- nesja eigi að leggja áherslu á? „Hún á að geta þjónustað mest allar aðgerðir og alla minniháttar bráðaþjónustu. Hún á að geta tekið álagið af Landspítalanum þar sem flóknustu aðgerðirnar eiga sér stað. Þess vegna er svo mikilvægt að við styrkjum stofnunina. Þetta röntgen- tæki sem við sjáum hér í dag í nýrri aðstöðu er eitt skref á þeirri vegferð.“ Er möguleiki á að það verði aftur skurðstofuþjónusta á Heilbrigðis- stofnun Suðurnesja í náinni framtíð? „Það er alls ekki útilokað. Það sem hefur staðið í veginum er mönn- unin. Það er kominn áratugur síðan var skurðstofunum lokað og þá var mönnunarvandi og hann er enn til staðar. Við erum alltaf að kljást við þessa takmörkuðu auðlind sem er mannauðurinn. Þetta snýst allt um þjónustu af mjög vel menntuðu og hæfu starfsfólki og þess vegna verðum við að einbeita okkur að því að hlúa að stofnuninni og því sem hún ætti að vera að gera og skil- greina hlutverkin mjög vel. Þetta er orðið 30.000 manna svæði hér og flugvöllur og við þurfum að tryggja góða þjónustu. Það blasir við hvað það er mikill akkur í því að styrkja stofnunina eins og hún er staðsett hérna á þessu svæði. Sama gildir um allt suðurlandið fyrir Heilbrigðis- stofnun Suðurlands og kragasvæðið sem við höfum stækkað og útvíkkað til að kjarna betur hlutverk Land- spítalans. Það dregur fram hvað það eru mikilvægar umbætur að eiga sér stað hér og við þurfum að segja frá og samfélagið þarf að upplifa þær.“ Willum Þór segir að Heilbrigðis- stofnun Suðurnesja hafi mætt and- streymi við það að þurfa að mæta mikilli íbúafjölgun á skömmum tíma. Hann segir að næsta stóra skref sem þurfi að taka hjá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja sé heilsugæslan. Aug- lýst var eftir húsnæði fyrir bráða- birgða heilsugæslustöð í nóvember á síðasta ári. „Því miður gerast hlutir stundum of hægt þegar við erum að tala um að byggja undir opninbera þjónustu. Við vitum það að eftir fjögur ár á að opna nýja og nútímavædda heilsu- gæslu í Innri-Njarðvík en það er bara of langur tími og fjöldinn er of mikill og heilusgæslan er of lítil. Við þurfum hér með öllum þeim sem standa að pólitíkinni á svæðinu og ekki síst stofnuninni, hún þarf alltaf að vera í fyrirrúmi í þjónustu við fólkið, hvernig við getum hraðar hjálpað heilsugæslunni hér og komið á bráðabigrðastöð. Hin mun alltaf opna. Sama gildir um heilsugæslusel í Garði og Sandgerði, það er full ástæða til að taka það. Ef okkur tekst að taka sameiginlega ákvörðun um þetta hvar hún á að vera og hvernig við byggjum hana hraðar, kannski bara á tveimur árum, þá getum við tekið álagið af hér. Við þurfum um leið að tryggja mönnunina.“ Þegar ráðherra er spurður hvort Suðurnesjamenn þurfi virkilega að bíða í tvö ár eftir bráðabirgða heilsugæslustöð, segir hann að það sé betra að hafa tímann fyrir sér og skapa ekki of miklar væntingar þó hugurinn sé mikill. Vonandi sé hægt að opna fyrr því þetta sé málefni sem brennur á heimafólki. Ný röntgendeild var opnuð í D-álm- unni á Heilbrigðisstofnun Suður- nesja í síðustu viku að viðstöddum heilbrigðisráðherra, landlækni og bæjarstjórum allra sveitarfélaganna á Suðurnesjum. Samhliða var nýr röntgenmyndgreiningarbúnaður frá Philips tekinn í notkun á nýja staðnum. Búnaðurinn og aðstaðan er algjör bylting fyrir geislafræð- inga að vinna við nýja tækið þar sem gamla tækið var búið þungum myndplötum sem þurfti að burðast með fram og til baka. Tækið heitir Philips Digital diag- nost C90 high performance. Það er stafrænt og hefur það jákvæð áhrif bæði fyrir starfsmenn og sjúklinga sem verið er að mynda. Tækið er búið m.a. þeim kostum að vera með fjarstýrðan búnað, myndavél, frábær myndgæði og geislaskammtastýr- ingu sem er einstaklingsmiðuð. Þetta auðveldar geislafræðingum vinnuna, afköstin verða betri og ánægðari upplifun sjúklinga. Kostnaður tæk- isins var tæplega 48 milljónir. Árið 2021 voru gerðar tæplega fimm þúsund röntgenrannsóknir á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Opnun röntgendeildarinnar á nýjum og rúmbetri stað innan Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja er fyrsti áfangi í stóru verkefni á breytingum húsnæðis HSS. Næsti áfangi framkvæmda er að innrétta nýja slysa- og bráðamóttöku við hlið röntgendeildarinnar, jafnframt því sem móttaka sjúkrabíla. Frekari framkvæmdir eru fyrirhugaðar eða þegar í gangi og verður greint nánar frá þeim í Víkurfréttum í næstu viku. Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra, Jórunn Garðarsdóttir, deildarstjóri röntgendeildar HSS, Alma D. Möller, landlæknir, og Markús Ingólfur Eiríksson, forstjóri HSS. VF-myndir: pket Fjölmenni var við opnun nýju röntgendeildarinnar en miklar umbætur eiga sér nú stað á húsnæði Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja. Ný röntgendeild opnuð á HSS Bæjarstjórarnir Kjartan Már Kjartansson, Ásgeir Eiríksson, Magnús Stefánsson og Fannar Jónasson ásamt Markúsi, forstjóra HSS. - segir Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra Þurfum að standa með HSS og styðja 14 // víkurFrÉttir á SuðurNESJuM

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.