Víkurfréttir - 23.05.2022, Blaðsíða 4
TJÓNASKOÐUN
BÍLAMÁLUN OG RÉTTINGAR
BÍLRÚÐUSKIPTI/VIÐGERÐIR
INNSTILLING Á ÖRYGGISBÚNAÐI
MYNDAVÉL OG FJARLÆGÐARRADAR
Bolafæti 3 – Njarðvík
Sími 421 4117
bilbot@simnet.is
Rétturinn
Ljúengur
heimilismatur
í hádeginu
Opið:
11-13:30
alla virka daga
Bílaviðgerðir
Smurþjónusta
Varahlutir
Brekkustíg 38 - 260 Njarðvík
sími 421 7979
www.bilarogpartar.is
Garðaúðun Reynis Sig.
• 22 ára reynsla.
• Úðunartímabil; u.þ.b. 15. maí
til 5. júlí.
• Við þjónustum í Hafnarfirði,
Garðabæ, Kópavogi, Borgar-
firði og víðar.
• Við úðum garða og tré í
öllum stærðum.
• Við tökum að okkur að taka
geitungabú og einnig stærra
hreiður. Úðum líka fyrir
kóngulóm.
899 0304
ATVINNA
Blaðberi óskast hjá
Morgunblaðinu.
Upplýsingar veitir
Guðbjörg í síma
8609199
Húsnæði óskast
Óska eftir íbúð með/án hús-
gagna í langtímaleigu. leiga frá
júní 2022.
Hafið samband: Huldu Ósk lfs.
S.7712528 Hulda@valborgfs.is
SMáauglÝSiNgar
Löggæsla verður aukin í Grindavík og sérstaklega yfir
næturtímann, frá miðnætti og til morguns. Þetta kom
fram í máli Hjálmars Hallgrímssonar, lögreglumanns
í Grindavík, á íbúafundi í Grindavík í síðustu viku.
Boðað var til fundarins vegna þeirra jarðhræringa sem
verið hafa við Grindavík síðustu daga. Löggæslan er
aukin til þess að íbúar í Grindavík geti sofið rólegra en
jarðskjálftar undanfarið og landris við Þorbjörn hefur
áhrif á líf fólks.
„Staðan er sú að við erum klár með viðbragðsáætlun
vegna eldgoss í Grindavík. Hún tók gildi í upphafi síðasta
árs. Eftir henni var unnið í eldgosinu á Fagradalsfjalli
þá sex mánuði sem það var í gangi. Núna, enn aftur er
búið að virkja þess áætlun, eftir að lýst var óvissustigi al-
mannavarna vegna jarðhræringa síðastliðinn sunnudag.
Viðbragðsáætlanir eru verkfæri fyrir þá viðbragðsaðila
sem þurfa að vinna eftir þeim. Þær eru aðgengilegar fyrir
þá sem þurfa að kynna sér innihald þeirra, t.d. á heima-
síðum almannavarna og lögreglu,“ sagði Hjálmar Hall-
grímsson á fundinum.
„Að sama skapi eru rýmingaráætlanir klárar, jafnt
fyrir almenning, sem og stofnanir og stærstu fyrirtæki.
Á næstu dögum munu fulltrúar almannavarnanefndar
heimsækja stofnanir og eftir atvikum fyrirtæki til að fara
yfir þessar áætlanir,“ sagði hann jafnframt.
Á heimasíðu Grindavíkurbæjar má finna upplýsingarit
með korti og tilmælum vegna rýmingar í Grindavík á
íslensku og pólsku.
Hjálmar segir að samstarf viðbragðaðila á svæðinu
vera mjög gott. „Það sýndi sig sérstaklega þegar við
fengumst við eldgosið í Fagradalsfjalli. Þar unnu allir
viðbragðsaðilar sem ein heild, hvort sem um var að
ræða björgunarsveitir, lögreglu, slökkvilið og alla aðra
sem komu að því stóra verkefni. Viðbragðáætlunin
virkaði eins og hún átti að gera. Bjargir komu fljótt og
vel á svæðið, skipulagið var gott og fjarskiptakerfið gekk
upp. Að endingu er vert að benda á að hér í Grindavík
erum við einhverja öflugustu björgunarsveit landsins,
hvort heldur litið sé til mannauðs eða tækjakosts,“ sagði
Hjálmar að endingu á fundinum.
Grindvíkingar fjölmenntu á íbúa-
fund sl. fimmtudagskvöld sem
bæjaryfirvöld boðuðu til vegna
óvissustigs almannavarna sem
lýst var yfir sunnudaginn 15. maí.
Á íbúafundinum voru vísindamenn
frá Veðurstofu Íslands og Jarðvís-
indastofnun Háskóla Íslands með
framsögu, auk fulltrúa frá HS Orku,
Náttúruhamfaratryggingum Ís-
lands og frá lögreglu og björgunar-
sveit í Grindavík. Frá 27. apríl og
fram til 21. maí sl. hefur land risið
við Þorbjörn um fjóra til fimm
sentimetra en kvikuinnskot er
talið vera á um sjö kílómetra löngu
belti sem liggur frá Sýlingarfelli í
norðaustri og Sundvörðuhrauni og
Eldvörpum í suðvestri. Kvikan er
talin vera á fjögurra til fimm kíló-
metra dýpi.
Hraungos á vondum stað
getur valdið miklu tjóni
en manntjón ólíklegt
Magnús Tumi Guðmundsson, pró-
fessor í jarðeðlisfræði við Háskóla
Fundað með Grindvíkingum vegna umbrota við Þorbjörn
Löggæsla aukin vegna óvissustigs í Grindavík
Íslands, segir það mikil tíðindi jarð-
fræðilega að Reykjanesskaginn
sé farinn af stað. Magnús fór yfir
eldgosasögu Reykjanesskagans og
áréttaði að engin hamfaragos geti
átt sér stað á skaganum. Hraungos
á vondum stað geta þó valdið miklu
tjóni. Að eldgos á Reykjanesskag-
anum geti valdið manntjóni sagði
hann mjög ólíklegt.
Áframhaldandi jarðskjálftavirkni
samhliða kvikusöfnun
Kristín Jónsdóttir, hópstjóri náttúru-
várvöktunar hjá Veðurstofu Íslands,
úrskýrði á íbúafundinum hvað væri
að gerast í náttúrunni við Grindavík.
Hús sýndi m.a. líkan sem gert hefur
verið svo auðveldara sé að átta sig
á kvikuinnskotinu í Svartsengi. Á
líkaninu má sjá innskotin þrjú sem
urðu árið 2020 og einnig það sem
nú er í gangi. Það er metið á 4-5 km.
dýpi og er aðeins dýpra en innskotin
sem urðu 2020. Jarðskjálftavirknin er
svo að dreifast allt í kringum kviku-
innskotið sem líkja má við langan og
mjóan borða eða sillu en líkanið gerir
ráð fyrir að innskotið nái yfir sjö til
átta kílómetra svæði sem liggur frá
Sýlingarfelli norðaustri og í suðvestur
á milli Bláa lónsins og Þorbjarnar og
allt að Sundvörðuhrauni.
Kristín segir skjálftana verða af
því að kvikan þurfi pláss og þar sem
hún þrýstist upp í jarðlögin þá valdi
hún skjálftum allt í kringum inn-
skotið.
Uppsafnaður fjöldi jarðskjálfta
sem eru af stærðinni M3,0 eða
stærri eru orðnir 900 talsins frá því
fyrsta innskotavirknin og landrisið
varð við Þorbjörn í ársbyrjun 2020.
Flestir urðu skjálftarnir í aðdraganda
eldgossins í febrúar og mars 2021 og
svo aftur í innskoti í Fagradalsfjalli í
desember 2021.
Kristín varpaði fram þeirri
spurningu við hverju væri að búast
og hvað við værum að fara að sjá
næstu daga og mánuði. Hún sagði
að búast mætti við áframhaldandi
jarðskjálftavirkni samhliða kviku-
söfnun. Hún sagði virknina halda
áfram á svipuðum slóðum við Þor-
björn, Svartsengi og áfram á Reykja-
nesskaganum.
„Svo höfum við verið að tala um
skjálfta í Brennisteinsfjöllum. Við
vitum að stærstu jarðskjálftarnir á
Reykjanesskaganum verða í Brenni-
steinsfjöllum, en þau eru rétt austan
við Kleifarvatn, milli Bláfjalla og
Kleifarvatns. Sagan segir okkur það
að þarna verða skjálftar af stærðinni
6 til 6,5 á svona fimmtíu ára fresti.
Nú eru komin fimmtíu og fjögur ár
frá því að síðasti skjálfti var. Við
vitum líka að þessir skjálftar gerast
samhliða miklum jarðskjálftahrinum
og nú erum við á svoleiðis tímabili.
Það verður því miður að teljast
frekar líklegt að það styttist í þennan
skjálfta,“ sagði Kristín. Hún sagði líka
að áhrif skjálfta í Brennisteinsfjöllum
yrðu meiri á höfuðborgarsvæðinu en
í Grindavík og ráðist það af fjarlægð
frá upptökum.
Landrisið við Þorbjörn framhald
af atburðum frá 2020
Halldór Geirsson, jarðeðlisfræðingur
og dósent við Háskóla Íslands, fór
yfir jarðskorpuhreyfingar og hvernig
þær tengjast þeim jarðskjálftum sem
orðið hafa í og við Grindavík síðustu
daga og vikur. Halldór sagði að á
síðustu tveimur árum hefur mæla-
kerfið á Reykjanesskaganum verið
bætt mikið. Núna stendur yfir fjórða
ristímabilið við Þorbjörn frá árinu
2020, en það ár komu þrjár rislotur
við fjallið. Atburðirnir sem nú eru
í gangi eru áþekkir því sem gerðist
fyrir tveimur árum og eru framhald
af þeim atburðum.
Mikilvægasta virkjun HS
Orku í Svartsengi
Kristinn Harðarson, framkvæmda-
stjóri framleiðslu hjá HS Orku,
segir virkjunina í Svartsengi vera
mikilvægustu virkjun fyrirtækisins.
Þaðan er dreift heitu og köldu vatni
til allra sveitarfélaga á Suðurnesjum,
auk þess sem þar er framleitt raf-
magn. „Svartsengi er mikilvægur
innviðapunktur,“ sagði Kristinn á
íbúafundinum.
Hann sagði að HS Orka hafi
gengið í gegnum mikinn lærdóm í
fyrra þegar jarðskjálftahrina hófst
24. febrúar 2021 og yfir 50.000
jarðskjálftar urðu á svæðinu, þar af
60 yfir M4,0 og sá stærsti mældist
M5,7. Kristinn sagði að vélbúnaður
í Svartsengi hafi staðist þá áraun
vel og engar alvarlega skemmdir
hafi orðið á búnaði sem ógnað gætu
rekstraröryggi virkjunarinnar. Þá
hafi engar skemmdir orðið á bor-
holum og í raun hafi jarðskjálftarnir
haft jákvæð áhrif á jarðhitakerfið.
Nú er tímapunkturinn til að huga
að náttúruhamfaratryggingum
Hulda Ragnheiður Árnadóttir, for-
stjóri Náttúruhamfaratrygginga Ís-
lands, sagði að nú væri tímapunkt-
urinn sem hægt væri að gera ýmis-
legt til að huga betur að trygginga-
verndinni. Náttúruhamfaratrygging
Íslands tryggir landsmenn alla fyrir
tjóni sem kann að verða m.a. vegna
jarðskjálfta og eldgosa. Lausafé eins
og t.d. innbú er hægt að tryggja fyrir
jarðskjálftum og eldgosum en það
gerist með því að verðmætin séu
brunatryggð hjá almennum trygg-
ingafélögum.
Öll erindin sem flutt voru á íbúa-
fundinum eru aðgengileg á vef
Víkurfrétta. Þú getur horft á þau
í rafrænni útgáfu Víkurfrétta
með því að smella á Youtube-
táknið hér að ofan Eða skannað
táknið hér að neðan með snjall-
tækinu þínu.
Magnús Tumi Guðmundsson, prófessor í jarðeðlisfræði, og Fannar Jónasson,
bæjarstjóri í Grindavík, ræða málin fyrir íbúafundinn. VF-mynd: Hilmar Bragi
Kvikuinnskotið, eða laggangurinn,
sem er að myndast við Þorbjörn.
Jarðskjálftar raða sér allt
í kringum lagganginn.
4 // víkurFrÉttir á SuðurNESJuM