Víkurfréttir - 13.07.2022, Blaðsíða 2
FINNDU OKKUR Á FACEBOOK
DAGLEGAR FERÐIR ALLA VIRKA DAGA
S U Ð U R N E S - R E Y K J A V Í K
845 0900
FERÐIR Á DAG
ALLTAF PLÁSS
Í BÍLNUM
HREINSUM
RIMLAGARDÍNUR OG
MYRKVUNARGARDÍNUR
NÁNARI UPPLÝSINGAR Á ALLTHREINT.IS
Sjávarútvegur stórefldur eftir kaup
Síldarvinnslunnar á Vísi í Grindavík
Samkomulag hefur náðst um að
Síldarvinnslan hf. kaupi allt hlutafé
í Vísi hf. í Grindavík sem verður
greitt með hlutabréfum í Síldar-
vinnslunni hf. Með viðskiptunum
verður Vísisfjölskyldan meðal kjöl-
festufjárfesta í Síldarvinnslunni hf.
og stefnt er að því að stórefla sjáv-
arútveg á svæðinu. Kaupverð hluta-
fjár er 20 milljarðar króna, vaxta-
berandi skuldir um 11 milljarðar
og samtals nema því viðskiptin
um 31 milljarði króna. Í kjölfar
viðskiptanna verða höfuðstöðvar
bolfiskvinnslu Síldarvinnslunnar
hf. hjá Vísi hf. í Grindavík og Pétur
Hafsteinn Pálsson verður áfram
framkvæmdastjóri Vísis. Kaupin
eru háð samþykki hluthafafundar
Síldarvinnslunnar hf. og Sam-
keppniseftirlitsins.
Pétur Hafsteinn Pálsson, fram-
kvæmdastjóri Vísis hf., segir: „Við
hjá Vísi sjáum mikil tækifæri í
þessum viðskiptum fyrir Grindavík
og Reykjanes í heild og erum þess
fullviss að forsendur þess að byggja
upp bolfiskvinnsluna í Grindavík
eru réttar og munu standast tímans
tönn. Við höfum alltaf verið og erum
afar stolt af starfsfólki Vísis sem fær
með þessu frekari tækifæri til þess
að takast á við enn öflugri atvinnu-
sköpun í Grindavík. Þessi atriði gera
þessa stóru ákvörðun okkar léttari.“
Styrkari stoðir og
tækifæri til framtíðar
Seljendur og kaupendur eru sam-
mála um að með þessum viðskiptum
sé verið að styrkja stöðu beggja fé-
laga til framtíðar og Vísir hf. verður
rekið sem dótturfélag og mun starf-
semin í Grindavík verða öflugri og
ýta undir samkeppnishæfni og sjálf-
bærni til lengri tíma í sátt við um-
hverfið. Þá mun alþjóðlegt sölu- og
markaðsstarf félaganna eflast. Vísir
hf. er rótgróið fjölskyldufyrirtæki í
sjávarútvegi og starfsfólk og stjórn-
endur félagsins búa yfir mikilli þekk-
ingu og reynslu á bolfiskvinnslu. þar
sem áhersla er lögð á ábyrgar veiðar,
hátæknivinnslu og vörugæði. Á fisk-
veiðiárinu 2022–2023 eru væntar
aflaheimildir félagsins um 15 þúsund
þorskígildistonn. Ársverk á síðasta
ári voru um 250. Ársveltan var rúm-
lega 10 milljarðar króna og hagnaður
ársins liðlega 800 milljónir króna.
Síldarvinnslan hf. er eitt af
stærstu sjávarútvegsfyrirtækjum
landsins og er helsti framleiðandi
uppsjávarafurða á Íslandi. Félagið er
skráð í Kauphöll Íslands og eru hlut-
hafar hátt í fimm þúsund talsins. Á
síðasta ári voru ársverk samtals um
360. Á fiskveiðiárinu 2022-2023
eru væntar aflaheimildir samstæð-
unnar liðlega 36 þúsund þorskígildis-
tonn. Ársveltan 2021 var rúmlega 30
milljarðar króna og hagnaður um 11
milljarðar króna.
Síldarvinnslan hf., líkt og Vísir hf.,
leggur áherslu á hagkvæma og sjálf-
bæra nýtingu sjávarauðlindarinnar,
þar sem leitast er við að nota nýj-
ustu tækni sem völ er á til veiða og
vinnslu í sátt við umhverfið. Með
kaupunum mun Síldarvinnslan hf.
styrkja bolfiskhluta félagsins veru-
lega.
Uppbygging í sjávarútvegi
á svæðinu
Aðspurður segir Pétur að „það er
ekki bara bolfiskvinnslan sem mun
aukast, fiskeldi hafi stóreflst á Ís-
landi undanfarin ár og allar spár
sýna að framtíðin liggi í auknu fisk-
eldi. Á komandi árum er fyrirhuguð
mikil uppbygging fiskeldis á landi á
svæðinu og munu þau áform skapa
margvísleg tækifæri í rekstri fyrir-
tækisins í Grindavík. Þar mun sam-
einuð þekking og reynsla nýtast afar
vel til þess að sækja fram og skapa
ný störf í samfélaginu. Þá munu við-
skiptin styðja enn frekar við hraðari
uppbyggingu tækni-og iðnfyrirtækja
í Grindavík, sem þjónusta veiðar,
vinnslu og eldi“.
Þá bendir Pétur einnig á að „nauð-
synlegt sé að innviðir byggist hratt
upp svo hægt sé að þjónusta sívax-
andi sjávarútveg á svæðinu, þar með
talið hafnarmannvirki. Þar þurfi að
bregðast hratt við svo Grindavík geti
leikið þar lykilhlutverk fyrir Suður-
land“.
Nýjasta skipið í flota Vísis hf. í Grindavík er Jóhanna Gísladóttir GK 357 sem kom til hafnar í Grindavík í október síðastliðnum.
Jóhanna var smíðuð hjá Karstensens Skibsværft í Skagen í Danmörku árið 1998 og er 36 metrar að lengd og breiddin er 10,5 metrar.
Við hjá Vísi sjáum
mikil tækifæri
í þessum viðskiptum fyrir
Grindavík og Reykjanes í
heild og erum þess fullviss að
forsendur þess að byggja upp
bolfiskvinnsluna í Grindavík
eru réttar og munu standast
tímans tönn ...
Ljósmynd: Jón Steinar Sæmundsson
„Við viljum halda starfseminni áfram hér í Grindavík.“
– segir Pétur Hafsteinn Pálsson, framkvæmdastjóri Vísis hf.
Eflaust brá mörgum Grindvíkingnum í brún þegar
það spurðist út að Vísisfjölskyldan hafi skipt á hluta-
bréfum Vísis, á hlutabréfum í Síldarvinnslunni á Nes-
kaupsstað. Margir horfðu eflaust á Verbúðina í vetur
og þar sást hvernig byggð var skilin eftir í rústum
eftir að sjávarútvegsfyrirtæki bæjarins var selt
norður á Akureyri. Víkurfréttir settust niður með
framkvæmdastjóra Vísis, Pétri Hafsteini Pálssyni, og
eftir það spjall er deginum ljósara að Grindvíkingar
þurfa ekki að hafa neinar áhyggjur.
Pétur: „Við höfum farið í tvær sameiningarpælingar
sem gengu ekki upp en tími fjölskyldufyrirtækja er bara
viss langur og við vorum komin á þann tímapunkt að
þurfa huga að næstu skrefum. Þá eru ýmsar leiðir færar;
skrá félagið á markað, sameinast, selja allan kvótann
og eignir o.s.frv., en okkar stærsta mál var að tryggja
að starfsemin myndi halda áfram hér í Grindavík. Við
hefðum getað fengið miklu hærra kaupverð en eins og
ég segi, okkur var mjög mikilvægt að halda starfseminni
áfram hér í Grindavík.“
Svo kom óvænt tilboð
„Fyrir tveimur vikum barst okkur svo tilboð sem var
þannig að við ákváðum að skoða það. Tilboðið var
mjög sanngjarnt en það byggði á rekstrarvirði og þ.a.l.
gátum við gert þá kröfu að starfsemin myndi ekki
raskast í okkar heimabyggð. Þarna reynir auðvitað á
trúverðugleika en við þekkjum vel til stjórnenda Síldar-
vinnslunnar og ríkir algert traust á milli aðila. Stjórn-
endur þess fyrirtækis hafa séð uppganginn í okkar
landvinnslu en frystihúsið okkar er með því betra sem
gerist hér á landi í þeim efnum, þeir sáu sér leik á borði
og nálguðust okkur. Það eru ekki nema tvær vikur síðan
þetta kom upp, sem sýnir kannski samstarfsviljann hjá
báðum aðilum.“
Eflaust eru margir smeykir um svona loforð um að
halda starfseminni gangandi í viðkomandi bæjar-
félagi.
„Það tryggir auðvitað ekkert svona rekstur nema
varanlegar forsendur til hans. Þá kemur þrennt til en
staðsetning Vísis er einkar hagkvæm þegar horft er
til útflutnings, við erum stutt frá löndunarhöfn og al-
þjóðlegum flugvelli, númer tvö að við höfum nú þegar
fjárfest mjög vel í tækjakosti við landvinnsluna og
síðast en ekki síst búum við yfir gífurlegum mann-
auði. Sú breyting hefur orðið á undanförnum árum að
fyrirtækið er ekki að útvega þessu frábæra starfsfólki
vinnu, heldur er starfsfólkið að skapa fyrirtækinu afl
með reynslu sinni og þekkingu. Þarna hefur orðið mikil
breyting á síðustu árum.“
Stækkunarmöguleikar eru miklir með þessari sam-
einingu.
„Kvótastaða samstæðu Síldarvinnslunnar verður gríð-
arlega sterk en bæði á Síldarvinnslan mikinn bolfisk-
kvóta en einnig uppsjávarkvóta. Þar höfum við hvergi
komið nálægt og því er þetta spennandi fyrir okkur líka.
Eins hefur Síldarvinnslan verið að hasla sér völl í fisk-
eldi og það er sömuleiðis nýtt fyrir okkur en við getum
afkastað miklu meiru í vinnsluhúsunum okkar og lítum
þessa breytingu því mjög björtum augum.“
Verða einhverjar breytingar?
„Nei, það mun nákvæmlega ekkert breytast við þessi
viðskipti nema við munum bara styrkjast og eflast.
Allt okkar starfsfólk heldur áfram, ég mun áfram
gegna stöðu framkvæmdastjóra hér í Grindavík og
eini munurinn að Vísir hf. verður dótturfélag Síldar-
vinnslunnar. Vísir hf. hefur alltaf stutt myndarlega við
bakið á íþróttalífinu í Grindavík og menningunni og það
verður engin breyting á því.“
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson
sigurbjorn@vf.is
Pétur Pálsson,
framkvæmdastjóri Vísis hf.
2 // víkurFrÉttir á SuðurNESjuM