Víkurfréttir


Víkurfréttir - 13.07.2022, Blaðsíða 12

Víkurfréttir - 13.07.2022, Blaðsíða 12
Afmælisþættir skólans í Vogum, birtast vikulega í Víkurfréttum og vf.is á afmælisárinu. Þorvaldur Örn Árnason, áður kennari við skólann, tekur saman með góðra manna hjálp. 27. ÞÁTTUR Í SKÓLANUM HJÁ VIKTORÍU Guðrún Lovísa Magnús- dóttir, kölluð Lúlla (f. 1922, d. 2021, er sextán ára á myndinni), gekk fjögur ár í skólann hjá Viktoríu, tíu til fjórtán ára. Hún segir svo frá (2006 og 2012): Börnin borðuðu og tóku lýsi heima og höfðu með sér mjólk og brauð pakkað inn í dagblaðið Tímann. Eldri deildin mætti á morgnana kl. 8:30 og fóru heim 14:30 en yngri deild kl. 9:30 og heim 15:30. „Það var heilmikill kolaofn þarna, það var alltaf hlýtt þegar við komum. Hún Viktoría hafði alltaf vinnu- konu á þessum tíma.“ Kennaranum var heilsað með handabandi. Lásu svo saman faðir vor á morgnana og sungu kvæði eða sálm áður en skóla lauk og Viktoría var forsöngvari. „Það var ein kennslustofa, eldri deildin (tveir árgangar) sátu í glugga- röðinni, tvö saman við borð sem í var ein hilla og setbekkurinn fastur við borðið, þau yngri tvö saman eftir miðju gólfi. Lærðum lestur að mestu heima áður en byrjað var í skóla, svo skrift, teikningu, reikning, biblíusögur, landafræði, Íslandssögu, málfræði, náttúrufræði og kvæði. Úti lékum við okkur í kýlubolta, síðasta, sto, stórfiskaleik, hlaupa í skarðið og eitt par fram fyrir ekkjumann. Þegar slæmt var veður sátum við stelp- urnar uppi á borðum og sungum en strákarnir frammi á gangi. Viktoría bjó í norðurendanum. Síðasta vet- urinn minn var Stefán Hallsson að- stoðarkennari og hjá honum æfðum við söng, hann spilaði á orgel. Í úti- ganginum var vatnstunna, sem borið var vatn í úr brunni. Við tunnuna var borð eða kassi þar á stóð vatnsfata með emeleraðri ausu í og máli ef við yrðum þyrst. Úti var kamar – og kló- settpappírinn dagblöð. Þetta voru yndisleg fjögur ár.“ Lúlla var 25 mínútur að ganga í skólann, frá Sjónarhóli. Stefán frá Litlabæ gekk – öllu heldur hljóp – eins og raketta, þrisvar sinnum lengri leið! Guðmundur Björgvin kom frá Brekku undir Vogastapa, gekk einn að Vogum og þaðan í fylgd með fleiri krökkum. Meira en klukkustundar gangur, fór eftir hvernig stóð á sjáv- arföllum, hvort hann gat stytt sér leið yfir sandinn. Lúlla man ekki eftir einelti en það voru tveir strákar svolítið óþekkir, svolitlir grallarar. Þeir voru settir á stól til hliðar. Þar sátu þeir og geifluðu sig framan í okkur hin. Við vorum aldrei slegin með priki eða flengd en Árni Theódór hafði gert það. Stelp- urnar reyndu að hengja öskupoka á strákana á öskudaginn. Lúlla átti ekki kærasta fyrr en eftir skóla- göngu en sá kærasti varð maður hennar, Guðmundur Björgvin. Þau áttu tólf börn og settu svip á Vatns- leysustrandarhrepp sem nú heitir Sveitarfélagið Vogar. Viktoría var indæl kona og vel til fara, gerði þetta allt vel. Viktoría hélt dagbók skólans. Skoðum hér nokkrar færslur. Fyrsta október 1926 var skólinn settur. Viðstödd voru öll þau börn er ganga eiga í skólann þetta skólaár (23 talsins). Í eldri deild (tólf og þrettán ára) voru Torfhildur Torfa- dóttir, Gerður Guðmundsdóttir, Unnur Þórarinsdóttir, Guðm. Björgvin Jónsson, Óskar Eyjólfsson, Anna M. Elíasardóttir, Ragnhildur Magnúsdóttir, Loftur Árnason, Guðm. M. Jónsson, Guðm. Skarphj. Kristjánsson, Guðm. Ólafsson og Guðrún Magnúsdóttir. Í yngri deild (tíu og ellefu ára) voru Ásgeir Sæmundsson, Einar Guðmundsson, Ingibjörg Erlends- dóttir, Margrjet Jónsdóttir, Maríanna Elíasardóttir, Guðrún Ólafsdóttir, Ingvar Benjamínsson, Guðm. Ragnar Ágústsson, Símon Kristjánsson, Ólafur Erlendsson og Klemens Sæ- mundarson. „Athöfnin hófst með því að sunginn var sálmurinn: Ó Jesú bróðir besti. Kennari skólans, Vikt- oría Guðmundsdóttir, ávarpaði síðan börnin, óskaði þau velkomin og talaði til þeirra hvatningarorðum. Afhenti hún skólanum þrjár myndir, gefnar af dönskum manni. Krists- mynd allstóra, tekna eftir högg- mynd Thorvaldsens, og smærri myndir af konungshjónunum Frið- riki VIII og drottningu hans, Lovísu. Valdi kennari sjer Kristsmyndina að ræðuteksta. – Síðan voru sungin versin: Vertu, Guð faðir, faðir minn, og fyrsta vers sálmsins Á hendur fel þú honum. Kennari leitaði síðan venjulegra upplýsinga um nöfn, aldur, og kunn- áttu nýkomnu barnanna, og prófaði þau í lestri. Skýrði frá því, að næst yrði kennt mánudaginn næstkom- anda. Fór síðan hver til síns heima.“ Síðan var kennt alla sex daga vik- unnar, nema laugardaginn 2. október en þá var hlutavelta, 11. október fékk kennarinn leyfi, 12. október voru gólfin olíuborin og laugardaginn 16. október var hreppsfundur í húsinu. 22. október eftir kl. 2 var læknis- skoðun á börnum, kennara og skóla- húsi. Ekkert athugavert um heilsufar. Daginn eftir var kjörfundur í húsinu og mánudaginn 25. var ekki heldur kennt því húsið var óhreint eftir dans. Laugardaginn 30. var ekki kennt því mjólkurfélagsfundur var í húsinu. Siðan kom fjöldi venjulegra skóla- daga en 1. desember var „kennt tvær stundir (eldri deild saga og skrift, yngri deild handavinna) og börnunum síðan skemmt með sögum og myndum. Dagsins minnst með stuttri tölu og sálmasöng.“ 16. desember var ófært veður og ekkert kennt. Skráð er hvern dag hvort barn er veikt eða fær leyfi. Hlaupum nú hratt yfir sögu en þessu skólaári lauk með vorprófum 6. og 7. apríl. Skólanum var sagt upp 9. apríl, viðstödd voru öll skóla- börnin, handavinnukennari skólans og nokkrar konur. 22. des. 1927 „Munnlegt próf hjá eldri deild til kl. 2. Barnastúkuf- undur eftir það. Í lok fundarins var jólanna minnst á venjulegan hátt. Börnin sungu jólasálma, kennari las upp jólasögu og talaði nokkur orð til barnanna um hátíðina og þýðingu hennar og las að síðustu jólaguð- spjallið. Síðan var gefið jólaleyfi til 3. janúar 1928. Ráðgert hafði verið að kennsla skyldi hefjast aftur 3. janúar 1928. Það fór á annan veg, því að þann dag fór fram jarðarför barnsins Ing- vars Benjamínssonar, er látist hafði í jólaleyfinu (orðið úti). Næsta dag var leyfi en ákveðið að kennsla skyldi aftur hefjast 5. janúar kl. 11 f. hádegi. ... Þá komu átta börn. Ekki kennt 6. janúar en kl. 5 e. hád. hafði kvenfjelagið „Fjóla“ jólatrje fyrir börn og fullorðna í skólahúsinu.“ Nikulás Sveinsson frá Hábæ, sem var nemandi um 1940, segir svo: „Vikt- oría las fyrir okkur kafla úr spenn- andi bók eftir Selmu Lagerlöv, einu sinni í viku, til að vekja áhuga okkar á bókmenntum og biðum við spennt eftir hverjum kafla. … Okkar ástsæli kennari, Viktoría Guðmundsdóttir, lagði sig alltaf í hádeginu og svaf stundum yfir sig (smávegis) og þá gátum við ólátast úti svolítið lengur – bara gaman.“ Viktoría var geðprýðismanneskja og alvörugefin en dálítið seinlát, „hafði einstakt lag á krökkunum, maður heyrði hana aldrei byrsta sig neitt“, segir nemandi hennar og heimilisvinur, Ása Árnadóttir, f. 1932. Veturinn 1948 til 1949 starfaði skólinn í tveimur deildum með 28 nemendum. Í eldri deildinni voru þrettán börn en fimmtán í þeirri yngri. Kennarar við skólann voru þeir sömu og í fyrra, þau Viktoría Guðmundsdóttir, skólastjóri, og Jón H. Kristjánsson, kennari. Jón ók börnunum daglega að og frá skóla en þann vetur var það erfiðleikum bundið, vegna kulda og snjóa. Ingi- björg Erlendsdóttir, kennari, var prófdómari þetta vor. Börn yngri en níu ára voru í vorskóla í maí. Heimildir: Handskrifuð dagbók skólans. Óbirtar endurminningar Guðrúnar Lovísu og myndbandið Lúlla á Grunni Suðurkotsskóla í apríl 2010; Fréttir frá skólunum, Faxi, í júní 1949. Nikulás Sveinsson, á fb-síðu Brunnastaðaskóli. Viðtöl við nem- endur Viktoríu. Myndin er af nemendum u.þ.b. 1938. „Stundum er lífið bara drulluerfitt og ósanngjarnt en maður þarf bara að gíra sig í gang, setja á sig varalit, mæta á staðinn og taka pláss,“ segir tónlistarkonan Fríða Dís Guðmundsdóttir en nýja platan hennar, Lipstick On, kemur út þessum mánuði. Platan er níu laga popp/rokk plata og er heldur frábrugðin síðustu plötu hennar, Myndaalbúm. Fríða var í bílskúrsböndum sem unglingur og áhugi hennar á poppi og rokki fór þá að aukast. Síðan þá hefur hún verið að semja sína tón- list fyrir sig og aðra. Fyrsta sóló- plata Fríðu, Myndaalbúm, kom út rétt áður en Covid reið yfir heims- byggðina. Í kjölfarið missti Fríða móður sína og segir hún sorgarferlið hafa verið erfitt á tímum faraldurs: „Það varð til ákveðið rými til þess að vinsa úr tilfinningum og líta inn á við. Það var auðvitað ótrúlega erfitt að geta ekki knúsað vini sína.“ Fríða notar tónlistina til þess að vinna úr og tjá tilfinningar sínar og segist einfaldlega ekki geta lifað án tónlistarinnar eða listsköpunar af einhverjum toga. Hún var að semja aðra plötu þegar Lipstick On varð til og var sú plata hugsuð til að losa um tilfinningar tengdar áföllum og erfiðleikum sem hún hefur gengið í gegnum. „Ég var að semja aðra plötu til að koma þessum tilfinningum svolítið frá mér. Þá samdi ég lag sem heitir Guidelines for Dreamers. Það einhvern veginn passaði ekki inn á þá plötu, það var í raun miklu stærra heldur en ég eða einhver hugmynd um mig. Það varð svo dýnamísk orka og ég leyfði því að flæða, í kjölfarið fór ég að semja þessa plötu sem ég er að fara að gefa út,“ segir Fríða og bætir við: „Ég held að mig hafi bara vantað vettvang til þess að hafa gaman, til að gleyma mér aðeins og bara gera eitthvað skemmtilegt. Ég er ótrúlega stolt af þessu efni og hlakka til að gefa það út.“ Var alltaf staðráðin í að verða söngkona Fríða Dís segir áhuga hennar á tón- list alltaf verið til staðar en hún telur að heimsmynd hennar hafi stjórnast á hljóðum þar til hún fékk gleraugu. „Ég fékk gleraugu þegar ég varð fjögurra ára og þá kom í ljós að ég sá ekki neitt. Ég held ég hafi þess vegna notað eyrun mikið til þess að „fúnkera“ og þannig hafi mín heims- mynd stjórnast á hljóðum. Þetta fór svo að blandast saman þegar ég fór að sjá línurnar á götunni og svona,“ segir Fríða. Fríða og bróðir hennar, Smári, hafa unnið mikið í tónlist saman og var platan tekin upp í stúdíóinu hans, Smástirni. „Ég hefði í raun ekki getað tekið upp þessa plötu annars staðar en hjá honum. Hann hefur verið mín hægri hönd í þessum upptökum. Hann er mikið í að peppa mig áfram og það má segja að við klárum setningarnar hjá hvor öðru. Við erum svo náin, vinnum rosalega vel saman og fílum sömu hlutina,“ segir Fríða. Fríða kemur úr tónlistarfjölskyldu og segir hún að samverustundir með fjölskyldunni hafi oft tengst tónlist. „Tónlistinni var „blastað“ hátt á mínu heimili. Við vorum mikið að spila og syngja saman. Ég átti lítinn míkrafón og var alveg staðráðin í að verða söngkona þegar ég yrði stór,“ segir Fríða.Thelma Hrund Hermannsdóttir thelma@vf.is Vantaði vettvang til þess að hafa gaman 12 // víkurFrÉttir á SuðurNESjuM

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.