Víkurfréttir - 13.07.2022, Side 12
Afmælisþættir skólans í Vogum, birtast
vikulega í Víkurfréttum og vf.is á afmælisárinu.
Þorvaldur Örn Árnason, áður kennari við skólann,
tekur saman með góðra manna hjálp.
27. ÞÁTTUR
Í SKÓLANUM HJÁ VIKTORÍU
Guðrún Lovísa Magnús-
dóttir, kölluð Lúlla (f. 1922,
d. 2021, er sextán ára á
myndinni), gekk fjögur ár
í skólann hjá Viktoríu, tíu
til fjórtán ára. Hún segir
svo frá (2006 og 2012):
Börnin borðuðu og tóku
lýsi heima og höfðu með
sér mjólk og brauð pakkað
inn í dagblaðið Tímann.
Eldri deildin mætti á morgnana kl.
8:30 og fóru heim 14:30 en yngri
deild kl. 9:30 og heim 15:30. „Það
var heilmikill kolaofn þarna, það
var alltaf hlýtt þegar við komum.
Hún Viktoría hafði alltaf vinnu-
konu á þessum tíma.“ Kennaranum
var heilsað með handabandi. Lásu
svo saman faðir vor á morgnana og
sungu kvæði eða sálm áður en skóla
lauk og Viktoría var forsöngvari.
„Það var ein kennslustofa, eldri
deildin (tveir árgangar) sátu í glugga-
röðinni, tvö saman við borð sem í
var ein hilla og setbekkurinn fastur
við borðið, þau yngri tvö saman
eftir miðju gólfi. Lærðum lestur að
mestu heima áður en byrjað var í
skóla, svo skrift, teikningu, reikning,
biblíusögur, landafræði, Íslandssögu,
málfræði, náttúrufræði og kvæði. Úti
lékum við okkur í kýlubolta, síðasta,
sto, stórfiskaleik, hlaupa í skarðið og
eitt par fram fyrir ekkjumann. Þegar
slæmt var veður sátum við stelp-
urnar uppi á borðum og sungum en
strákarnir frammi á gangi. Viktoría
bjó í norðurendanum. Síðasta vet-
urinn minn var Stefán Hallsson að-
stoðarkennari og hjá honum æfðum
við söng, hann spilaði á orgel. Í úti-
ganginum var vatnstunna, sem borið
var vatn í úr brunni. Við tunnuna var
borð eða kassi þar á stóð vatnsfata
með emeleraðri ausu í og máli ef við
yrðum þyrst. Úti var kamar – og kló-
settpappírinn dagblöð. Þetta voru
yndisleg fjögur ár.“
Lúlla var 25 mínútur að ganga í
skólann, frá Sjónarhóli. Stefán frá
Litlabæ gekk – öllu heldur hljóp –
eins og raketta, þrisvar sinnum lengri
leið! Guðmundur Björgvin kom frá
Brekku undir Vogastapa, gekk einn
að Vogum og þaðan í fylgd með fleiri
krökkum. Meira en klukkustundar
gangur, fór eftir hvernig stóð á sjáv-
arföllum, hvort hann gat
stytt sér leið yfir sandinn.
Lúlla man ekki eftir
einelti en það voru tveir
strákar svolítið óþekkir,
svolitlir grallarar. Þeir
voru settir á stól til hliðar.
Þar sátu þeir og geifluðu
sig framan í okkur hin.
Við vorum aldrei slegin
með priki eða flengd en
Árni Theódór hafði gert það. Stelp-
urnar reyndu að hengja öskupoka
á strákana á öskudaginn. Lúlla átti
ekki kærasta fyrr en eftir skóla-
göngu en sá kærasti varð maður
hennar, Guðmundur Björgvin. Þau
áttu tólf börn og settu svip á Vatns-
leysustrandarhrepp sem nú heitir
Sveitarfélagið Vogar. Viktoría var
indæl kona og vel til fara, gerði þetta
allt vel.
Viktoría hélt dagbók skólans.
Skoðum hér nokkrar færslur.
Fyrsta október 1926 var skólinn
settur. Viðstödd voru öll þau börn
er ganga eiga í skólann þetta skólaár
(23 talsins). Í eldri deild (tólf og
þrettán ára) voru Torfhildur Torfa-
dóttir, Gerður Guðmundsdóttir,
Unnur Þórarinsdóttir, Guðm.
Björgvin Jónsson, Óskar Eyjólfsson,
Anna M. Elíasardóttir, Ragnhildur
Magnúsdóttir, Loftur Árnason,
Guðm. M. Jónsson, Guðm. Skarphj.
Kristjánsson, Guðm. Ólafsson og
Guðrún Magnúsdóttir.
Í yngri deild (tíu og ellefu ára)
voru Ásgeir Sæmundsson, Einar
Guðmundsson, Ingibjörg Erlends-
dóttir, Margrjet Jónsdóttir, Maríanna
Elíasardóttir, Guðrún Ólafsdóttir,
Ingvar Benjamínsson, Guðm. Ragnar
Ágústsson, Símon Kristjánsson,
Ólafur Erlendsson og Klemens Sæ-
mundarson.
„Athöfnin hófst með því að
sunginn var sálmurinn: Ó Jesú
bróðir besti. Kennari skólans, Vikt-
oría Guðmundsdóttir, ávarpaði
síðan börnin, óskaði þau velkomin
og talaði til þeirra hvatningarorðum.
Afhenti hún skólanum þrjár myndir,
gefnar af dönskum manni. Krists-
mynd allstóra, tekna eftir högg-
mynd Thorvaldsens, og smærri
myndir af konungshjónunum Frið-
riki VIII og drottningu hans, Lovísu.
Valdi kennari sjer Kristsmyndina
að ræðuteksta. – Síðan voru sungin
versin: Vertu, Guð faðir, faðir minn,
og fyrsta vers sálmsins Á hendur fel
þú honum.
Kennari leitaði síðan venjulegra
upplýsinga um nöfn, aldur, og kunn-
áttu nýkomnu barnanna, og prófaði
þau í lestri. Skýrði frá því, að næst
yrði kennt mánudaginn næstkom-
anda. Fór síðan hver til síns heima.“
Síðan var kennt alla sex daga vik-
unnar, nema laugardaginn 2. október
en þá var hlutavelta, 11. október fékk
kennarinn leyfi, 12. október voru
gólfin olíuborin og laugardaginn 16.
október var hreppsfundur í húsinu.
22. október eftir kl. 2 var læknis-
skoðun á börnum, kennara og skóla-
húsi. Ekkert athugavert um heilsufar.
Daginn eftir var kjörfundur í húsinu
og mánudaginn 25. var ekki heldur
kennt því húsið var óhreint eftir
dans. Laugardaginn 30. var ekki
kennt því mjólkurfélagsfundur var
í húsinu.
Siðan kom fjöldi venjulegra skóla-
daga en 1. desember var „kennt
tvær stundir (eldri deild saga og
skrift, yngri deild handavinna)
og börnunum síðan skemmt með
sögum og myndum. Dagsins minnst
með stuttri tölu og sálmasöng.“ 16.
desember var ófært veður og ekkert
kennt. Skráð er hvern dag hvort barn
er veikt eða fær leyfi.
Hlaupum nú hratt yfir sögu en
þessu skólaári lauk með vorprófum
6. og 7. apríl. Skólanum var sagt
upp 9. apríl, viðstödd voru öll skóla-
börnin, handavinnukennari skólans
og nokkrar konur.
22. des. 1927 „Munnlegt próf hjá
eldri deild til kl. 2. Barnastúkuf-
undur eftir það. Í lok fundarins var
jólanna minnst á venjulegan hátt.
Börnin sungu jólasálma, kennari las
upp jólasögu og talaði nokkur orð til
barnanna um hátíðina og þýðingu
hennar og las að síðustu jólaguð-
spjallið. Síðan var gefið jólaleyfi til
3. janúar 1928.
Ráðgert hafði verið að kennsla
skyldi hefjast aftur 3. janúar 1928.
Það fór á annan veg, því að þann
dag fór fram jarðarför barnsins Ing-
vars Benjamínssonar, er látist hafði í
jólaleyfinu (orðið úti). Næsta dag var
leyfi en ákveðið að kennsla skyldi
aftur hefjast 5. janúar kl. 11 f. hádegi.
... Þá komu átta börn.
Ekki kennt 6. janúar en kl. 5 e. hád.
hafði kvenfjelagið „Fjóla“ jólatrje
fyrir börn og fullorðna í skólahúsinu.“
Nikulás Sveinsson frá Hábæ, sem var
nemandi um 1940, segir svo: „Vikt-
oría las fyrir okkur kafla úr spenn-
andi bók eftir Selmu Lagerlöv, einu
sinni í viku, til að vekja áhuga okkar
á bókmenntum og biðum við spennt
eftir hverjum kafla. … Okkar ástsæli
kennari, Viktoría Guðmundsdóttir,
lagði sig alltaf í hádeginu og svaf
stundum yfir sig (smávegis) og þá
gátum við ólátast úti svolítið lengur
– bara gaman.“
Viktoría var geðprýðismanneskja
og alvörugefin en dálítið seinlát,
„hafði einstakt lag á krökkunum,
maður heyrði hana aldrei byrsta
sig neitt“, segir nemandi hennar og
heimilisvinur, Ása Árnadóttir, f. 1932.
Veturinn 1948 til 1949 starfaði
skólinn í tveimur deildum með 28
nemendum. Í eldri deildinni voru
þrettán börn en fimmtán í þeirri
yngri. Kennarar við skólann voru
þeir sömu og í fyrra, þau Viktoría
Guðmundsdóttir, skólastjóri, og
Jón H. Kristjánsson, kennari. Jón ók
börnunum daglega að og frá skóla
en þann vetur var það erfiðleikum
bundið, vegna kulda og snjóa. Ingi-
björg Erlendsdóttir, kennari, var
prófdómari þetta vor. Börn yngri en
níu ára voru í vorskóla í maí.
Heimildir: Handskrifuð dagbók skólans. Óbirtar endurminningar Guðrúnar Lovísu
og myndbandið Lúlla á Grunni Suðurkotsskóla í apríl 2010; Fréttir frá skólunum,
Faxi, í júní 1949. Nikulás Sveinsson, á fb-síðu Brunnastaðaskóli. Viðtöl við nem-
endur Viktoríu.
Myndin er af nemendum u.þ.b. 1938.
„Stundum er lífið bara drulluerfitt og ósanngjarnt en maður þarf
bara að gíra sig í gang, setja á sig varalit, mæta á staðinn og taka
pláss,“ segir tónlistarkonan Fríða Dís Guðmundsdóttir en nýja
platan hennar, Lipstick On, kemur út þessum mánuði. Platan er
níu laga popp/rokk plata og er heldur frábrugðin síðustu plötu
hennar, Myndaalbúm.
Fríða var í bílskúrsböndum sem
unglingur og áhugi hennar á poppi
og rokki fór þá að aukast. Síðan þá
hefur hún verið að semja sína tón-
list fyrir sig og aðra. Fyrsta sóló-
plata Fríðu, Myndaalbúm, kom út
rétt áður en Covid reið yfir heims-
byggðina. Í kjölfarið missti Fríða
móður sína og segir hún sorgarferlið
hafa verið erfitt á tímum faraldurs:
„Það varð til ákveðið rými til þess
að vinsa úr tilfinningum og líta inn á
við. Það var auðvitað ótrúlega erfitt
að geta ekki knúsað vini sína.“
Fríða notar tónlistina til þess að
vinna úr og tjá tilfinningar sínar og
segist einfaldlega ekki geta lifað án
tónlistarinnar eða listsköpunar af
einhverjum toga. Hún var að semja
aðra plötu þegar Lipstick On varð
til og var sú plata hugsuð til að losa
um tilfinningar tengdar áföllum og
erfiðleikum sem hún hefur gengið í
gegnum. „Ég var að semja aðra plötu
til að koma þessum tilfinningum
svolítið frá mér. Þá samdi ég lag sem
heitir Guidelines for Dreamers. Það
einhvern veginn passaði ekki inn á
þá plötu, það var í raun miklu stærra
heldur en ég eða einhver hugmynd
um mig. Það varð svo dýnamísk orka
og ég leyfði því að flæða, í kjölfarið
fór ég að semja þessa plötu sem ég
er að fara að gefa út,“ segir Fríða og
bætir við: „Ég held að mig hafi bara
vantað vettvang til þess að hafa
gaman, til að gleyma mér aðeins
og bara gera eitthvað skemmtilegt.
Ég er ótrúlega stolt af þessu efni og
hlakka til að gefa það út.“
Var alltaf staðráðin í
að verða söngkona
Fríða Dís segir áhuga hennar á tón-
list alltaf verið til staðar en hún telur
að heimsmynd hennar hafi stjórnast
á hljóðum þar til hún fékk gleraugu.
„Ég fékk gleraugu þegar ég varð
fjögurra ára og þá kom í ljós að ég
sá ekki neitt. Ég held ég hafi þess
vegna notað eyrun mikið til þess að
„fúnkera“ og þannig hafi mín heims-
mynd stjórnast á hljóðum. Þetta fór
svo að blandast saman þegar ég fór
að sjá línurnar á götunni og svona,“
segir Fríða.
Fríða og bróðir hennar, Smári,
hafa unnið mikið í tónlist saman
og var platan tekin upp í stúdíóinu
hans, Smástirni. „Ég hefði í raun
ekki getað tekið upp þessa plötu
annars staðar en hjá honum. Hann
hefur verið mín hægri hönd í þessum
upptökum. Hann er mikið í að peppa
mig áfram og það má segja að við
klárum setningarnar hjá hvor öðru.
Við erum svo náin, vinnum rosalega
vel saman og fílum sömu hlutina,“
segir Fríða.
Fríða kemur úr tónlistarfjölskyldu
og segir hún að samverustundir með
fjölskyldunni hafi oft tengst tónlist.
„Tónlistinni var „blastað“ hátt á
mínu heimili. Við vorum mikið að
spila og syngja saman. Ég átti lítinn
míkrafón og var alveg staðráðin í að
verða söngkona þegar ég yrði stór,“
segir Fríða.Thelma Hrund Hermannsdóttir
thelma@vf.is
Vantaði vettvang
til þess að hafa gaman
12 // víkurFrÉttir á SuðurNESjuM