Víkurfréttir - 13.07.2022, Page 4
Rétturinn
Ljúengur
heimilismatur
í hádeginu
Opið:
11-13:30
alla virka daga
Bílaviðgerðir
Smurþjónusta
Varahlutir
Brekkustíg 38 - 260 Njarðvík
sími 421 7979
www.bilarogpartar.is á timarit.is
Nýjungar í Flugstöð Leifs Eiríkssonar
Það var sannkölluð hátíðar-
stemmning var í Flugstöð Leifs
Eiríkssonar við opnun tveggja
nýja verslana og veitingastaðar.
Veitingastaðurinn Maika’i og
skartgripaverslunin Jens opnuðu
í svokölluðum pop-up rýmum og
verða því starfrækt á flugvellinum
í takmarkaðan tíma. Auk þess var
bókabúð Pennans Eymundsson
opnuð í nýju og stærra rými eftir
rösklega flutninga á einni nóttu úr
eldra rými búðarinnar í bygging-
unni. Klippt var á borða, flugstöðin
skreytt og gestum og gangandi
boðið upp á popp í tilefni dagsins.
Á næstu vikum verða fleiri pop-up
veitingastaðir og verslanir opnuð á
flugvellinum. Gunnhildur Erla Vil-
bergsdóttir, deildarstjóri verslun og
veitingar hjá Isavia, hefur þetta að
segja um nýjungarnar: „Við vinnum
stöðugt að því að bæta upplifun far-
þega sem fara hér um, í samvinnu
við góða samstarfsaðila. Við erum
mjög spennt fyrir þeim breytingum
sem eiga sér stað á Keflavíkurflug-
velli í sumar.“
Maika’i
Veitingastaðurinn Maika’i hefur
notið mikilla vinsælda fyrir açaí-
skálarnar sínar á síðustu árum.
Eigendur staðarins, Elísabet Metta
Svan Ásgeirsdóttir og Ágúst Freyr
Hallsson, opnuðu fyrsta Maika’i-
staðinn í Mathöllinni við Höfða
en stuttu síðar opnuðu þau fyrsta
útibúið á Hafnartorgi í miðborg
Reykjavíkur. Síðan þá hefur fyrir-
tækið vaxið og dafnað og fást nú
vörur þeirra í verslunum víða um
land og er staðurinn nú opinn í Flug-
stöð Leifs Eiríkssonar. „Það er búið
að vera okkar markmið og draumur
frá fyrsta degi að opna þarna þar
sem okkur finnst þetta passa 100%
þangað inn [í FLE]. Þetta er risastórt
tækifæri fyrir maikai og mögulega
leiðir þetta okkur í fleiri ævintýri,
maður veit aldrei,“ segir Elísabet
Metta.
Jens
Skartgripaverslunin Jens er fjöl-
skyldufyrirtæki sem er nú rekið af
þriðju kynslóð gullsmiða. Alls eru
verslanirnar fjórar auk netversl-
unar. Ingibjörg Lilju Snorradóttir,
framkvæmdarstjóri Jens, segir það
hafa verið draumur fjölskyldunnar
að prófa rekstur í fríhöfninni. „Við
erum auðvitað í skýjunum með að
vera búin að fá þetta tækifæri,“ segir
hún og bætir við: „Það er þýðingar-
mikið fyrir lítið fjölskyldufyrirtæki
eins og okkar að fá svona tækifæri,
fyrirtækið hefur verið að vaxa og
dafna undanfarin ár – og þetta skref
skiptir miklu máli fyrir okkur til að
komast á næsta þrep á þeirri veg-
ferð.“ Þrátt fyrir að verslunin sé með
tímabundinn samning í flugstöðinni
segir Ingibjörg að þau ætli að gera
sitt allra besta til að reka verslunina
um ókomna tíð.
Penninn Eymundsson
Bókabúð Pennans Eymundssonar
hefur verið í Flugstöð Leifs Eiríks-
sonar um árabil en þennan dag
opnaði ný og stærri verslun í öðru
rými í Leifsstöð. „Bókabúðin er alltaf
vinsælt stopp farþega og er því sér-
staklega ánægjulegt að hún sé komin
í stærra rými,“ segir Gunnhildur Erla.
Áhersla hefur hingað til verið lögð
á sölu íslenskra og erlendra bóka en
nú er einnig hægt að kaupa gjafa-
og matvöru í versluninni. „Þetta er
spennandi viðbót hjá okkur. Þrátt
fyrir að hafa innleitt gjafavöruna og
matvöruna erum einnig að auka við
bækurnar hjá okkur, það er í raun
alveg öfug þróun við aðrar bóka-
búðir á flugvöllum. Þær eru búnar að
færast í þá átt að minnka bækurnar
og fara meira í að selja sælgæti og
samlokur og annað. Á meðan erum
við að gera bókunum hátt undir
höfði, sem er heldur skemmti-
legt,“ segir Borgar Jónsteinsson,
rekstrarstjóri verslunarsviðs hjá Ey-
mundsson. Þess má geta að fyrsta
prentun Njálu frá árinu 1772 er til
sýnis í versluninni.
Samkaup og Spotify eigast
við í norrænu einvígi
Samkaup valin númer eitt á Íslandi í fjölbreytni,
kominn áfram í Norðurlandakeppni
Samkaup hafa unnið til norrænu
Blaze Inclusion jafnréttisverð-
launanna, sem veitt eru af norsku
samtökunum Diversify, í flokki ís-
lenskra fyrirtækja fyrir fjölbreytni
(e. synergist). Verðlaununum er
ætlað að efla einstaklinga og fyrir-
tæki sem vinna markvisst að því
stuðla að fjölbreytni og jafnrétti
innan fyrirtækja sinna.
Keppa við Spotify
Samkaup sigraði fjögur önnur íslensk
fyrirtæki í flokknum um fjölbreytni,
þ.á m. Marel og Bláa lónið, og etja nú
kappi við fyrirtæki frá fjórum nor-
rænum þjóðum, þ.á m. hið sænska
Spotify. Kosning er hafin og stendur
yfir til 3. ágúst. Tilkynnt verður hver
ber sigur úr býtum á verðlaunahátíð
í Osló þann 27. ágúst næstkomandi.
Hægt er að taka þátt í kosningunni
á vef samtakanna Diversify (diver-
sify.no).
Vilja vera besti vinnustaðurinn
fyrir starfsfólk í verslun
Samkaup hafa sett sér það markmið
að verða besti vinnustaður fyrir
starfsfólk í verslun hér á landi. Þess
má geta að Gunnur Líf Gunnars-
dóttir, framkvæmdastjóri mann-
auðs- og samskiptasviðs Samkaupa,
var í vetur valin millistjórnandi
ársins hjá Stjórnvísi auk þess sem
Samkaup hlutu Menntaverðlaun at-
vinnulífsins.
Jafnréttisátak hlaut
verðlaun HÍ og SA
Samkaup hrinti í fyrra úr vör jafn-
réttisátakinu Jafnrétti fyrir alla
– Samkaup alla leið, þar sem mark-
miðið var að gefa starfsfólki jöfn
tækifæri og meta það að verðleikum
sínum. Átakið er unnið í samvinnu
við Samtökin ‘78, Þroskahjálp og
Mirru, rannsókna- og fræðslusetur
fyrir erlent starfsfólk. Í því felst að
bæta ferla, standa fyrir fræðslufyrir-
lestrum fyrir starfsfólk í verslunum
Samkaupa um allt land og bjóða
upp á rafræna fræðslu á vegum
samtakanna þriggja og vinnufundi
með stjórnendum. Sérstök áhersla
er lögð á að stjórnendur sýni gott
fordæmi fyrir starfsfólk sitt og taki
málefni jafnréttis til gagngerrar skoð-
unar með starfsmannahópnum á
hverjum stað. Fyrir átakið hlutu
Samkaup í lok síðasta árs tvenn
hvatningarverðlaun jafnréttis sem
Samtök atvinnulífsins og Háskóli Ís-
lands standa að, annars vegar í flokki
fjölmenningar og hins vegar í flokki
fötlunar.
Gunnur Líf Gunnarsdóttir, fram-
kvæmdastjóri mannauðs- og sam-
skiptasviðs Samkaupa: „Það er af-
skaplega gleðilegt að hljóta þessi
verðlaun í íslenska flokknum og
vonandi sigrum við í stóru, norrænu
keppninni. Við hjá Samkaupum
brennum fyrir jafnréttismálum og
verðlaunin eru viðurkenning fyrir
okkar miklu vinnu. Við lítum þó
ekki svo á að þeirri vinnu sé lokið
því það þarf statt og stöðugt að gæta
að því að staða starfsfólks okkar sé
jöfn, óháð kyni, kynhneigð, uppruna
o.fl. Við eigum líkt og flest önnur
fyrirtæki enn nokkuð í land í þeim
efnum.“
Um Samkaup:
Samkaup reka yfir 60 verslanir víðsvegar um landið undir vörumerkjunum Nettó, Kram-
búðin, Kjörbúðin, Iceland og Samkaup Strax. Mikil fjölbreytni einkennir starfsmannahópinn
hjá Samkaupum en alls starfa 1.500 manns hjá fyrirtækinu í fullu starfi eða hlutastarfi.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir, formaður samtakanna ‘78, og Gunnur Líf
Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðs- og samskiptasviðs
Samkaupa, við undirritun samstarfssamningsins í haust.
Gunnhildur Erla
Vilbergsdóttir,
deildarstjóri verslun
og veitingar hjá Isavia.
4 // víkurFrÉttir á SuðurNESjuM