Víkurfréttir - 13.07.2022, Side 6
Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319. Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmói 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421-0000. Ristjóri og ábyrgðarmaður: Páll Ketilsson, s. 893-3717, pket@vf.is. Fréttastjóri: Hilmar Bragi
Bárðarson, s. 898-2222, hilmar@vf.is Auglýsingastjóri: Andrea Vigdís Theodórsdóttir, s. 421-0001, andrea@vf.is. Blaðamenn: Jóhann Páll Kristbjörnsson, Thelma Hrund Hermannsdóttir og Sigurbjörn Daði Dagbjartsson.
Útlit og umbrot: Jóhann Páll Kristbjörnsson og Hilmar Bragi Bárðarson. Dagleg stafræn útgáfa: vf.is og kylfingur.is
Mikið um að vera í útgerðarmálum á Suðurnesjum
Júlímánuður kominn í gang og ansi
rólegt um að vera í útgerðarmálum
á Suðurnesjunum. Reyndar hefur
verið mjög góð handfæraveiði hjá
þeim bátum sem róa á handfæri en
langflestir, eða yfir 30 bátar, eru að
landa í Sandgerði og skiptast þeir
í tvo hópa. Strandveiðibátana og
handfærabátana sem eru að eltast
við ufsann.
Það verður að segjast að veiðin
hjá handfærabátunum er búin að
vera óvenjulega góð núna það
sem af er sumri en vanalega hefur
þorskveiðin dottið niður um miðjan
júní. Núna hefur verið góð þorsk-
veiði og strandveiðibátarnir náð
skammtinum auk þess að fá ufsa
með.
Þeir bátar sem hafa einblínt á
ufsann, þeim hefur gengið mjög vel.
Flestir bátanna landa í Sandgerði og
núna það sem af er júlí er t.d. Snorri
GK 1 með 5,7 tonn í þremur róðrum
en þessi bátur hét áður Brynjar KE,
Addi Afi GK 18,3 tonn í þremur
róðrum, Ragnar Alfreðs GK 14,1
tonn í tveimur og mest átta tonn
í einni löndun, Sindri GK 8,6 tonn
í tveimur og Guðrún GK með níu
tonn í þremur róðrum. Allir þessir
bátar hafa landað í Sandgerði.
Enginn bátur er á netum frá
Suðurnesjum enn sem komið er og
vekur það nokkra athygli. Grímsnes
GK fór á rækjuveiðar en er hættur
veiðum og kominn til Njarðvíkur.
Aðeins einn bátur hefur verið að
róa á dragnót núna í júlí og er það
Aðalbjörg RE frá Reykjavík en hún
rær frá Sandgerði. Aðalbjörg RE
er með fimmtán tonn í tveimur
róðrum og mest ellefu tonn í einni
löndun. Annars er mest um að
vera núna í slippnum í Njarðvík
enda margir bátar þar í viðhaldi og
Öðlingur SU er kominn þangað til
lengingar.
Annars er stærsta fréttin um
þessar mundir sú að eitt stærsta
sjávarútvegsfyrirtækið á Suður-
nesjum Vísir hf. í Grindavík hefur
nú verið selt. Kaupandinn er Síldar-
vinnslan á Neskaupstað, eða SVN.
Þetta vekur nokkra athygli og alveg
víst að mörgum þekkja sögu SVN
á Suðurnesjunum líst kannski ekki
á þetta.
Um aldamótin var loðnubræðsla
í Sandgerði, sem áður hafði heitið
Njörður ehf., en var seld til fyrir-
tækisins Snæfells ehf. Á þeim tíma
rak SVN verksmiðju í Helguvík.
Nokkrum árum eftir aldamótin þá
kaupir SVN Snæfell og var þá verk-
smiðjunni í Sandgerði lokað. Verk-
smiðjan í Helguvík var þó rekin
áfram en henni var á endanum
lokað fyrir nokkrum árum síðan.
Vísir hf. er fjölskyldufyrirtæki en
SVN er með nokkur fyrirtæki sem
eiga í því, t.d. á Samherji hf. hlut í
SVN. SVN á Berg Huginn ehf. í Vest-
mannaeyjum og með smá flækjum
má sjá að annað fyrirtæki sem er
mikið í Grindavík er þá orðinn svo
til hluthafi í Vísir hf. í gegnum SVN,
það er Gjögur ehf. en Gjögur á hlut
í Samherja sem rekja má aftur til
þess tíma þegar að togarinn Guð-
steinn GK var keyptur af nokkrum
útgerðarfyrirtækjum í Grindavík.
Reyndar komst Guðsteinn GK
aldrei inn í Grindavíkurhöfn en
landaði þess í stað í Hafnarfirði.
Óskar sem þá átti Arnarvík HF í
Grindavík kom upp með nafnið
Samherji en það var sameiginlegt
nafn fyrirtækjanna sem áttu Guð-
stein GK. Þessi togari varð síðan
upphafið af því veldi sem Samherji
hf. er í dag, því þeir kaupa Guðstein
GK og skíra hann Akureyrin EA. Því
má kannski segja að Samherji hf. sé
aftur kominn til Grindavíkur með
flækjum, því þeir áttu fiskimjöls-
verksmiðjuna sem var í Grindavík
en brann og eyðilagðist.
aFlaFrÉttir á SuðurNESjuM
Gísli Reynisson
gisli@aflafrettir.is
w
Áratuga reynsla Sjónmælingar
Góð þjónusta Linsumælingar
Falleg vara Sjónþjálfun
Nýjungar í sjónglerjum og tækjum
Tímapantanir í síma 420-0077 og á heimasíðu www.reykjanesoptikk.is
Fylgdu okkur á Instagram og Facebook @reykjanesoptikk.is
Verið velkomin í nýja og glæsilega
gleraugnaverslun
„Það er búið að ganga miklu betur en ég þorði að vona. Það er alltaf
einhver rödd aftast í hausnum á mér sem segir mér að fólk sé ekki
tilbúið í þetta,“ segir frumkvöðullinn Árni Geir Fossádal Rúnarsson.
Árið 2021 stofnaði Árni rafmagnsbílaleiguna 99 Electric Car Rental en
það er hugmynd sem hann hann hafði verið með í kollinum lengi. Hann
er að læra alþjóðleg viðskipti í Robert Gordon University í Aberdeen
og á sumrin sér hann um bílaleiguna – en af hverju rafmagnsbílar?
„Þegar ég byrjaði var enginn með
einungis rafmagnsbíla í útleigu. Ég
geri mér grein fyrir því að ég væri ör-
ugglega búinn að græða meiri pening
á því að kaupa tuttugu Duster-a og
leigja þá út en ég var með ákveðna
mynd í hausnum sem ég vildi keyra
á en ekki gera það sem allir aðrir eru
að gera,“ segir Árni.
Varð að ná heilu sumri
Árni vann á bílaleigunni Blue Car
Rental þegar notkun rafmagnsbíla
fór að færast í aukana. Á þeim tíma
furðaði hann sig á því að stórar bíla-
leigur væru ekki að bjóða upp á þann
kost. „Ég hugsaði með mér að það
hlyti að vera einhver ástæða fyrir því
og ýtti þá þessari hugmynd aðeins til
hliðar,“ segir Árni og bætir við: „Hún
kviknaði síðan aftur á fyrsta árinu
mínu í skólanum, sem sagt í fyrra.
Ég fór þá að vinna í þessu og ákvað
að prófa þetta. Ég vissi að það væru
fleiri en 250 hleðslustöðvar á Íslandi
og það eru til bílar sem komast milli
300 og 600 kílómetra í einu svo ég
hugsaði að það ætti alveg að ganga
fyrir venjulegt ferðalag í kringum
landið. Ég ákvað að byrja á því að
kaupa mér þá þrjá bíla og sjá hvernig
þetta virkar. Ég náði bara einum
mánuði í útleigu í fyrra en hugarfarið
mitt var það að ég yrði að ná heilu
sumri, sem er einmitt það sem er að
gerast þetta sumar.“
Aðspurður hvernig hefur gengið
með fyrirtækið hingað til segir
hann að útleigur hafi gengið vonum
framar. „Fólk sem er að leigja bílana
hjá mér segir gjarnan við mig að
því finnist Ísland svo fallegt land og
þess vegna langi því að leggja sitt
að mörkum til að halda því þannig.
Ég segi þá alltaf við þau að mér
finnist skrítið að Ísland sé ekki með
ákveðna frumkvöðlastefnu þegar
kemur að rafmagnsbílum. Við lifum
náttúrlega á fegurðinni á landinu
hérna og við þurfum að halda í hana.
Síðan er hægt að koma með skiptar
skoðanir um hvort að rafmagnsbílar
séu í raun umhverfisvænir en með
þeim er fólk að spara sér upp að
70% af peningnum sem fer í bensín
og það er eitthvað sem fólk er al-
mennt ánægt með,“ segir Árni.
Persónuleg þjónusta
Bílaflotinn samanstendur af fimm
rafmagnsbílum en Árni segir það
vera vegna þess að hann sjái einn um
allt ferlið sem viðkemur hverjum bíl.
„Ég er með þessa fimm bíla, aftur á
móti er ég bara einn með þetta allt
og ég vil veita viðskiptavinum per-
sónulega þjónustu. Ég heyri í þeim
og athuga hvernig leigan hefur verið
og hvernig allt er að ganga þegar hún
er hálfnuð. Ég reyni að vera til staðar
fyrir viðskiptavinina eins og ég get,“
segir Árni. Vinir hans hafa hjálpað
honum mikið með bílaleiguna, að-
spurður hvernig hann greiði þeim
segir hann: „Ég býð þeim út að borða
eða eitthvað skemmtilegt.“
Hann segir drauminn vera að
hann og vinir hans geti unnið á bíla-
leigunni saman en segir væntinga-
stjórnun vera stóran part af þessu
verkefni hans. „Ég er samt að passa
mig að vera ekki með of miklar
væntingar. Á meðan þetta er svona
lítið langar mig ekki að segja hvert
endanlega markmiðið er. Þetta er
bara lítið verkefni sem ég er með
núna og ætla að vinna í og reyna að
láta ganga eftir bestu getu, ef það
gengur ekki þá er það bara svoleiðis
og maður lærir af því,“ segir Árni.
Aðspurður hvort bílarnir séu
kyrrstæðir yfir veturna svarar hann
játandi. „Þetta eru náttúrlega raf-
magnsbílar og ég hugsa að ég verði
ekki með leigu á veturna fyrr en
að bílarnir byrja að komast lengra,
kuldinn hefur svo mikil áhrif á raf-
magnsnotkunina. Ég hef líka alveg
hugsað út í það að vera með eitt-
hvað annað í boði tengt bílaleigunni
yfir vetrartímann eins og til dæmis
gistingu eða eitthvað þannig en það
eru bara pælingar,“ segir hann.
Hamingjan númer eitt, tvö og þrjú
Árni er með umhverfisvæn og
sjálfbær viðmið þegar kemur að bíla-
leigunni. „Hún er umhverfisvæn, það
eru engir pappírar í ferlinu og allt
fer fram á netinu. Síðan er ég líka
að reyna að skapa það andrúmsloft
að það séu engir þjónustufulltrúar
heldur nálgast fólk þjónustuna á
þægilegan máta án óþarfa hika í
ferlinu. Það er samt eitthvað sem
verður líklega ekki að veruleika fyrr
en ég er búinn með skólann,“ segir
hann.
Aðspurður hver markmið hans
er í stóra samhenginu segir hann:
„Þetta er ógeðslega erfið spurning.
Ég segi alltaf að mig langi að vera
hamingjusamur, fjölskylda mín sé
hamingjusöm og að ég geti veitt
þeim eins mikinn stuðning og ég get,
bæði fjárhagslega og almennt. Ég er
ekki með það markmið að verða for-
stjóri í stóru fyrirtæki á ákveðnum
aldri eða ná einhverri gráðu fyrir ein-
hvern tíma. Ég ætla að halda áfram
og sjá hvert vegurinn leiðir mig. Það
verður kannski eitthvað til úr því
eða kannski ekki. Aðalatriðið er að
vera á góðum stað til þess að geta
hjálpað fjölskyldunni og að allir séu
glaðir.“
Ætla að halda áfram
og sjá hvert vegurinn leiðir mig
Thelma Hrund Hermannsdóttir
thelma@vf.is
6 // víkurFrÉttir á SuðurNESjuM