Víkurfréttir - 13.07.2022, Qupperneq 8
T A R A M A R
Ætla að breyta
iðnaðinum með
húðvörum úr
sjávarfangi og
lækningajurtum
Guðrún Marteinsdóttir, prófessor
í fiskifræði, og Kristberg Krist-
bergsson, prófessor í matvælafræði,
eru hjón sem jafnframt hafa unnið
að rannsóknum tengdum fjölbreyti-
leika íslenskrar náttúru og lífvirkum
efnum í matvælum sem síðar varð
undirstaðan af TARAMAR ehf.
Þau fóru í upphafi af stað með það
hugarfar að skapa eiturefnalausa
húðvöru til eigin nota en nú eru
vörurnar til sölu á alþjóðamarkaði
og segir Guðrún að það hafi gengið
vel. „Við eigum hundruð umsagna
sem segja frá hve fólk er ánægt og að
það hafi ekki getað flutt sig til baka
í vörur sem það notaði áður. Það
passar við það sem við vitum um
vörurnar en við höfum lagt höfuð-
áherslu á að viðhalda náttúrulegri
tíðni íslensku innihaldsefnanna og
bæta engum eitrandi eða hormón-
aruglandi efnum í formúlurnar. Það
er það sem fólk finnur og finnur
hvað húðin breytist og verður góð
með þessum hreinu, náttúrulega
gefandi efnum,“ segir Guðrún.
Nýsköpun í Sandgerði
Þangið sem TARAMAR vinnur
með kemur frá Símoni í Bláskel úr
Breiðafirði og jurtirnar frá Móðir
jörð, Hæðarenda í Grímsnesi og
Hraundísi í Borgarfirði en flest
af þessum svæðum hafa lífræna
vottun. Þá er fyrirtækið einnig með
mikla nýsköpun í Sandgerði – en
hvers vegna þar?
„Í starfi mínu á Hafrannsókna-
stofnun þá sendi ég oft verkefni inn
á þróunarsetrið í Sandgerði fyrir
tilstilli Jörundar Svavarssonar, pró-
fessors. Þessi verkefni voru undan-
tekningarlaust mjög vel unnin. Þegar
ég stóð svo frammi fyrir því að
finna fólk til að vinna í TARAMAR
þá vissi ég af þessum konum sem
höfðu unnið á þekkingarsetrinu og
vissi að þær væru kjörnar í vinnuna.
Í framhaldi af því þá átti ég fund
með Sigrúnu Árnadóttur, bæjar-
stjóra, hún útvegaði okkur húsnæði
og hjálpaði okkur á svo margan hátt.
Það má næstum segja að hún sé guð-
móðir TARAMAR,“ segir Guðrún og
bætir við: „Í framhaldi af þessu kom
Eignarhaldsfélag Suðurnesja inn
með fyrstu kaup á hlutum og margir
þar hafa hjálpað okkur mikið og
nefni ég t.d. Friðjón Einarsson sem,
á sama hátt og Sigrún, tók okkur
upp á sína arma og mætti því segja
að hann sé guðfaðir TARAMAR.
Síðan þegar Magnús tók við sem
bæjarstjóri héldum við áfram mjög
góðum tengslum og hann og bæjar-
stjórnin hafa hjálpað okkur óendan-
lega mikið.“ Guðrún segir að notkun
á hráefni frá Suðurnesjum séu í kort-
unum hjá TARAMAR en þau verða
notuð í nýja vörulínu þeirra sem ber
nafnið ICEBLU og er unnin í sam-
starfi við VAXA life á Hellisheiði.
Ætla sér stóra hluti
á erlendum markaði
TARMAR er að safna fyrir markaðs-
kostnaði til að koma sér á erlendan
markað og er með hlutafjárútboð
vegna þessa. „Við ætlum okkur
mjög stóra hluti á erlenda mark-
aðnum enda erum við með vörur
sem finnast ekki á þessum mark-
aðssvæðum og miðað við mótttök-
urnar hér heima þá eru góðar líkur
á að okkur verði tekið mjög vel er-
lendis. Í raun er eitt af markmiðum
okkar að breyta þessum iðnaði sem
í dag einkennist af mikilli notkun á
ódýrum, manngerðum efnum sem
eru slæm fyrir okkur og sum hrein-
lega hættuleg,“ segir Guðrún. Til
þess að láta það verða að veruleika
ætlar fyrirtækið að ráðast í markaðs-
herferðir til að ná til erlendu við-
skiptavinanna. „Þetta kostar mikla
peninga og nú hvetjum við Reykja-
ness- og Suðurnesjabúa til að koma í
þetta verkefni með okkur og eignast
um leið hlut í félaginu okkar en vonir
standa til að það muni vaxa hratt í
verðmæti á næstu þremur árum.
Við stefnum á að TARAMAR vaxi
og dafni og veiti stigvaxandi fjölda
vinnu á þessu svæði,“ segir Guðrún
og bætir við: „Fyrir þá sem vilja
skoða þetta þá bendum við á heima-
síðuna www.taramar.is/hluthafar.
Einnig má bæta við að hluthafar
hafa sérstök vildarkjör í netverslun
TARAMAR, eða 40–80% afslátt.“
Thelma Hrund Hermannsdóttir
thelma@vf.is
Guðrún og Kristberg ásamt starfsfólki TARAMAR.
Myndir: Ernir Eyjólfsson, Fréttablaðið
Líftæknifyrirtækið TARAMAR sérhæfir sig í
þróun og framleiðslu á lífrænum húðvörum og
er með nýsköpunarvinnu í Sandgerði.
Þá er fyrirtækið með hlutafjárútboð í gangi
til að efla þá starfsemi. Húðvörur TARAMAR
eiga sér engar líkar en þær byggja á lífvirkum
efnum úr sjávarfangi og lækningajurtum og
hafa þann eiginleika að draga úr sjáanlegum
áhrifum öldrunar.
við höfum lagt
höfuðáherslu á
að viðhalda náttúrulegri tíðni
íslensku innihaldsefnanna
og bæta engum eitrandi eða
hormónaruglandi efnum
í formúlurnar ...
8 // víkurFrÉttir á SuðurNESjuM