Víkurfréttir - 13.07.2022, Qupperneq 11
Fékk að heyra það
frá nemendum sínum
Hvenær byrjaðir þú að lyfta?
Ég hef aldrei æft neitt af viti fyrr
en ég byrjaði í Crossfit í byrjun árs
2014. Ég fann strax að Crossfit átti
vel við mig og byrjaði að æfa á fullu
og hef fengið þann heiður að taka
þátt í Íslandsmótum í sportinu. Ég
keppti svo á mínu fyrsta ólympíska
lyftingarmóti árið 2015 og mínu
fyrsta kraftlyftingarmóti árið 2017.
Hver eru þín helstu afrek í kraft- og
ólympískum lyftingum?
Ég hef orðið Íslandsmeistari í -63
kg flokki í kraftlyftingum og á ég
þar best 145 kg í hnébeygju, 85 kg
í bekk og 155 kg í réttstöðu. Einnig
hef ég orðið Íslandsmeistari í -57 kg
flokki í ólympískum lyftingum og ég
á best 73 kg snörun og 100 kg jafn-
hendingu. Einnig hef ég sett nokkur
Íslandsmet sem eru alltaf topp-
urinn af tilverunni. Ég hef nokkrum
sinnum fengið boð á RIG (Reykjavík
International Games) og einnig orðið
kraftlyftingarkona Reykjanesbæjar
sem mér fannst mjög skemmtilegt.
Hvaða árangri ert þú stoltust af?
Ég held ég sé stoltust af 145 kg
hnébeygjunni minni sem var Ís-
landsmet. Ég sló metið í hné-
beygju tvisvar sinnum á því móti.
Á þessum tíma sem þú hefur
verið að æfa hefur þú tvisvar
orðið ólétt, hafði það einhver
áhrif?
Ég náði í bæði skiptin að æfa
fram á síðasta dag sem ég er mjög
heppin með en það krefst gífur-
legrar vinnu, tíma og þolinmæði
að koma sér aftur í keppnisform
eftir meðgöngu. Ég held það hafi
nú samt bara styrkt mig andlega.
Hvað er það skemmtilegasta
við að lyfta?
Ég held það sé bara adrenalínið
sem flæðir í gegnum mann og
árangurinn sem maður sér og finnur
fyrir. Það er líka mikilvægt að setja
sér lítil og stór markmið sem maður
getur hakað út af listanum.
Hver er þín uppáhaldslyfta?
Hnébeygja í kraftlyftingunum og
jafnhending í ólympískum.
Það var mjög skemmtilegt mó-
ment þegar ég var að keppa á RIG,
sem er sjónvarpað. Ég var búin
að segja öllum umsjónarhópnum
mínum í 6. bekk að ég væri að fara
að keppa og þau voru öll spennt að
horfa á mig. Síðan er ég að reyna við
140 kg í réttstöðu og bifa ekki stöng-
inni og öskra FOOOOKK í beinni
útsendingu ... Ég sé að mér og held
fyrir munninn á mér og hleyp hlæj-
andi út og fékk svo að heyra það frá
nemendum mínum næsta skóladag.
Hvert er stefnan?
Ég er ekki að segja að ég sé gömul en
ég er samt alveg komin á þann stað
sem ég er ekkert að stefna á neitt
svakalegt. Mér finnst gaman að taka
þátt í keppnum og vil standa mig vel
en er ekkert endilega að reyna að
komast inn á erlend mót eða neitt
þannig. Ég vil bara vera heilbrigð,
líða vel í líkama og sál og hreyfa mig
eftir minni bestu getu.
Thelma Hrund Hermannsdóttir
thelma@vf.is
„Ég byrjaði að lyfta því
ég var orðin svo þreytt
á að finna mig ekki í
neinu sporti en fannst
svo rosalega gaman og
gefandi að hreyfa mig,“
segir Íris Rut Jónsdóttir.
Íris stundar kraftlyftingar
og ólympískar lyftingar.
Hún keppti á sínu fyrsta
lyftingamóti árið 2015
og hefur síðan þá sett
nokkur Íslandsmet
og tvisvar verið valin
kraftlyftingakona
Reykjanesbæjar.
ÓSKUM EFTIR RAFIÐNAÐARMÖNNUM
VEGNA GÓÐRAR VERKEFNASTÖÐU
EINUNGIS KOMA TIL GREINA AÐILAR
MEÐ SVEINSPRÓF Í RAFIÐNGREINUM
EÐA LOKIÐ FULLU NÁMI Í SKÓLA.
UPPLÝSINGAR VEITA
HJÖRLEIFUR Í S. 893-9065 OG JÓN RAGNAR S. 897-9592.
Störf í boði
hjá Reykjanesbæ
Umsóknir í auglýst störf skulu berast rafrænt gegnum vef
Reykjanesbæjar. Þar eru jafnframt nánari upplýsingar um auglýst
störf. Hægt er að notast við QR kóða til að fara beint inn á vefinn
Velferðarsvið - Verkefnastjóri í Skjóli
(frístundastarf með ungmennum með stuðningsþarfir)
Velferðarsvið - Starfsmaður í Skjóli
(frístundarstarf barna með stuðningsþarfir)
Starf við liðveislu
Reykjanesbær - almenn umsókn
Ö l l t ö l u b l ö ð V í k u r f r é t t a
f r á 1 9 8 0 o g t i l d a g s i n s í d a g
e r u a ð g e n g i l e g á
timarit.is
ti
m
ar
it
.is
víkurFrÉttir á SuðurNESjuM // 11