Víkurfréttir - 13.07.2022, Side 13
Árleg Skötumessa í Gerðaskóla
Árleg Skötumessa verður haldin
miðvikudaginn 20. júlí kl. 19:00
í Gerðaskóla. Að venju verður
boðið upp á skötu, saltfisk,
plokkfisk og tilheyrandi meðlæti.
Þá verður einnig skemmtidag-
skrá fyrir viðstadda. Markmið
Skötumessunnar er að senda út
stuðning til samfélags þeirra sem
lifa við heilsubresti eða fötlun.
Fram koma Dói og Baldur með
harmonikkutónlist, Páll Rúnar
Pálsson mun syngja ættjarðarlög
og Óskar Ívarsson og Davíð Guð-
mundsson setja alla í gírinn með
Jarli Sigurgeirssyni sem síðar
stjórnar brekkusöng á Skötumessu.
Auk þess munu ungt tónlistarfólk
koma fram, þar á meðal Jón Arnór
og Baldur, Sísí og Kristján. Ræðu-
maður kvöldsins mun svo bætast
við í hópinn á næstu dögum.
Verð á viðburðinn er 5.000 krónur
og hvetja skipuleggjendur alla þá
sem sjá sér fært að mæta að leggja
inn á reikning Skötumessunnar: rn.
0142-05-70506, kt. 580711-0650.
Tímamót í heil-
brigðisþjónustu
á Suðurnesjum
Jóhann Friðrik Friðriksson,
þingmaður Framsóknar í Suðurkjördæmi
Efling heilbrigðisþjónustu í
heimabyggð
Hugsjónir mínar í stjórnmálastarfi
miða meðal annars að því að auka
lífsgæði íbúa út frá heilsueflingu,
forvörnum og auknu aðgengi að
heilbrigðisþjónustu. Góð andleg,
líkamleg og félagsleg heilsa okkar er
drifkraftur framsækis samfélags.
Nú hafa stór skref verið stigin á
Suðurnesjum á þeirri vegferð með
dyggum stuðningi frá stórum hópi
fólks. Samtakamátturinn og sam-
vinnan skilar okkur árangri þegar
allir leggjast á eitt. Heilsugæslan er
samkvæmt lögum fyrsti viðkomu-
staður okkar í heilbrigðiskerfinu og
er þungamiðjan í heilbrigðisþjónustu
í hverju samfélagi.
Heilsugæsluþjónusta á Suður-
nesjum hefur setið eftir undanfarna
áratugi og ekki fylgt gríðarlegri íbúa-
fjölgun á svæðinu. Það er því afar
ánægjulegt og mikilvægt fyrir íbúa
Suðurnesja að sjá raunverulegar að-
gerðir raungerast.
Þjónustusvæði HSS á Suður-
nesjum telur um 27.000 íbúa og
býr við ansi þröngan húsnæðiskost.
Stefnt er á að reisa nýja 1.350 fm2
heilsugæslu á næstu árum í Reykja-
nesbæ og hefur lóð undir þá starf-
semi verið skilgreind í skipulagi í
Innri-Njarðvík. Gert er ráð fyrir því
að hún þjóni, sem fyrsti viðkomu-
staður, allt að 15.000 íbúum svæð-
isins.
Fyrsta sjálfstætt starfandi heilsu-
gæslustöðin utan höfuðborgar-
svæðisins
Í síðustu viku voru stigin afar
ánægjuleg skref þegar Sjúkratrygg-
ingar Íslands auglýstu eftir rek-
staraðila fyrir nýja heilsugæslustöð
við Aðaltorg í Reykjanesbæ. Rekstur
stöðvarinnar byggir á sambærilegu
rekstrarfyrirkomulagi og þekkist á
höfuðborgarsvæðinu en fjármögn-
unarlíkanið er aðlagað heilsugæslu-
þjónustu á landsbyggðinni. Hin nýja
heilsugæslustöð mun gefa íbúum
svæðisins valkosti sem hingað til
hafa aðeins staðið til boða á höfuð-
borgarsvæðinu. Heilsugæslustöðin á
að geta þjónað allt að 11.000 íbúum
og þar með létt undir með HSS sem
mun áfram vinna að sínum metn-
aðarfullu áformum.
Framtíðarsýn sem borgar sig
Mikil fólksfjölgun og aukin um-
ferð um alþjóðaflugvöllinn kallar á
hraðari uppbyggingu á sviði heil-
brigðismála á Suðurnesjum. Það er
mín framtíðarsýn að á Suðurnesjum
verði starfræktar þrjár heilsugæslur
auk heilsugæslunnar í Grindavík
og að heilsugæslusel verði staðsett
bæði í Suðurnesjabæ og Vogum. Með
því að auka aðgengi að heilbrigðis-
þjónustu á fyrsta stigi dregur úr lík-
unum á alvarlegum heilsubresti sem
aftur dregur úr kostnaði til lengri
tíma. Er ekki bara best að kjósa heil-
brigðisþjónustu í heimabyggð?
Flóttafólk frá Úkraínu þakkar fyrir sig
Miðvikudaginn 13. júlí verður vin-
áttudagur Úkraínu/Íslands haldinn
að Blikabraut 2 í Reykjanesbæ. Þar
mun úkraínskt flóttafólk sem er
hér á svæðinu halda smá viðburð
og tónleika til að sýna okkur þeirra
menningu og þakka Íslendingum
fyrir góðvild sína.
Sjálfboðaliðar eru búnir að útvega
á hoppukastala og unnið er í að út-
vega veitingar.
Þetta er opinn viðburður en
nánari upplýsingar er að finna á
Face book-síðu Vina Úkraínu á
Suðurnesjum.
Mynd frá fjölskyldudegi fyrir flóttafólk
sem haldinn var hjá Hjálpræðishernum
á Ásbrú fyrir skemmstu.
FIMMTUDAGURINN 28. JÚLÍ KL. 19:30
LOGI GUNNARSSON
KÖRFUTNATTLEIKSMAÐUR
FIMMTUDAGURINN 4. ÁGÚST KL. 19:30
HALLA OG HRANNAR
Í KAUPMANNAHÖFN
FIMMTUDAGURINN 11. ÁGÚST KL. 19:30
HELGI OG GRÉTAR
Í RAFHOLTI
FIMMTUDAGURINN 21. JÚLÍ KL. 19:30
SIGRÚN SÆVARSDÓTTIR-GRIFFITHS
TÓNLISTARKONA
BROT AF ÞVÍ ALLRA BESTA
FRÁ SJÓNVARPI VÍKUR FRÉTTA
FRÁ NÝLIÐNUM VETRI OG VORI
Algalíf og HS Orka undirrita fimmtán
ára samning um raforkukaup
Líftæknifyrirtækið Algalíf hefur
undirritað nýjan fimmtán ára
samning um kaup á umhverfis-
vænni raforku af HS Orku. Með
samningnum tryggir Algalíf sér
næga, hreina orku vegna yfir-
standandi stækkunar fyrirtæk-
isins að Ásbrú í Reykjanesbæ.
Algalíf ræktar örþörunga og
vinnur úr þeim fæðubótaefnið as-
taxanthín. Græn raforka er meðal
mikilvægustu aðfanga Algalífs. Sá
fyrirsjáanlegi stöðugleiki í orku-
verði sem bundinn er í samninginn
styrkir því alþjóðlega samkeppnis-
stöðu fyrirtækisins til langs tíma.
HS Orka er þekkt fyrir afhend-
ingaröryggi og umhverfisvæna
framleiðslu á raforku úr jarð-
varma. Það fellur því einkar vel að
umhverfisstefnu Algalífs að gera
langtímasamning við HS Orku, en
Algalíf leggur mikla áherslu á sjálf-
bærni, hreinleika afurða og lág-
marks vistspor framleiðsluferla.
Framkvæmdir við stækkun verk-
smiðjunnar á Ásbrú ganga vel en
framleiðslugetan mun þrefaldast
og starfsmannafjöldi tvöfaldast
úr 40 í 80 þegar framkvæmdum
lýkur 2023. Áætlað er að árleg
velta fari yfir fimm milljarða króna
eftir stækkun og með tryggum að-
gangi að raforku er ekkert því til
fyrirstöðu að fyrirtækið verði það
stærsta á heimsvísu í framleiðslu á
sjálfbæru, náttúrulegu astaxanthíni.
Algalíf hefur verið í viðskiptum
við HS orku frá því fyrirtækið var
stofnað fyrir áratug. Stjórnendur
beggja fyrirtækja eru ánægðir með
samstarfið hingað til og vænta
mikils af samstarfinu næstu árin.
Orri Björnsson, forstjóri Algalífs.
víkurFrÉttir á SuðurNESjuM // 13