Víkurfréttir - 13.07.2022, Page 14
Guðmundur Rúnar Hallgrímsson, afrekskylfingur í Golfklúbbi Suðurnesja, tryggði sér klúbbmeistara-
titilinn í ellefta sinn þegar meistaramóti GS lauk um síðustu helgi en Rúnar safnar ekki aðeins
meistaratitlum eins og kemur fram í viðtali sem Víkurfréttir tóku við hann eftir meistaramótið.
Guðmundur Rúnar er nú aðeins
einum titli frá því að jafna met það
sem stórkylfingurinn Örn Ævar
Hjartarson setti fyrir tíu árum síðan,
tólf klúbbmeistaratitla. Rúnar er
með næstflesta titlana því með
þessum ellefta titli tók hann fram
úr Þorbirni Kjærbo sem varð klúbb-
meistari tíu sinnum á árunum 1965
til 1981.
„Þetta var næstsætasti sigurinn
hingað til,“ segir Rúnar í upphafi
spjallsins. „Sá fyrsti [2005] er alltaf
sætastur en þessi komst ansi nálægt
honum.“
Þrotlausar æfingar
„Ég var búinn að æfa vel fyrir mótið,
hef verið duglegur við það síðustu
ár svo sem, og gat hakað við eitt
þeirra markmiða sem ég setti mér
fyrir sumarið 2022. Það var að gera
atlögu að klúbbmeistaratitlinum og
nú er ég búinn að merkja við það í
tjékkboxinu.“
Þeir sem þekkja til Guðmundar
Rúnars vita að fáir æfa jafn mikið og
hann. Rúnar æfir með meistaraflokki
allt árið og er þess fyrir utan mjög
iðinn við aukaæfingarnar.
Hefurðu tekið þátt í GSÍ-móta-
röðinni í ár?
„Já, ég hef tekið þátt í öllum mót-
unum. Það var eitt af markmiðunum
að taka þátt í öllum mótunum og
komast í holukeppnina. Ég tapaði
ekki leik í holukeppninni, gerði
reyndar jafntefli í þeim öllum. Eini
leikurinn sem sigurvegari mótsins
tapaði stigi var á móti elsta kepp-
anda mótsins – mér,“ segir Rúnar og
skellir upp úr. „Hin mótin eru búin að
vera allt í lagi, ekkert sérstök en alltaf
meðal þrjátíu efstu.“
Núna ertu einum titli frá því að
jafna met Arnar Ævars, stefnirðu á
að jafna það – kannski bæta metið?
„Núna fór ég fram úr Þorbirni
Kjærbo, sem er visst afrek, þannig
að það er bara eitt skref eftir núna
– tvö skref ef ég ætla að fara fram úr
honum.
Þetta er samt fyrsta árið þar
sem ég hugsaði með mér hvort það
væri ekki að vera kominn tími til að
hætta þessu – ekki að hætta í golfi
heldur hætta þessu keppnisgolfi.
Svo stendur maður með bikarinn í
höndunum og þá er þetta allt þess
virði. Allur tíminn sem fer í þetta,
öll vinnan, er ríkulega launað þegar
maður fær bikarinn í hendurnar.
Ég ætla að reyna að jafna metið
sem Örn Ævar á og jafnvel bæta
það. Ég er ekkert á leiðinni að hætta,
kornungur maðurinn,“ segir Rúnar
sem nálgast sextugsaldurinn óð-
fluga en hann verður 47 ára á næstu
dögum.
Er ekki erfitt að standa í þessu,
verandi með fjölskyldu og í fullri
vinnu?
„Þetta er svolítið púsluspil en ég fæ
mikinn stuðning frá fjölskyldunni og
vinnuveitendum. Það er mjög þægi-
legt að geta hagað vinnunni þannig
að maður getur fengið frí þegar þess
þarf – eins líka með fjölskyldulífið,
maður fær svigrúm til að „leika sér“.
Konan mín sagði mér að hún
væri búin að panta ferð til Spánar
fyrir fjölskylduna í sumar, ferðin var
rétt fyrir meistaramótsvikuna og ég
sagði að ég gæti eiginlega ekki farið
þá. Hún horfði bara á mig og spurði:
„Hver var að bjóða þér?“ Það er
eiginlega hætt að reikna með manni
yfir golftímabilið.“
Nú hefur maður heyrt að þú hafir
ekki verið með þinn vanalega kylfu-
svein í ár, voru það ekki ákveðin
viðbrigði?
„Jú og fyrir utan þrotlausar æfingar
er það sennilega ástæðan fyrir að ég
vann mótið í ár. Að skildi hafa slitið
því samstarfi. Ég hafði ekki unnið
titilinn síðan hann fór á pokann
hjá mér 2019, varð síðast meistari
2018. Nú var hann önnum kafinn á
Landsmóti hestamanna á Hellu og
er ég þeim ævinlega þakklátur,“ segir
Rúnar og hlær.
Golfsumarið er langt frá því að
vera búið hjá Rúnari en næsta mót
er Hvaleyrarbikarinn sem hefst á
föstudaginn, svo verður Íslandsmót
golfklúbba helgina þar á eftir og svo
verður frí eina helgi („Ég hlýt að
finna eitthvað golfmót þá,“ skýtur
Rúnar inn í). Svo verðu Íslandsmótið
í höggleik haldið í Eyjum helgina
eftir verslunarmannahelgina. Hann
ætlar að taka þátt í öllum þessum
mótum enda má segja að hann lifi
fyrir golfið.
„Ég er líka svo heppinn að vera
með samning við Ísam, sem flytur
inn vörumerkin Titleist og FootJoy
fyrir golfið. Þeir styrkja mig með
boltum, hönskum og öðrum búnaði
– og svo fæ ég góðan afslátt af vörum
sem eru ekki inni í samningnum. Það
er mjög gott að hafa þannig bakhjarl
því afreksgolf tekur mikinn tíma og
allt kostar þetta peninga.“
KLÚBBMEISTARAR GS 2022
Guðmundur Rúnar lék hringina fjóra á 295 höggum (+7), næstur honum
kom Pétur Þór Jaidee á 298 höggum (+10) og í þriðja til fjórða sæti lentu
klúbbmeistarar síðustu tveggja ára, Logi Sigurðsson og Róbert Smári
Jónsson á 299 höggum (+11).
Klúbbmeistari kvenna varð Andrea Ásgrímsdóttir, framkvæmdastjóri
klúbbsins. Í meistaraflokki kvenna voru tveir þáttakendur skráðir til
leiks. Andrea sigraði á 344 höggum (+56) og önnur varð Rut Þorsteins-
dóttir á 365 höggum (+77).
Íhugaði að hætta
Guðmundur Rúnar ásamt Jóhanni Issa
Hallgrímssyni, fyrrum kylfusveini,
meðan allt lék í lyndi milli þeirra félaga.
Mynd: Facebook
Klúbbmeistarinn með meistarabikarinn
og hluta skósafnsins, FootJoy-hlutann.
VF-myndir: JPK
Konan mín sagði mér
að hún væri búin
að panta ferð til Spánar fyrir
fjölskylduna í sumar, ferðin var
rétt fyrir meistaramótsvikuna
og ég sagði að ég gæti
eiginlega ekki farið þá.
Hún horfði bara á mig og spurði:
„Hver var að bjóða þér?“ ...
Jóhann Páll Kristbjörnsson
johann@vf.is
Talandi um búnað, hvað áttu eiginlega orðið mörg pör af golfskóm?
„Sko!“ Nú setur Rúnar sig í stellingar. „Sko, þegar ég varð fertugur átti
ég fjörutíu pör af golfskóm og þá ákvað ég að hætta þar. Svo þegar ég
varð fjörutíu og eins bætti ég við einu pari. Það eru sjö ár síðan og ég
er búinn að bæta við 33 pörum, þau eru orðin 73 pörin af golfskóm
sem ég á. Þannig að þær áætlanir fóru út um þúfur, skósafnið er meira
virði en bíllinn minn.“
Safnar golfskóm
sport