Víkurfréttir - 13.07.2022, Page 16
Mundi
Það er engin lognmolla í
Grindavík þessa dagana!
Æfingabúðir Siglingasambands Íslands 2022 voru haldnar á dögunum í
samstarfi við Siglingafélagið Knörr í Reykjanesbæ. Flottur hópur efnilegra
kænusiglara tók þátt í búðunum til að æfa sig og bæta siglingafærnina við
strendur Reykjanesbæjar. Var m.a. haldin siglingakeppni úti fyrir smábáta-
höfninni í Gróf og vöktu kænurnar athygli vegfarenda þar sem þær sigldu
meðfram ströndinni. Þegar ljósmyndara Víkurfrétta bar að var reyndar
stafalogn og spegilsléttur hafflöturinn en það eru ekki bestu aðstæður
þegar sigla á seglum þöndum.
„Siglingafélagið Knörr hóf aftur starfsemi nú í sumar eftir langt hlé og hefur
starf þess farið vel af stað,“ segir Ögmundur Erlendsson, formaður Knarrar,
og bætti við: „Fullbókað hefur verið á öll siglinganámskeið sem af er sumri
og Knörr vill nota tækifærið og þakka Reykjanesbæ fyrir frábæran stuðning
við að endurvekja félagið.“
VF-myndir: JPK
Kænusiglingar í Keflavík
AUGLÝSENDUR
TAKIÐ EFTIR!
SÍÐASTA BLAÐ FYRIR
VERSLUNARMANNAHELGI
KEMUR ÚT MIÐVIKU-
DAGINN
27. JÚLÍ
TRYGGIÐ YKKUR AUGLÝS-
INGAPLÁSS TÍMANLEGA!
27.
JÚLÍ
Miðvikudagur
Hjá okkur er allt
innifalið
Ljósleiðari
10.490 kr/mán.
ENGINN AUKAKOSTNAÐUR, FRÍR ROUTER
NET
SÍMI
SJÓNVARP
K a p a l v æ ð i n g • H a f n a r g a t a 2 1 • 4 2 1 4 6 8 8
w w w . k v . i s • k v @ k v . i s
Fyllsta öryggis er ávallt gætt og
hefur Knörr haft gæslubát á láni hjá
Brokey (Siglingafélagi Reykjavíkur)
til að geta haldið siglinganámskeið
í Reykjanesbæ síðastliðinn mánuð.
Beðið eftir blænum:
Kænusiglarar bíða og vona að
hann fari að blása aðeins.