Víkurfréttir


Víkurfréttir - 02.11.2022, Page 2

Víkurfréttir - 02.11.2022, Page 2
 FINNDU OKKUR Á FACEBOOK DAGLEGAR FERÐIR ALLA VIRKA DAGA S U Ð U R N E S - R E Y K J A V Í K 845 0900 FERÐIR Á DAG ALLTAF PLÁSS Í BÍLNUM HREINSUM RIMLAGARDÍNUR OG MYRKVUNARGARDÍNUR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á ALLTHREINT.IS Kvikmyndaleikkonan Jodie Foster verður með annan fótinn í upp- hafi aðventu í Keflavík við tökur á fjórðu þáttaröð lögregluþáttanna True Detective. Tökur verða á kránni Paddy’s við Hafnargötu í Keflavík og einnig í heimahúsi við Sunnubraut. Þætt- irnir eiga að gerast í Alaska en tökur stóðu yfir á Vatnsleysuströnd í síð- ustu viku. Þar var mikill floti, tæki og mannskapur, en íslenska kvikmynda- fyrirtækinu True North er meðfram- leiðandi með stórfyrirtækinu HBO. Tökur fara fram í Reykjanesbæ 28. nóvember til 2. desember. Sam- kvæmt heimildum Víkurfrétta hefur kráin Paddy’s verið leigð til verk- efnisins í nokkrar vikur. Staðnum verður breytt að einhverju leyti, m.a. verður hann allur málaður gulur að innan. Tökurnar munu hafa áhrif á opnunartíma verslana og fyrirtækja í næsta nágrenni og munu einhverjar verslanir þurfa að hafa lokað á töku- degi. Þá mun þetta hafa áhrif á langa jólaopnun verslana við Hafnargötu og henni frestað um nokkra daga. Kvikmyndatökur á Sunnubraut verða í þrjá daga og myndað frá kl. 14 og fram á kvöld. Lagður verður líf- rænn gervisnjór yfir hluta götunnar, aðallega fyrir framan húsið sem leigt hefur verið til verkefnisins. Þar mun risavaxið grenitré í næsta garði ásamt heitum potti í bakgarðinum hafa uppfyllt allar helstu óskir fram- leiðenda fyrir tökurnar en þeir hafa einnig leigt meira húsnæði í götunni. Þá fá næstu hús og umhverfi skreyt- ingu eða „andlitslyftingu“, m.a. verða loftlínur settar á milli ljósastaura, allt til að líkjast umhverfi svipaðrar götu í Alaska. Leikmunadeild True North hefur verið í sambandi við íbúa götunnar við undirbúning en hluti skrauts verða jólaljós á trjám og í gluggum. Leifur Dagfinnsson, framkvæda- stjóri True North segist ekki geta tjáð sig um verkefnið að svo stöddu en er afar þakklátur fyrir velvilja, skilning og samstarfsvilja sem íbúar hafa sýnt verkefninu. Þetta er stærsta kvikmyndaverk- efni sem samið hefur verið um á Ís- landi. Vinnsla og tökur munu taka níu mánuði og er talið að það muni skila um níu milljörðum k ró n a t i l samfélagsins hér á landi Þetta er fjórða þáttaröð True De- tective og ber undirtitilinn Night Country. Hin heimsþekkta Jodie Foster ásamt leikkonunni Kali Reis fara með aðalhlutverkin en þær leika rannsóknarlögreglumenn. Þætt- irnir eiga að gerast í Ennis í Alaska í Bandaríkjunum. Foster og Reis fá það verkefni að rannsaka dularfullt hvarf sex manna frá norðurskauts- rannsóknarstöð. Fyrsta þáttaröðin var frumsýnd árið 2014 og þar voru Matthew McConaughey og Woody Harrelson í aðalhlutverkum. Þættirnir vöktu mikla athygli og fengu jákvæða umfjöllun á sínum tíma. Höfundur þeirra Nic Pizzolatto fékk afar góða dóma. Rúv greindi frá því í sumar að hann verði einn aðalframleiðenda nýju raðarinnar ásamt leikstjóranum Cary Fukunaga, framleiðandanum Barry Jenkins og þeim Foster, Har- relson og McConaughey. Jodie Foster í keflavík á aðventu Hluti af tökum á fjórðu sjónvarpsþáttaröð lögregluþáttanna True Detective verða í Keflavík. Hafa leigt krá á Hafnargötu og hús við Sunnubraut fyrir tökurnar. Lokanir í verslunum á tökudögum. Alicia Christian „Jodie“ Foster er bandarísk leikkona, leikstjóri og kvikmyndaframleiðandi. Hún hefur hlotið tvenn Óskarsverðlaun, þrenn BAFTA-kvikmyndaverðlaun, tvenn Golden Globe-verðlaun og Golden Globe Cecil B. DeMille-verðlaunin. Foster vakti fyrst mikla athygli eftir leik sinn í The Taxi driver 1976, að- eins fjórtán ára gömul. Frægðarsól hennar náði hæstu hæðum eftir leik hennar í The Silence of the Lambs árið 1991 þar sem hún lék aðalhlutverkið í mögnuðum kvik- myndum á móti Anthony Hopkins. Foster verður 60 ára 19. nóvember og mun því fagna stórafmælinu sínu á Íslandi Fagnar stórafmæli á Íslandi Páll Ketilsson pket@vf.is Séð yfir tökusvæðið á Hafnargötu í Keflavík. Paddy's kráin fyrir miðri mynd. VF-mynd: Hilmar Bragi Tökur á True Detective voru á Vatnsleysuströnd. Séð yfir hluta Sunnubrautar í Keflavík þar sem tökur verða í þrjá daga í desember. VF-mynd: Hilmar Bragi Paddy's kráin á Hafnargötu fær andlitslyftingu en þar verða tökur um mánaðarmótin. VF-myndir/pket 2 // vÍkurFrÉttir á SuðurneSJuM

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.