Víkurfréttir - 02.11.2022, Qupperneq 14
\IJ國
[JIJJI阱, I和啊�, ll國
Útboð
Félagsaðstaða eldri borgara í Grindavík
Consensa fyrir hönd Grindavíkurbæ óskar eftir tilboðum í áfanga I í uppbyggingu félagsaðstöðu fyrir eldri
borgara í Grindavík samkvæmt skilmálum útboðsgagna. Um er að ræða staðsteypt hús á tveimur hæðum ásamt
kjallara. Húsið mun tengjast núverandi húsi að vestanverðu á 1. og 2. hæð og gert er ráð fyrir tengingu við
fyrirhugaðar íbúðir að austanverðu á 1. hæð.
Hægt er að sækja öll útboðsgögn án greiðslu á útboðsvefnum www.tendsign.is
Tilboðum skal skilað með rafrænum hætti á útboðsvef eigi síðar en kl. 12:00
þann 28. nóvember 2022.
Nánari upplýsingar má finna á www.consensa.is/utbod/auglyst-utbod
GRINDAVÍK
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson
sigurbjorn@vf.is
Það var margt í gangi hjá Grinda-
víkurkirkju í síðustu viku en hæst
bar Hátíðarmessa sunnudaginn 30.
október, í tilefni af 40 ára vígsluaf-
mæli kirkjunnar en þessi fallega
kirkja tók við af þeirri gömlu þann
26. september 1982.
Vígslubiskupinn í Skálholti, sr.
Kristján Björnsson predikaði en sr.
Elínborgu Gísladóttur sóknarprestur
leiddi messuna. Nýjar sálmabækur
voru teknar í notkun en þær eru gjöf
frá Eðvardi Júlíussyni til minningar
um Elínu Pálfríði Alexandersdóttur
eiginkonu hans sem lést árið 2019.
Margir komu að þessari messu,
sóknarnefndarfólk sem aðrir.
Kór Grindavíkurkirkju leiddi
sönginn í messunni undir öruggri
stjórn nýja organistans, Kristjáns
Hrannars Pálssonar sem fékk auk
þess trommuleikarann Þorvald Hall-
dórsson og kontrabassaleikarann
Birgi Stein Theódórsson í lið með
sér.
Viðhaldi á þessari fallegu kirkju
hefur verið ábótavant undanfarin
ár og því er nauðsynlegt að hefjast
handa og að því tilefni var blásið
til styrktartónleika miðvikudags-
kvöldið 26. október. Grindvískir
söngvarar tróðu upp ásamt kirkjukór
Grindavíkurkirkju og kvennakórnum
Grindavíkurdætrum og þóttu tón-
leikarnir heppnast einstaklega vel.
Tónlistarstjóri var fyrrnefndur
Kristján Hrannar en kórstjóri
Grindavíkurdætra er Berta Dröfn
Ómarsdóttir.
Húsnæðisaðstæður skólaþjón-
ustu, félagsþjónustu og barna-
verndar Grindavíkurbæjar verða
bættar. Bæjarstjórn Grindavíkur
hefur samþykkt tillögu bæjarráðs
með sex atkvæðum um viðauka
vegna breytinga á aðstöðu félags-
og skólaþjónustu. Óskað var eftir
heimild til að nota af fjárheimild
verkefnisins „Víkurbraut 62, breyt-
ingar á 3. hæð“ í að laga núverandi
aðstöðu félags- og skólaþjónustu.
Fjárhæðin er tíu milljónir króna.
Ásrún Helga Kristinsdóttir, for-
seti, vék af fundi við umræður og
afgreiðslu málsins og fól Helgu Dís
Jakobsdóttur varaforseta að taka við
stjórn.
Ekki er gerð krafa um samþykki
aðliggjandi lóða í samþykkt um
hænsnahald sem nýlega var sam-
þykkt í Grindavík.
Tillaga að samþykkt um hænsna-
hald í Grindavík var lögð fram í
skipulagsnefnd á dögunum, sem
hefur samþykkt hana og vísað til
afgreiðslu bæjarstjórnar, með þeirri
breytingu að ekki er gerð krafa um
samþykki aðliggjandi lóða. Bæjar-
stjórn samþykkti svo samhljóða
samþykktina með sömu breytingu
og skipulagsnefnd.
Fisktækniskóli Íslands hlaut
Norplus Aurora menntaverðlaun
Norðurlandaráðsverðlaunin 2022
en þau eru veitt því verkefni á sviði
leik- grunn- og framhaldsskóla sem
talið er hafa skarað fram úr á árinu.
Verkefni Fisktækniskólans, sem
hlýtur verðlaunin í ár, var til þriggja
ára og hefur að markmiði að mynda
samstarfsnet allra sérskóla á Norð-
ulöndum á sviði veiða, vinnslu og
fiskeldi.
Að sögn Ólafs Jóns Arnbjörns-
sonar, skólameistara Fisktækni-
skóla Íslands, þá hófst þessi vegferð
fyrir rúmum 13 árum þegar skólinn
fékk stuðning Vest-norrænu skrif-
stofunnar í Færeyjum (NORA) til að
tengja saman skóla í Grænlandi, Ís-
landi, Færeyjum og vestanverðum
Noregi. „Við víkkuðum síðan út sam-
starfið hægt og rólega og eru nú alls
níu skólar í samstarfsnetinu - og frá
öllum Norðurlöndum og svæðum –
nema reyndar Svíþjóð, en við erum
að vinna að því að bæta þeim við í
næstu lotu,“ segir Ólafur.
„Það þarf vart að nefna hversu
mikilvægt það var fyrir okkur sem
voru að undirbúa stofnun skólans í
Grindavík að hafa aðgang að reynslu
nágranna okkar og ekki síður að fá
aðgang að öllu því náms- og kennslu-
efni sem þessir skólar höfðu, sem
var jú afar takmarkað hér þegar við
vorum að fara af stað fyrir rúmum
12 árum. Við nutum sérstaklega góðs
af þessu framan af og þá einkum á
sviði fiskeldis. En síðustu árin höfum
við geta stutt samstarfsaðila okkar
á þeim sviðum sem við höfum haft
yfirburði, svo sem á sviði vinnslu-
og veiðarfæratækni. Þá höfum við
notið góðs af því að nemendur okkar
hafa fengið verklega þjálfun hjá vin-
askólum okkar – við aðstæður og
búnað sem við höfum ekki haft efni
á að koma okkur upp.“
Norræna ráðherranefndin hefur í
tvígang styrkt verkefnið undir þesari
áætlun Nordplus. Fyrst ári 2016 en
þessum hluta verkefnisins (2018-
2022) lýkur formlega nú í desember.
„Ég reikna fastlega með að við –
hópurinn, komum til með að sækja
um að nýju og hættum ekki fyrr en
allir verknámsskólar á sviði veiða,
vinnslu og fiskeldi á Norðurlöndum
verða komnir í samstarfsnetið.“
Norðmenn standa afar vel að baki
sinum þrettán fisktækniskólum – og
hafa flestir skólarnir bæði skólaskip
og veiðikvóta auk fyrirmyndar að-
stöðu til verklegrar kennslu. „En
þó svo skólarnir standi mis vel að
vígi hvað þetta varðar, þá eigum
við flestir það sameiginlegt að
vera frekar litlir sérskólar og oftast
tengdir minni sjávarbyggðum.
Faglega eigum við einnig mjög mikið
sameiginlegt. Þetta er jú Norður Atl-
antshafið! Þetta er sami fiskurinn,
sömu veiðarfæri, vinnsluaðferðir og
markaðir og eldið mjög svipað. Við
glímum einnig við sömu vandamálin
hvað varðar nýliðun og áhuga ungs
fólks á námi og starfi innan bláa
hagkerfisins. Við eigum, hvað þetta
varðar, meira sameiginlegt innbyrðis
og yfir landamærin, en með öðrum
framhaldsskólum í heimalandinu.
Með því að tengja skólana saman
– „svona í toppnum“ hefur okkur
tekist að tala sterkari röddu og hafa
ótal „spinn-off“ verkefni farið af stað
í skjóli samstarfsnetsins síðustu 10
árin.
Við höfum tekið við ótal hópum
nemenda og kennara frá sam-
starfsskólum okkar, en höfum svo
einnig notið góðs af og sent okkar
nemendur og kennari til þjálfunar
í hinum löndunum – svo sem í frá-
bærri aðstöðu til kennslu í fiskeldi
í Noregi og siglingafræði og véla-
hermum í Noregi – svo fátt eitt sé
nefnt. Aðstöðu sem við höfum ekki
getað boðið okkar nemendum upp
á,“ sagði skólastjórinn.
Endurbætur og styrktartónleikar. Nýjar sálmabækur teknar í notkun.
Fisktækniskóli Íslands hlýtur Nordplus Aurora
menntaverðlaun Norðurlandaráðs 2022
Bæta húsnæðis-
aðstæður hjá
Grindavíkurbæ
Ekki þarf leyfi ná-
granna fyrir hænum
Fjörutíu ára vígsluafmæli Grindavíkurkirkju
Það var þétt setinn bekkurinn á styrktartónleikunum.
Kristján Björnsson, vígslubiskup, og
sr. Elínborg Gísladóttir, sóknarprestur.
Grindvískir
kórar og
söngfólk sungu
á afmælinu.
Óli Jón Arnbjörnsson, skólameistari
með verðlaunin sem hann
fékk afhent 1. nóvember.
14 // vÍkurFrÉttir á SuðurneSJuM