Víkurfréttir


Víkurfréttir - 02.11.2022, Blaðsíða 21

Víkurfréttir - 02.11.2022, Blaðsíða 21
Enskumælandi ráð Fjöldi erlendra íbúa á Íslandi hefur farið vaxandi undanfarin ár og sömuleiðis fjöldi ferðamanna sem sækir Ísland heim. Í mörgum sveitar- félögum eru erlendir íbúar nú orðnir á bilinu 25–50% og ekkert bendir til þess að þessar tölur muni lækka í náinni framtíð, slík er þörfin fyrir erlent vinnuafl. Þessum nýju íbúum gengur misvel að aðlagast samfélaginu. Mörgum gengur illa að ná tökum á íslenskunni og það getur gert það að verkum að fólk einangri sig eða haldi sig bara með þeim sem tala þeirra eigið tungumál. Slík hópaskipting getur hvorki verið þessum íbúum né samfélaginu til góðs. Þrátt fyrir að nauðsynlegt sé fyrir þá sem ætla að setjast hér að ná tökum á íslenskunni þá er hægt að grípa til ýmissa annara ráða til þess að hjálpa fólki að verða virkir þátttakendur í samfélaginu. Á ferðum mínum um Suðurkjör- dæmi verður maður margs vísari og m.a. því að sveitarfélögin er mörg hver farin að bregðast við þessari stöðu. Í Mýrdalshreppi, þar sem helm- ingur íbúa er með erlent ríkisfang, hefur verið komið á fót enskumæl- andi ráði sem í sitja sjö íbúar með er- lent ríkisfang. Með þessu vilja Mýr- dælingar koma til móts við þennan h ó p o g skap a íbúum með erlent ríkisfang mögu- leika á að koma s í n u m s j ó n a r - miðum á framfæri en ekki síður að samfélagið fái að njóta þeirrar þekk- ingar og hæfni sem þessi hópur býr yfir. Frábært skref sem gerir þessum hópi auðveldara með að aðlagast sínu samfélagi. Með þessu er verið að valdefla þessa nýju íbúa og fá þá til þátttöku en einnig að aðlaga okkur sem fyrir eru að breyttum veruleika. Væri það ekki góð hugmynd fyrir önnur sveitarfélög að fara að for- dæmi Mýrdælinga og stofna til slíkra ráða? Guðbrandur Einarsson, þingmaður Viðreisnar í Suðurkjördæmi. Landhelgisgæsla Íslands er löggæslu- stofnun sem hefur það hlutverk að sinna löggæslu og eftirliti sem og leit og björgun á hafsvæðinu umhverfis Ísland. Landhelgisgæslan annast einnig framkvæmd á varnartengdum rekstrar- verkefnum í umboði utanríkisráðuneytisins sbr. varnarmálalög nr. 34/2008 og samning við utanríkisráðuneytið, þ.m.t. er rekstur öryggissvæða, mannvirkja, kerfa, og ratsjár- og fjarskiptastöðva Atlantshafsbandalagsins. Hjá Landhelgisgæslunni starfar rúmlega 200 manna samhentur hópur sem hefur að leiðarljósi slagorðið: Við erum til taks! Gildi Landhelgisgæslunnar eru: Öryggi - Þjónusta – Fagmennska. Nánari upplýsingar um Landhelgisgæslu Íslands má finna á: www.lhg.is. Öryggis- og umsjónarmaður flugskýlis Atlantshafsbandalagsins Landhelgisgæsla Íslands óskar eftir að ráða áreiðanlegan öryggis- og umsjónarmann í flugskýli Atlantshafsbandalagsins nr. 831 á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli. Um dagvinnu er að ræða en vegna eðlis verkefna gæti viðkomandi þurft að vera til staðar utan hefðbundins vinnutíma. • Reynsla og menntun sem nýtist í starfi, s.s. vélvirkjun, flugvirkjun eða önnur iðnmenntun • Reynsla af öryggisgæslu, eld- og slysavörnum er kostur • Aukin ökuréttindi og vinnuvélapróf • Góðir samskiptahæfileikar og þjónustulund • Frumkvæði, sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð • Reglusemi, nákvæmni og snyrtimennska • Góð enskukunnátta • Líkamleg geta til að starfa við erfiðar aðstæður • Búseta á Suðurnesjum er kostur • Almenn umsjón, hússtjórn, öryggisgæsla og öryggiseftirlit innan og við flugskýlið • Umsjón með umhverfis-, slysa- og eldvörnum • Þjálfun og samskipti við notendur flugskýlisins • Þátttaka í móttöku og þjálfun starfsfólks, erlends liðsafla og verktaka • Minniháttar viðgerðir og viðhaldstilkynningar • Rekstur og eftirlit þvottastöðvar fyrir flugvélar • Þátttaka í gæðamálum Umsækjendur þurfa að standast kröfur Landhelgisgæslunnar um líkamlegt og andlegt atgervi. Einnig skal starfsfólk uppfylla skilyrði fyrir öryggisheimild sbr. varnarmálalög nr. 34/2008 og reglugerð nr. 959/2012. Umsóknarfrestur er til og með 14. nóvember 2022. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Umsóknir gilda í sex mánuði frá dagsetningu auglýsingar. Í ljósi ríkjandi kynjahlutfalls innan Landhelgisgæslunnar og jafnréttisáætlunar stofnunarinnar, eru konur sérstaklega hvattar til að sækja um. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags og fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs. Nánari upplýsingar veita Helga Birna Jónsdóttir (helga@intellecta.is) og Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) í síma 511 1225. Helstu verkefni og ábyrgð: Menntunar- og hæfniskröfur: Á MÓÐINS HÁRSTOFU í Hólmgarði 2 í Reykjanesbæ er hægt er að fá almenna hársnyrtingu og naglaásetningu. Bjóðum ykkur hjartanlega velkomin til okkar. Hægt er að nálgast tíma á www.noona.is/modins eða í síma 790-7575. Kær kveðja, stelpurnar á Móðins. Við erum Móðins vf is vÍkurFrÉttir á SuðurneSJuM // 21

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.