Víkurfréttir


Víkurfréttir - 02.11.2022, Blaðsíða 22

Víkurfréttir - 02.11.2022, Blaðsíða 22
„Keflavík gegnir mikilvægu hlutverki í samfélaginu,“ segir Sigurður þar sem við stöndum á skrif- stofu félagsins við Sunnubraut og horfum yfir keppnissvæðið. „Hér er mikið og gott sjálfboðaliða- starf unnið og það þarf til að láta hlutina ganga upp. Mörgum sinnum hefur nánast verið búið að knésetja félagið fjárhagslega, eða það fallið með stæl eins og 2018. Allskonar mistök hafa átt sér stað en það má ekki drepa eldmóðinn og það sem er verið að gera í sjálfboðaliða- starfinu; það er ekki bara við stjórnin heldur allir í félaginu og hjartað í stuðningsmönnunum. Stuðningsmenn ætlast til meira og þessi spenna þarf að vera til staðar – svo er annað mál hverju við höfum ráð á. Okkar starf er að sníða stakk eftir vexti eða biðja um að stækka stakkinn. Þeir sem styðja okkur fjárhagslega, sveitarfélagið og stuðningsaðilar, þeir þurfa að styðja betur við okkur – stakkurinn þarf að vera stærri ef við ætlum að komast lengra í efstu deild.“ Finnst þér framlag bæjarins til deildarinnar þurfi að vera meira? „Það er svolítið erfitt að tala um framlag bæjarins því þetta eru okkar skattpeningar sem verið er að ráð- stafa, þá finnst mér að framlag bæjarins mætti vera meira í takt við framlag íþróttafélagsins til sam- félagsins. Það mætti vera meira sam- ræmi í því sem íþróttafélögin veita bænum og sem bærinn veitir íþrótta- félögunum. Að hverju stefnum við sem bæjar- félag? Við stefnum að því að búa til betri bæ og betri bær verður til með betra fólki. Og hvernig verður betra fólk til? Það verður til með góðu uppeldi, menntun og að hafa eitthvað uppbyggilegt fyrir stafni. Heilsuefling er annað sem íþrótta- félögin standa fyrir,“ segir Sigurður en honum finnst þáttur íþróttafélaga í uppeldisstarfi vera of lítils metinn til samanburðar við það sem er lagt t.d. til fræðslumála sveitarfélagsins. „Þegar ég tala um að það mætti vera meira samræmi þá skal ég taka dæmi um það. Fræðslusvið sveitar- félagsins tekur langstærsta skerfinn af þessu almannafé og ef þú berð það saman við framlagið sem íþrótta- félögin eru að fá þá eru hlutföllin einn á móti tuttugu, þrjátíu. Allavega er það gígantískur munur á því sem sveitarfélagið leggur til fræðslumála og því sem það leggur til íþróttamála.“ Sigurður ber saman skóla með 600 nemendur, og allan þann rekstur sem því fylgir, annars vegar og hins vegar íþróttafélag með sam- bærilegan iðkendafjölda. Nemandi í skóla fær um þrjátíu klukkustundir á viku undir einhverskonar hand- leiðslu kennara eða annars starfs- fólks en barn sem stundar knatt- spyrnu fær fimm stundir á viku í skipulagt uppeldisstarf sem er að mestu fjármagnað með sjálfboða- liðastarfi. „Það sem vantar er meira jafnvægi á milli þeirra fimm tíma sem börnin fá í íþróttastarfi á móti þeim þrjátíu tímum sem þeir fá í grunnskóla. Þar er hlutfallið einn á móti fimm, sex í tíma mælt á meðan kostnaðarlið- urinn er einn á móti tuttugu, þrjátíu.“ Erum að vinna í sömu átt Sigurður heldur áfram: „Ef við lítum hér út á skólalóðina þá eru átta starfsmenn á launum við að horfa á krakkana í frímínútum. Við erum með einn menntaðan þjálfara á hver tuttugu börn, þá erum við að tala um þrjá þjálfara á launum á hverri æfingu. Í eðli sínu er þetta sambærilegt uppeldisstarf sem vinnur að því að gera betri borgara og betri bæ. Mér finnst þetta hlutfall ekki sanngjarn, ef við höfum raunverulega þennan metnað þá þarf bærinn að koma sterkari inn til að styðja við íþrótta- starf með einhverjum hætti. Það má samt ekki eingöngu setja þetta á bæinn. Fyrirtækin í bænum, velunn- ararnir. Þessir aðilar eiga að sjá hag sinn í því að hér sé betra samfélag og ættu þess vegna að gera það sama og við erum að fara fram á við bæinn. Þeir sem hafa mesta hagsmuni af því að hér sé gott samfélag eiga að standa með okkur í þessum málum.“ Sigurður bendir á að aukist ekki framlag til íþróttamála fylgi því sú áhætta að það fjari smám saman undan þessu starfi. Sjálfboðalið- arnir þurfa hvatningu, þeir eru fólk sem kann að meta það sem fyrir þá er gert. „Það fæst með því að finna að fyrirtækin styrki þau. Að bæjar- félagið sýni þeim virðingu, að það kunni að meta það sem sjálfboðalið- arnir eru að gera fyrir bæjarfélagið sitt. Þetta er samfélagslegt verkefni sem fæstir þeirra fá nokkuð greitt fyrir. Það er þessa viðurkenningu sem vantar inn í þetta samhengi. Að mínu mati eiga allir að vinna fyrir samfélagið sitt.“ Nú hefur margoft komið til tals að það borgi sig að sameina þessi tvö félög, Keflavík og Njarðvík. Hvar stendur þú í sameiningamálum? „Í svona litlu samfélagi, svona litlu hagkerfi eins og okkar, þá er ég allur á því að vinna saman til að gera hlutina betur – en það má aldrei vera á kostnað þess að taka út hjartað úr starfinu, sameina tvö hjörtu. Að mínu mati er alveg pláss fyrir fjögur knattspyrnufélög í bænum en þau mættu alveg vera í betri vensla- tengslum, vinna betur saman í því sem þau eru að gera. Hins vegar er mjög mikilvægt að passa upp á að það sé hjarta í hverju félagi. Þú heyrir alveg hvað þetta er okkur Keflvíkingum og Njarðvíkingum mikið hjartans mál. Þannig þarf þetta að vera.“ Setja einn hatt yfir allan íþróttarekstur sveitarfélagsins Allar íþróttadeildir og íþróttafélög bæjarins eru með einhvern rekstur. Þær eru með starfsfólk, þjálfara á launum, innheimtukerfi fyrir félags- gjöld, þau eru með allskonar hluti sem falla undir daglegan rekstur. Sigurður er á því að hagkvæmast væri að sameina það starf innan félaganna og það ætti að vera einn framkvæmdastjóri félagsins sem sæi um þau mál. „Ég sé fyrir mér að dag- legur rekstur allra deilda gæti fallið undir einn og sama hattinn, þar gæti sveitarfélagið komið að því máli með okkur með því að segja að þetta væri ákveðinn kjarni í starfsemi íþrótta- félaganna sem verður að vera í lagi. Við verðum að innheimta það sem við eigum inni og við verðum að borga það sem við skuldum. Þetta eru hlutir sem ætti að vera haldið utan um af einhverskonar reikni- stofu. Það er ekki það skemmtileg- asta sem sjálfboðaliðar gera og það er ekki það sem þeir eru sterkastir í. Að mínu mati er þessi hluti of stór til að við sjálfboðaliðarnir getum ráðið við hann. Við sjálfboðaliðarnir ættum að sinna fjármögnun á því sem snýr að rekstri vegna þjálfunar og keppni, ef það þarf að kaupa leikmenn þá sé það á höndum okkar að fjármagna þá.“ Metnaður fyrir öflugu starfi og árangri þarf að vera til staðar svo krakkarnir hafi eitthvað til að líta upp til bendir Sigurður á. „Ef hann er ekki til staðar þá er þetta eins og göngutúr í garðinum, sem er svo sem ágætur sem slíkur en þú fengir ekki eins mörg börn með þér í göngutúr. Það væri ekki sami drifkrafturinn, það þarf að vera eitthvað spennandi. Þess vegna er afreksstarfið svo mikilvægt og sjálfboðaliðarnir brenna mikið fyrir það. Þeir brenna fyrir uppeldisstarfið, að hafa eitt- hvað gott fyrir börnin sín að gera og vinna þeim góðan farveg og að hafa að einhverju að stefna. Svo hins vegar afreksstarfið sem er fyrir- myndin, árangurinn, fagna sigrum og gráta töp.“ Aðstaða til íþróttaiðkunar Í dag eru tveir fínir íþróttaleik- vangar í Reykjanesbæ, annar þeirra er í Njarðvík og hinn í Keflavík. Báðir góðir þótt þeir gætu verið betri. Sig- urður bendir á að uppbygging að- stöðu sé mjög mikilvæg, „... en ekki halda að hann sé aðalatriðið, það er sjálfboðaliðastarfið og eldmóðurinn sem er aðalatriðið. Sá þáttur vegur miklu þyngra en aðstaðan mun nokkurn tímann gera. Aðstaðan er samt gríðarlega mikilvæg því að án hennar eru okkur alltaf takmörk sett, við komust aldrei lengra en að- Keflavík er klúbburinn– segir Sigurður Garðarsson, formaður knattspyrnudeildar Keflavíkur, að yfirstöðnu góðu tímabili knattspyrnuliða deildarinnar. Þarf meira til ef Keflavík á að ná lengra. þeir þurfa að styðja betur við okkur – stakkurinn þarf að vera stærri ef við ætlum að komast lengra í efstu deild  . . . Jóhann Páll Kristbjörnsson johann@vf.is Amelía Rún Fjeldsted átti gott tímabil með Keflavík í sumar. VF-mynd: JPK sport

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.