Víkurfréttir


Víkurfréttir - 02.11.2022, Síða 23

Víkurfréttir - 02.11.2022, Síða 23
staðan leyfir okkur,“ segir hann og heldur áfram. „Knattspyrna er frekar plássfrek íþróttagrein, það þarf marga fer- metra undir hana, þess vegna er íþróttaaðstaða skipulagsmál. Þú verður að taka frá pláss fyrir þetta. Árið 1956 tók Keflavíkurbær þetta svæði sem við erum á núna frá fyrir Keflavík. Hér höfum við átt heima og eigum heima enn í dag og erum að tala saman hér á okkar félags- svæði. Það þjónar þessu nágrenni hér, allir komast á æfingu á korteri á hjóli. Svo eru Njarðvíkinga hér skammt undan og um þeirra svæði er svipaða sögu að segja, það þjónar þeirra félagssvæði. Hvorki Keflavík né Ytri-Njarðvík eru að fara að stækka neitt að ráði í framtíðinni. Hvaða svæði eru að stækka í dag? Það eru bæjarhlutarnir Ásbrú, þar sem er gríðarlegir uppbyggingar- möguleikar, og Innri-Njarðvík sem er að stækka og stækka. Hvar er gert ráð fyrir íþróttaaðstöðu fyrir iðkendur á þessu svæði? Hún er ekki til staðar. Þau börn sem búa í þessum bæjarhlutum og hafa áhuga á að stunda knattspyrnu þurfa að ferðast um á hjóli eða í strætó í um hálftíma til þess að komast á knatt- spyrnuæfingu. Það er hvergi gert ráð fyrir æfingasvæðum til knattspyrnu- iðkunar í þessum bæjarhlutum, þá er ég að tala um að það þarf meira en bara völl. Það þarf búningsaðstöðu, salernisaðstöðu, aðstöðu fyrir fólkið sem vinnur þar og helst eitthvað húsnæði fyrir félagsandann. Það er eins og það hafi orðið útundan í skipulagi Reykjanesbæjar og það gagnrýni ég.“ Við gerð aðalskipulags Reykja- nesbæjar, sem er mikilvægasta skipulagsplaggið til að taka frá pláss fyrir þá hluti samfélagsins sem við viljum hafa í því, s.s. íbúa- byggð, skóla, sundlaugar, verslanir, þjónustu, vegi og íþróttasvæði. Þar eru þær ákvarðanir teknar en þar virðist hafa gleymst að gera ráð fyrir íþróttastarfsemi í Innri- Njarðvík og á Ásbrú. „Þegar ég byrjaði í stjórn hér þá var auglýst að verið væri að und- irbúa endurskoðun skipulagsins. Þá benti ég á þetta atriði en fékk engin viðbrögð. Þegar koma að næsta áfanga aðalskipulagsins var aftur gefið tækifæri til að koma með umsagnir og ég ég kom aftur með þetta sama atriði, að það vantaði að gera ráð fyrir íþróttasvæðum í Innri-Njarðvík og á Ásbrú. Engin viðbrögð. Ég held að ég hafi bent á þetta í þriðja sinn við lokavinnslu skipulagsins en án árangurs. Ég talaði við bæjarstjórann, ég talaði við formann skipulagsnefndar – enginn áhugi á þessu og mér finnst það bara vera alvarlegt mál. Það veitti þessu enginn athygli, ekki einu sinni stjórnarandstaðan, eða minni hlutinn. Það er ekki gert ráð fyrir neinu knattspyrnusvæði á þessum stöðum og einu svörin sem ég hef fengið er að það sé verið að stefna á eitt aðalíþróttasvæði við Reykjaneshöllina – en við erum með íþróttasvæði þar. Til hvers að byggja upp nýtt þegar við erum með þetta? Þegar við erum að tala um uppbyggingu eigum við að tala um innri kjarna félaganna og getu þeirra til að stunda starfið innan frá. Til þess þarf aðstöðu úti í hverf- unum en ekki eina sameiginlega að- stöðu. Það getur endað með því að við verðum með fjögur íþróttafélög í bænum en hver er framtíðarsýnin í uppbyggingu íþróttamannvirkja? Er hún bara að búa til aðalleikvang við Reykjaneshöllina og að allir þurfi að ferðast þær vegalengdir sem þarf til að fara á æfingar? Það er ekki góð framtíðarsýn að mínu mati.“ Verum stolt af því sem við leggjum til samfélagsins okkar Við vendum nú okkar kvæði í kross og ræðum árangur Keflavíkur í sumar en Keflavík teflir fram liðum í Bestu deildum karla og kvenna í knattspyrnu. Sigurður hefur verið við stjórnvölinn síðustu fimm ár hjá knattspyrnudeild Keflavíkur en hann mun láta af formennsku á næsta aðalfundi. „Knattspyrna á Íslandi er á mörkum þess að vera fjárhagslega rekstrarhæf. Hún er rekstrarhæf með framlagi frá sveitarfélagi, fyrir- tækjum og einstaklingum. Það þarf meira til en einungis vinnuframlag sjálfboðaliða. Það verða allir miklir Keflvíkingar þegar vel gengur ... og þeim fjölgar þegar þannig er.“ Árangur Keflvíkinga í ár fór fram úr björtustu vonum og spádómum flestra en báðum liðum hafði verið spáð falli. Keflavík hafnaði í átt- unda sæti Bestu deildar kvenna og svo má leika sér að því í hvaða sæti liðið endaði í Bestu deild karla. Ef stigin eru talin varð Keflavík í fimmta sæti – eða hafnaði Keflavík í sjöunda sæti fyrir að vinna neðri hlutann. „Allra stærst er að Keflavík er klúbburinn,“ segir Sigurður að lokum. „Keflavík er klúbburinn sem hjálpar ungu fólki að búa sér til drauma, vinna að þeim og láta þá rætast. Í ár urðu leikmenn frá okkur atvinnumenn, aðrir komust í landslið, þar á meðal A-landslið, eða unnu aðra sigra. Við eigum að líta keik á okkur og vera stolt af því sem við erum að leggja til samfélagsins okkar.“ Ég skil fullkomlega þegar leik- mennirnir okkar vilja taka skref upp á við og fara í atvinnumennsku til útlanda. Ég skil líka vel ef leikmenn vilja stíga niður fyrir sig, minnka við sig og fara til neðrideildarliða. Það er mikið álag sem fylgir því að spila í efstu deild. Ég á hins vegar mjög erfitt með að skilja þegar leikmenn vilja stíga til hliðar og fara að leika með öðrum liðum í sömu deild, sem ekki er víst að gangi jafn vel og okkur né heldur hvort þeir fái sömu tæki- færi þar og þeir hafa fengið með okkar liði. SUÐURNESJABÆR AUGLÝSIR STARF SÉRFRÆÐINGS Í BARNAVERND Suðurnesjabær auglýsir eftir sérfræðing í barnavernd í 100% stöðu mála- stjóra. Suðurnesjabær er næststærsta sveitafélagið á Suðurnesjum með rúmlega 3900 íbúa. Þjónustusvæði félagsþjónustunnar telur um 5.000 íbúa en félagsþjónustan sinnir einnig sveitarfélaginu Vogum. Barnavernd Suðurnesjabæjar sinnir þjónustu við fylgdarlaus börn og öðrum verkefnum er tengjast alþjóðaflugvellinum í Leifsstöð. Helstu verkefni og ábyrgð ■ Vinnsla barnaverndarmála ■ Vinnsla við málaflokk fylgdarlausra barna ■ Ráðgjöf við foreldra og börn ■ Teymisvinna og málastjórn í samþættingu þjónustu ■ Samtarf við leik- og grunnskóla og aðrar stofnanir er tengjast börnum ■ Sinna bakvöktum Menntunar- og hæfniskröfur ■ Félagsráðgjöf eða sambærileg háskólamenntun sem nýtist í starfi ■ Reynsla af starfi barnaverndar ■ Mjög góð tölvufærni ■ Skipulagshæfileikar og sjálfstæði í starfi ■ Lipurð í mannlegum samskiptum, jákvætt viðhorf og geta til að vinna undir álagi ■ Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti, á ensku og íslensku ■ Bílpróf er skilyrði ■ Hreint sakavottorð Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um. Umsókn skal fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi. Umsjón með starfinu hefur María Rós Skúladóttir, deildarstjóri félagsþjónustu. Netfang mariaros@sudurnesjabaer.is Umsóknum skal skilað á rafrænu formi á netfangið afgreidsla@sudurnesjabaer.is Umsóknarfrestur er til og með 14.11.2022 Keflavík er klúbburinn sem hjálpar ungu fólki að búa sér ti l drauma, vinna að þeim og láta þá rætast  . . . Magnús Þór Magnússon, fyrirliði karlaliðs Keflavíkur, lyftir hér Forsetabikarnum sem Keflavík vann fyrst liða eftir sigur í neðri hluta Bestu deildar karla í knattspyrnu. Viðurkenningar á lokahófi knattspyrnudeildar Keflavíkur Viðurkenningar fyrir 50 leiki: Adam Ægir Pálsson, Helgi Þór Jónsson, Ígnacio Heras Anglada, Josep Arthur Gibbs, Kian Paul James Williams, Rúnar Þór Sigurgeirsson og Sindri Snær Magnússon. Viðurkenningar fyrir 100 leiki Magnús Þór Magnússon Viðurkenningar fyrir 150 leiki Kristrún Ýr Hólm Sindri Kristinn Ólafsson Gullskór meistaraflokks kvenna: Ana Paula Santos, fimm mörk Gullskór meistaraflokks karla: Patrik Johannesen tíu mörk í deild og eitt í bikar Besti leikmaður meistaraflokks kvenna: Samantha Leshnak Murphy Besti leikmaður meistaraflokks karla: Ígnacio Heras Anglada vÍkurFrÉttir á SuðurneSJuM // 23

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.