Rökkur - 01.03.1938, Qupperneq 5

Rökkur - 01.03.1938, Qupperneq 5
RÖKKUR 37 Frægasti leikari Norðurlanda heimsækir Island. Poul Reumert, hinn víðfrægi, ágæti danski leikari, sern oss Islendingum er að svo góðu kunnur frá fyrri komum hans hingað til lands, var meðal farþega á Lyru 16. mai. Vér íslendingar eigum þess sjaldan kost, að fagna heimsfrægum listamönnum, slíkum sem Poul Reumert, en þeim mun meiri og innilegri er gleði vor, er slík tækifæri gefast. En þar sem Poul Reumert ei>, þá fögnum vér eigi að eins heimsfrægum leikara, heldu r og ágætum vini íslands og aðdáanda, sem ætlar nú, ásamt frú sinni, leikkonunni frægu, frú Önnu Borg Leumert, og bestu leikurum höfuðstaðarins, að sýna hér tvö fræg leikrit, í því göfuga augnamiði, að það niegi verða Islandi og þjóðleikhúsinu og framtíð ís- ^enskrar leiklistar að sem mestu o'agni. Verður hið göf- nga tilboð Poul Reumerts og frúar hans seint metið Sem vert er. Hér er um að ræða stórviðburð í sögu ís- lenskrar leikmenningar. Utgefandi Rökkurs fór samdægurs á fund Poul Reu- 'Rert og átti tal við liann og frú hans, á æskuheimili hennar hér 1 hænum, þar sem þau dveljast asamt börnum sínum hjá syst- kinum frúarinnar, uns þau að leiksýningunum loknum fara aUstur að Þingvöllum til nokk- Urrar hvíldar. Poul Reumert er vingjarnleg- brosandi og hress, þótt ný- ^hginn sé af skipsfjöl, og lætur 1 hós mikla aðdáun á fegurð landsins, er e. s. Lvra sigldi i höfn. „Innsiglingin er dásamleg“, sagði Poid Reumert. „Er mað- ur lítur hin fögru fjöll landsins á sumarmorgni, vaknar ósk um það, að þetta ætti allir í öllum heiminum að sjá. ísland hefir svo margt aðdáanlegt að sýna öðrum þjóðum. Og við að tala um þetta minnist eg þess, að i París í fyrra var þess saknað, að Island tók ekki þátt í heims- sýningunni."

x

Rökkur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.